Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Freyr Eyjólfsson ræðir við Halla og Ladda um plötuna Fyrr má nú aldeilis fyrr vera, sem út kom fyrir 45 árum síðan. Endurflutt frá árinu 2002.... more
FAQs about Geymt en ekki gleymt:How many episodes does Geymt en ekki gleymt have?The podcast currently has 28 episodes available.
May 11, 2018Nokkrir blúsararFjallað um blúsarana Walter Hawkins, sem var kallaður Buddy Boy Hawkins, Sleepy John Estes, Oscar Buddy Woods og bræðurna Robert og Harley Hicks....more0minPlay
May 04, 2018Blind Willie Johnson, seinni þátturSeinni þáttur um blúsarann Blind Willie Johnson sem hljóðritaði 30 lög á tímabilinu desember 1927 til apríl 1930, aðallega gospel lög með blúsáhrifum. Hann var predikari seinni hluta æviinnar og dó úr vosbúð 1945. Eitt laga hans var valið sem fulltrúi mannkyns þegar Voyager geimfarið var sent í könnunarleiðangur út í himingeiminn 1977. Umsjón: Jónatan Garðarsson....more0minPlay
April 27, 2018Blind Willie Johnson, fyrri þátturFyrri þáttur um Blind Willie Johnson. Hann söng nærri helming laganna sem hann hljóðritaði með fyrri eiginkonu sinni Willie B. Harris. Hann hvarf í mannhafið 1930 eftir að hafa hljóðritað þrjátíu lög á tæplega þremur árum. Umsjón: Jónatan Garðarsson....more0minPlay
April 20, 2018Josh White, seinni þátturBlússöngvarinn Josh White hóf feril sinn átta ára gamall sem fylgdarmaður blindra blúsara í Suðurríkjunum. Hann spilaði fyrst inn á hljómplötu 14 ára en varð síðar einn áhrifamesti blúsari á fyrri hluta 20. aldar. Josh White var aðallega þekktur sem þjóðlaga- og mótmælasöngvari undir lok ferils síns. Umsjón: Jónatan Garðarsson....more0minPlay
April 13, 2018Josh White, fyrri þátturFjallað um Josh White sem hóf ferilinn sem fylgdarsveinn blindra blústónlistarmanna ungur að árum. Hann lærði sitthvað af þeim og spilaði inn á fyrstu plötuna 18 ára, yngstur allra blúsara til að hljóðrita svonefnda Race Music eins og tónlist þeldökkra var nefnd í upphafi. Hann tók upp undir nöfnunum Pinetop Tom, The Singing Christian og Josh White. Umsjón: Jónatan Garðarsson....more0minPlay
December 10, 2008BlússöngkonurFjallað um nokkrar konur sem fengust við blústónlist og gospelblús á fyrri hluta 20. aldar. Helen Humes söng blúslag inn á plötu 13 ára, árið 1927, en varð seinna fræg jazzsöngkona. Einnig koma við sögu Sister O.M. Terrell, Sister Mary Nelson, Rev. Bessie Johnson og Memphis Sanctified Singers, Merline Johnson, Lucille Bogan og Rosetta Howard....more0minPlay
December 03, 2008Lonnie Johnson lokaþátturÁttundi og síðasti þáttur um brautryðjandann Lonnie Johnson. Fjallað um ferð hans til Bretlands 1952 og árin eftir það þegar hann bjó í Fíladelfíu og Ontario. Hann starfaði sem húsvörður í Fíladelfíu, kvæntist aftur og eignaðist eina dóttur og byrjaði aftur að taka upp tónlist eftir að hafa verið enduruppgötvaður 1959. Hann tók einnig upp blúslög eftir hvíta kántrýtónlistarmenn, rytmablús og sitthvað fleira. Hann settist að í Ontario í Kanada 1965, opnaði blúsklúbb 1966 og andaðist 1970, ári eftir að hafa lent í slysi á gangbraut í Toronto....more0minPlay
November 26, 2008Lonnie Johnson úr hljómgítar í rafmagns gítarSjöundi þáttur um blúsgítarleikarann Lonnie Johnson. Fjallað um Chicago árin og þegar hann fór í ferð til vesturstrandarinnar. Þar hlustaði hann á King Cole Trio og heillaðist af dægurlagablúsnum sem það tríó var með á efnisskrá sinni. Hann tók upp sitt vinsælasta lag eftir það sem hét Tomorrow Night og seldist í 3 milljón eintökum. Hann tók einnig upp blúslög eftir hvíta kántrýtónlistarmenn, rytmablús og sitthvað fleira. Á þessum tíma skipti Lonnie úr hljómgítar í rafmagnsgítar og lagði línuna fyrir rafblúsara sem voru að hasla sér völl í Chicago....more0minPlay
November 19, 2008Lonnie Johnson í kreppunniSjötti þáttur um gítarleikarann Lonnie Johnson. Fjallað um kreppuárin eftir að hann skyldi við Mary eiginkonu sína og fluttist til Chicago. Þar hófst hann handa við að byggja feril sinn upp á nýtt eftir að hafa misst samninginn við Okeh útgáfuna 1932. Hinn klóki Lester Melrose átti sinn þátt í að koma Lonnie aftur í samband við þekkta tónlistarmenn og skapa honum aðstæður sem urðu til þess að hann náði að vinna fyrir sér með tónlist, þó hann tæki að sér önnur störf líka eins og venja var meðal blúsara í Chicago....more0minPlay
November 12, 2008Lonnie Johnson fimmti þátturFjallað um árin 1930 til 1937 þegar Lonnie Johnson tók upp síðustu lög fyrir Okeh útgáfuna og starfaði t.d. með söngkonunni Clöru Smith sem var kölluð Queen of the Moaners. Síðustu lögin sem hann tók upp fyrir Okeh eru leikin. Sagt frá tímanum í Cleveland í Ohio áður en hann flutti til Chicago 1937 og snéri sér aftur að tónlistinni....more0minPlay
FAQs about Geymt en ekki gleymt:How many episodes does Geymt en ekki gleymt have?The podcast currently has 28 episodes available.