Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Bein útsending frá spurningakeppni framhaldsskólanna. Spyrill er Helga Margrét Höskuldsdóttir. Dómarar og spurningahöfundar eru Vilhjálmur Bergmann Bragason, Sigurlaugur Ingólfsson og Arnar Gunnarsso... more
FAQs about Gettu betur:How many episodes does Gettu betur have?The podcast currently has 33 episodes available.
January 20, 202018. Vitaverðirnir á Flannan eyjumFlannan-eyjur eru örlítill eyjaklasi sem tilheyrir Ytri-Suðureyjum í Skotlandi - varla meira en sker og hólmar sem rísa upp úr Norður-Atlantshafi. Þar eru engir mannabústaðir og engin mannvirki að finna fyrir utan það að á einni eyjunni, þeirri stærstu, stendur viti. Í þessum vita gerðist dularfullur atburður í desembermánuði árið 1900. Í miklu illviðri slökknaði á vitanum og þrír vitaverðir hurfu sportlaust. Hrifsaði sjórinn mennina til sín - eða gerðist eitthvað ennþá verra á þessum afskekkta stað?...more0minPlay
January 16, 2020Keppniskvöld nr. 5Borgarholtsskóli - Fjölbrautaskóli Vesturlands. Menntaskólinn við Hamrahlíð - Kvennaskólinn. Menntaskólinn á Akureyri - Tækniskólinn. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti - Menntaskólinn í Reykjavík. Framhaldsskóli Asustur-Skaftafellssýslu - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ....more0minPlay
January 14, 2020Keppniskvöld nr. 4Menntaskólinn á Ísafirði - Verkmenntaskóli Austurlands. Menntaskólinn í Kópavogi - Verzlunarskólinn. Fjölbrautaskóli Suðurnesja - Fjölbrautaskólinn í Ármúla....more0minPlay
January 13, 202017. Týnda borgin í AmazonÁrið 1925 lagði breski landkönnuðurinn Percy Fawcett af stað inn í Amazon-regnskóginn í Brasilíu í leit að rústum höfuðborgar horfinnar siðmenningar, sem hann kallaði týndu borgina Zetu. Þessarar borgar er einungis getið í einu gulnuðu handriti frá átjándu öld, en Fawcett var handviss um að hana væri að finna einhverstaðar djúpt inni í regnskógarþykkninu - og varð heltekinn af þeirri tilhugsun um að sjá borgina með eigin augum....more0minPlay
January 08, 2020Keppniskvöld nr. 3Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum - Fjölbrautaskóli Vesturlands. Menntaskólinn á Akureyri - Flensborg. Fjölbrautaskólinn í Garðabæ - Menntaskóli Borgarfjarðar. Fjölbrautaskólinn við Ármúla - Menntaskólinn á Ísafirði....more0minPlay
January 07, 2020Keppniskvöld nr. 2Menntaskólinn við Hamrahlíð - Menntaskólinn í tónlist. Fjölbrautaskóli Suðurlands - Tækniskólinn. Verzlunarskólinn - Menntaskólinn á Egilsstöðum. Borgarholtsskóli - Verkmenntaskólinn á Akureyri. Framhaldsskólinn í Mosfelssbæ - Kvennaskólinn...more0minPlay
January 06, 2020Keppniskvöld nr. 1Fjölbrautaskóli Suðurnesja - Menntaskólinn í Kópavogi. Menntaskólinn við Sund - Fjölbrautaskólinn í Breiðholti. Framhaldsskólinn á Húsavík - Framhaldsskóli Austur Skaftafellssýslu. Framhaldsskólinn á Laugum - Verkmenntaskóli Austurlands. Menntaskólinn í Reykjavík - Menntaskólinn að Laugarvatni....more0minPlay
January 06, 202016. Líkið í álminumVorkvöld eitt árið 1943 voru nokkrir táningspiltar á flækingi um skóg í nágrenni borgarinnar Birmingham í Bretlandi, í leit að fugslhreiðrum. En í stað hreiðra fundu þeir beinagrind ungrar konu, sem var falin inni í holum álmi í útjaðri skógarins. Nokkru síðar birtust svo torkennilegt veggjakrot í bæjum í nágrenni skógarins og ljóst einhver vissi meira um líkið í álminum en hann lét uppi. Rannsókn lögreglu stóð í áratugi, og komu þar við sögu nornir, njósnarar og kabarettsöngvarar....more0minPlay
December 30, 201915. Dauðsfallið á SuðurskautslandinuÞað er varla nokkur staður á jörðinni afskekktari og einangraðri en Amundsen-Scott-rannsóknarstöðin á Suðurskautslandinu. Yfir heimskautaveturinn er þar stöðugt myrkur, stöðugt hvassviðri og svo mikið frost að enginn flugvél getur lent þar. Þeir vísindamenn sem þar dvelja yfir vetrartímann búa í því algerri einangrun og kolniðamyrkri mánuðum saman, og eiga sér engrar undankomu auðið. Það var eina slíka eilífa vetrarnótt sem dularfullt dauðsfall átti sér stað í Amundsen-Scott-rannsóknarstöðinni....more0minPlay
December 23, 201914. Aleppó handritiðEitt dýrmætasta fornhandrit Gyðingdómsins, sem talið er vera eitt fullkomnasta eintak af hebresku biblíunni sem til er, Aleppó-handritið, er geymt við stranga öryggisgæslu í neðanjarðarhvelfingu á þjóðminjasafni Ísraelsríkis í Jerúsalem. Handritið er kallað Aleppó-handritið því í meira en sex hundruð ár geymdu Gyðingar í sýrlensku borginni Aleppó handritið eins og sjáaldur augna sinna....more0minPlay
FAQs about Gettu betur:How many episodes does Gettu betur have?The podcast currently has 33 episodes available.