Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Freyr Eyjólfsson ræðir við Halla og Ladda um plötuna Fyrr má nú aldeilis fyrr vera, sem út kom fyrir 45 árum síðan. Endurflutt frá árinu 2002.... more
FAQs about Geymt en ekki gleymt:How many episodes does Geymt en ekki gleymt have?The podcast currently has 28 episodes available.
November 05, 2008Lonnie Johnson fjórði þátturFjallað um stutt ástarsamband Lonnie Johnson og söngkonunnar Bessie Smith og hvernig hann samdi lög til hennar þar sem hann lýsir hugarástandi sínu og vandræðagangi þar sem hann var á sama tíma enn kvæntur Mary Johnson og átti með henni 6 börn. Einnig fjallað um hvaða áhrif andlát Eddie Lang vinar hans hafði á hann....more0minPlay
October 29, 2008Lonnie Johnson þriðji þátturFjallað um samstarf hans við jazzgítarleikarann Eddie Lang sem spilaði með Lonnie inn á plötur undir nafninu Blind Willie Dunn, þar sem Eddie var hvítur en Lonnie svartur. Einnig leikið lag þar sem Lonnie spilaði með hljómsveit Duke Ellington og fjallað um tímabilið rétt fyrir 1930 á meðan allt lék í lyndi á bandarískum fjármálamörkuðum....more0minPlay
October 22, 2008Lonnie Johnson annar þátturAnnar þáttur um gítarleikarann Lonnie Johnson, sem hóf ferilinn í New Orleans í klassískri tónlist og vann blúskeppni í St. Louis sem færði honum 7 ára plötusamning. Eftir gaf hann út eina tveggja laga 78 snúninga plötu á mánuði í eigin nafni og spilaði inn á fjölda hljómplatna með söngkonunni Victoriu Spivey, tók upp með Hot Five Hljómsveit Louis Armstrong og fleiri flytjendum. Fjallað um einkalífið og starfið, eftir að hann settist að í New York og fór í reglulegar ferðir til Chicago....more0minPlay
October 15, 2008Lonnie Johnson fyrsti þátturFyrsti þáttur um gítarleikarann Lonnie Johnson, sem varfrá New Orleans. Hann lærði að spila á fiðlu, en tók sjáflur upp á því að læra á gítar, banjo, mandolin, paníó, orgel og bassa. Hann starfaði með strengjasveit föður síns frá 14 ára aldri og síðan tóku aðrar hljómsveitir við. Hann var í hópi tónlistarmanna sem sendir voru á vegum Bandaríkjastjórnar til að skemmta bandarískum hermönnum á vígvöllum Evrópu undir lok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Þegar hann snéri heim til New Orleans 1919 komst hann að því að foreldrar hans og 11 systkini höfðu látist af völdum spænsku veikinnar 1918. Aðeins einn bróðir hans komst að fyrir utan hann sjálfan og héldu þeir nánu sambandi næstu árin....more0minPlay
October 08, 2008Little Brother Montgomery 3.þátturÞriðji þáttur um Little Brother Montgomery. Fjallað um seinni hluta ævi hans eftir að hann kom til Chicago. Sagt er frá því með hvaða fólki hann starfaði á þessum árum og hvaða áhrif hann hafði á þróun þeirrar borgarblús tónlistar sem varð til í þéttbýlinu og mannmergðinni í Chicago, þar sem nokkur hundruð þúsund blökkumanna frá Suðurríkjunum settust að árunum milli 1940 og 1970. Umsjón: Jónatan Garðarsson...more0minPlay
September 17, 2008Skip James þriðji þátturÞriðji þáttur um blúsarann Skip James. Fjallað um árin þegar hann stundaði trúboð, sem og þegar hann varð að vinna fyrir sér við skógarhögg og sem verkstjóri á ökrunum í Mississippi. Meginhlutinn fjallar þó um árin milli 1964-1969, sem voru síðustu ár hans. Þá naut hann nokkurrar frægðar, en þar sem hann var að berjast við krabbamein og gat ekki sinnt tónlistinni sem skyldi var hann bláfátækur fram á síðasta dag. Umsjón: Jónatan Garðarson...more0minPlay
September 10, 2008Annar þáttur um blúsarann Skip James.Fjallað um árin þegar hann spilaði tónlist á vændishúsum og var sjálfur melludólgur, einnig um tímann sem hann starfaði með Henry Stuckey sem kenndi honum að stilla gítarinn á nýjan hátt. Samningurinn við Paramount útgáfuna og upptökuferði sem hann fór til Grafton kemur við sögu sem og árin þegar hann snrri bakinu við blúsnum og gerðist predikari og stjórnandi gospelsönghóps. Umsjón: Jónatan Garðarsson...more0minPlay
September 03, 2008Fyrsti þáttur um blúsarann Skip JamesFyrsti þáttur af þrem um blúsarann Skip James sem hóf feril sinn í Yazoo í Mississippi. Hann var verkamaður, bruggari, melludólgur, barpíanisti og blúsgítarleikari, þar til hann gerðist prestur. Skip James spilaði svonefnt þriggja fingra pikk, en notaði aldrei slide gítartækni. Hann var þekktur fyrir háa falsetturödd sína, sérkennilegt hljómfall og hvernig hann stillti gítarinn sinn í opinn E-moll hljóm. Hann var helsti fulltrúi Bentonia stílsins. Umsjón: Jónatan Garðarsson....more0minPlay
FAQs about Geymt en ekki gleymt:How many episodes does Geymt en ekki gleymt have?The podcast currently has 28 episodes available.