Gestaboð

Gestaboð

By RÚVArts
Download on the App Store

Gestaboð episodes

  • Sigurður og Guðmundur Óskar Guðmundssynir
    „Ég er meira naut verandi eldri svo ég fæ meira svona „urrrr,“ segir Sigurður Guðmundsson um þau skipti sem hann og yngri bróðir hans, vinur og samstarfsfélagi Guðmundur Óskar verða ósáttir. Litli bróðir er fljótur að lúffa en oftast eru þeir mestu mátar. Þeir skipa hljómsveitina GÓSS ásamt Sigríði Thorlacius.
    Bræðurnir Sigurður og Guðmundur Óskar Guðmundssynir eru tónelskir og nánir. Sigurður er einn stofnenda reggísveitarinnar Hjálma og Guðmundur Óskar hefur verið í hljómsveitinni Hjaltalín frá upphafi en það var einmitt í þeirri sveit sem samstarf hans og Sigríðar Thorlacius hófst. Bræðurnir eru svipaðir á margan hátt og deila tónlistaráhuga sínum en eru til dæmis með ólíkan fatastíl. „Guðmundur er töluvert svartari en ég,“ segir Sigurður sem gjarnan klæðist litríkum fötum. „Það er meiri gleði í litunum af nauðsyn þar sem gleðin er ekki mikil innvortis,“ segir hann glettinn í Gestaboði hjá Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur á Rás 1. „Nei, ég segi svona. Jú, ég hef gaman að því að prýða mig skrautfjöðrum.“
    1 hr 1 min
  • Gísli Magna
    Sigurlaug Margrét Jónasdóttir ræðir við Gísla Magna söngvara meðal annars um lögin sem afi hans Steingrímur M. Sigfússon samdi á sínum tíma.
    (Áður á dagskrá 30. maí sl.)
    (Aftur á morgun)
    50 min

About Gestaboð

From the publisher's feed

Sigurlaug Margrét Jónasdóttir tekur á móti góðum gestum í útvarpssal.