
Sign up to save your podcasts
Or


Bókin sem rætt er um í þættinum:
Olof Sundquist. The Demise of Norse Religion: Dismantling and Defending the Old Order in Viking Age Scandinavia (De Gruyter, 2024).
Síðari hluti sautjándu aldarinnar er stórveldistími í sögu Svíþjóðar. Pólitísk og hernaðarleg ítök sænska konungsríkisins voru gríðarleg umhverfis Eystrasaltið, en slíku valdi fylgir sterk þörf fyrir skilning og hagfelldar túlkanir á eigin fortíð.
Í þessum þætti er rætt við Margréti Eggertsdóttur, rannsóknarprófessor á Árnastofnun, um íslenska handritasafnara í Svíþjóð.
Bókin sem rætt er um í þættinum:
Margaret Clunies Ross: Skaldic Poetry as Christian Progaganda (Boydell & Brewer, 2026).
Manneskjur höfðu sömu tilfinningar á miðöldum og þær hafa í nútímanum, en sá orðaforði sem við notum til að lýsa tilfinningum hefur tekið miklum breytingum í aldanna rás. Í þætti dagsins er rætt við Sif Ríkharðsdóttur bókmenntafræðing um tilfinningar í miðaldabókmenntum.
Greinar sem rætt er um í þættinum:
Greinar sem rætt er um í þættinum:
Konungsdóttirin Mábil sterka frá Vallandi er öllum fremri í riddaralistum. Hún drýgir miklar hetjudáðir í bardögum og beitir óhefðbundnum aðferðum við að klekkja á helsta óvini sínum, Medeu drottningu í Grikklandi. Sömuleiðis ver hún Móbil systur sína frækilega gegn ásókn karla sem vilja kvænast henni og heimta þannig krúnuna.
Í hlaðvarpsþætti dagsins segir Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir okkur frá Mábilar rímum en hún hlaut nýlega viðurkenningu Hagþenkis fyrir bók sína Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku.
Greinar sem rætt er um í þættinum:
Brian McMahon, „Old Norse Poetry in Performance: Perils, Pitfalls and Possibilities,” Old Norse Poetry in Performance (Routledge, 2022).
Pétur Húni Björnsson, „‚ıð Beſta eꝛ quæðeð fm̄ flutt': Kveðnar Drápur og kveðnar rímur‘,“ „Old Norse Poetry in Performance: Perils, Pitfalls and Possibilities,” Old Norse Poetry in Performance (Routledge, 2022).
Í dag umgöngumst við íslensku handritin af mikilli varkárni, nánast eins og um helga gripi væri að ræða. En það gerðu fyrrum eigendur þeirra ekki endilega. Þeir hikuðu ekki við að bæta við texta handrita, taka bækur í sundur og jafnvel breyta myndskreytingum eftir eigin smekk.
Í þessum þætti segir Beeke Stegmann, rannsóknardósent við Árnastofnun, okkur frá Skarðsbók Jónsbókar og hvernig viðhorf miðalda til handritanna voru frábrugðin varðveislustefnu nútímans.
From the publisher's feed
Fyrir alla sem þyrstir í fróðleik um bókmenntir, sögu og menningu Norðurlandanna. Fræðimennirnir Hjalti Snær Ægisson og Teresa Dröfn Njarðvík veita innsýn í menningarheim miðalda og spjalla um…