Geðveik mamma
Download on the App Store

Geðveik mamma episodes

  • Vinur minn Germani

    Þegar Jón Magni Ólafsson var ungur maður kolféll hann af einhverjum ástæðum, fyrir orgeltónlist og töfrum hennar sem minnti hann á gilin og fossana í sveitinni í Mýrdalnum. Hann hélt sérstaklega upp á plötu sem hann eignaðist 17 ára gamall með Fernando Germani, sem var organisti Péturskirkjunnar í Róm á tímum Píusar páfa (1939-1958). Þegar Germani heimsótti Ísland á áttunda áratugnum, tókst með þeim Magna óvænt, en djúpstæð vinátta sem entist allt þar til Germani lést.


    Þeir skrifuðust á í 25 ár um lífið, listina, mennina, illskuna, ástina og Guð.


    Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    44 min
  • Land og sonur 3/3: Svo mælir Svarthöfði
    Indriði G. Þorsteinsson var ekki aðeins rithöfundur. Hann starfaði lengi sem blaðamaður og ritstjóri og tók virkan þátt í þjóðmálaumræðunni, beitti sér í fyrirtækjarekstri og framleiðslu kvikmynda og var einn helsti skipuleggjandi hátíðarhaldanna í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 1974. Umdeildastur var hann þó sem pistlahöfundurinn Svathöfði.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    46 min
  • Land og sonur 2/3: Norðan við stríð
    Skáldsögur Indriða G. Þorsteinssonar gerast í samfélagi þar sem hið gamla víkur fyrir nýjum vonum og nýjum siðum. Indriða voru þessar miklu breytingar á íslensku þjóðfélagi um miðja 20. öld hugleiknar og hann speglaði þær iðulega í því samfélagi sem hann hafði sjálfur kynnst á yngri árum, sveitasamfélaginu. En hann benti líka stöðugt á að margt var bogið við það og að þrátt fyrir fegurð og yndisleika voru þjófar á ferð í paradís.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    49 min
  • Land og sonur 1/3: Vegir liggja til allra átta
    Indriði G. Þorsteinsson hóf feril sinn sem rithöfundur og blaðamaður rétt upp úr tvítugu. Hann sagði frá sveitalífinu sem hann hafði kynnst í Skagafirði og bæjarbragnum á Akureyri í Reykjavík. Æska hans og unglingsár voru mörkuð af sífelldum flutningum, mögnuðum ættingjum, hersetu og nýju lífi mölinni.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    49 min
  • Ljóslæknirinn 1/1: Hinn íslenski Nóbelshafinn

    Árið 1903 hlaut Niels Ryberg Finsen Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á ljósmeðhöndlun við hörundsberklum og öðrum sjúkdómum. Hann var fyrsti danski handhafi Nóbelsverðlaunanna sem þá voru nýtilkomin og vegna sérsviðs síns var hann gjarnan kallaður ljóslæknirinn. Uppruni Finsens teygir sig þó líka til Færeyja, þar sem hann fæddist, og til Íslands en á hann rætur að rekja til Íslands í föðurætt auk þess sem hann bjó hér um nokkurt skeið og lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum sem þá hét.


    Í aðalbyggingu Menntaskólans í Reykjavík er enn minnisvarði um námsár Finsens. Þrátt fyrir það er hann mörgum Íslendingum gleymdur og í þessum þætti verður hans minnst, fjallað um tengslin við Ísland, námsárin og afrekin á sviði læknavísinda.


    Umsjón: Jóhannes Ólafsson

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    50 min
  • Mundi: Seinni þáttur

    Guðmundur Arnfinnsson var bráðkvaddur bíðandi eftir strætó í Hamraborginni með poka fullan af bókum sem hann hafði keypt í Bónus. Örfáum mínútum áður hafði hann verið í viðtali hjá umsjónarmanni Lestarinnar á Rás 1 sem var að ræða við farþega í strætó.

    Þessi ótrúlega tilviljun er upphafið að ferðalagi þar sem Kristján Guðjónsson reynir að kynnast Munda, fyrrum sakarskrárritara, sérstæðum og hlédrægum hæfileikamanni sem skilur eftir sig mikinn fjölda kvæða og gríðarlegt bókasafn.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    59 min
  • Mundi: Fyrri þáttur

    Umsjónarmenn Lestarinnar vörðu heilum föstudegi í desember 2023 um borð í leið 4, strætó sem keyrir úr Mjódd niður á Hlemm um Breiðholtið. Í þættinum heyrast sögur fólks sem ferðaðist með vagninum þann daginn. Strákur á leið að fá sér drekatattú, venesúelskur söngvari á leið til sálfræðings, danskur kökuskreytingameistari og hagmælti bókasafnarinn Mundi.


    Á páskadag fór í loftið nýr útvarpsþáttur á Rás 1 um ævi eins viðmælandans Guðmundar Arnfinnssonar og var strætóþátturinn endurfluttur að því tilefni.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    52 min
  • Bein 2/3: ...nema ekki fyrir mömmu
    Allt leitar yfirborðsins. Lærleggirnir una sér ekki í moldu og sögur úr æsku systkinanna af Lækjarbakka brjótast fram.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    41 min
  • Bein 1/3: Lærleggurinn verndar okkur...
    Hafrún býr á Vestri Loftsstöðum með Sigurði manninum sínum, fimm af sjö börnum þeirra, hundinum Tarfi og lærlegg úr 400 ára gömlum galdramanni. En hvaðan kom þetta bein, þessi saga, og er einhver leið að rannsaka það með tilkomu nútíma tækni?

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    40 min

About Geðveik mamma

From the publisher's feed

Hvaða hugmyndir höfum við um geðveikar mömmur? Hvers vegna breytast sum viðhorf en önnur ekki?

Þættir um mæður, geðsjúkdóma og sögurnar sem fjölskyldur segja – eða segja ekki.


Hera…