
Sign up to save your podcasts
Or


Í dag umgöngumst við íslensku handritin af mikilli varkárni, nánast eins og um helga gripi væri að ræða. En það gerðu fyrrum eigendur þeirra ekki endilega. Þeir hikuðu ekki við að bæta við texta handrita, taka bækur í sundur og jafnvel breyta myndskreytingum eftir eigin smekk.
Í þessum þætti segir Beeke Stegmann, rannsóknardósent við Árnastofnun, okkur frá Skarðsbók Jónsbókar og hvernig viðhorf miðalda til handritanna voru frábrugðin varðveislustefnu nútímans.
Greinar sem rætt er um í þættinum:
Declan Taggart, „All the Mountains Shake: Seismic and Volcanic Imagery in the Old Norse Literature of Þórr,“ Scripta Islandica 68/2017, 99–122.
Mathias Nordvig og Felix Riede, „Are There Echoes of the AD 536 Event in the Viking Ragnarok Myth? A Critical Appraisal,“ Environment and History 24/3:2018, 303–324.
Grænland var numið af norrænu fólki á seinni hluta 10. aldar. Ályktanir um viðarskort á Grænlandi á miðöldum eru hluti af hugmyndum manna um óhagstæð náttúruskilyrði sem leiddu til endaloka norrænu byggðanna þar.
Þær hugmyndir byggja hins vegar ekki á rannsóknum á viðarnotkun, eingöngu ályktunum sem dregnar hafa verið út frá rituðum heimildum og nútímaaðstæðum. Lísabet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur hefur rannsakað málið ofan í kjölinn. Í dag spjöllum við um Grænland á miðöldum.
Greinar sem rætt er um í þættinum:
Aðalheiður Guðmundsdóttir, „Um myrkur sem mæðir og sögur sem græða,“ Ritið 2025:2, 35–60.
Andrea Maraschi, „Medieval Iceland: Changelings on the Margins,“ The Exeter Companion to Changeling Lore: The West Eurasian and Mediterranean Tradition (Exeter: University of Exeter Press, 2026), 78–91.
Greinar sem rætt er um í þættinum:
Philip Lavender, „Skjaldar þáttr Danakonungs: A Lost Fornaldar saga?“, Opuscula – Bibliotheka Arnamagnæana XVI:2016, 89-103.
Philip Lavender, „Sailing and Sinking in the Sea of forgery: The Tradition of Fake Sagas in Seventeenth and Eigteenth Century Sweden and Denmark“, Faking it! The Performance of Forgery in Late Medieval and Early Modern Culture (Brill, 2022), 263-295.
Við spjöllum við Hauk Þorgeirsson miðaldafræðing um lífsviðhorf og gildi höfðingja víkingaaldar eins og þau birtast í dróttkvæðum.
Greinar sem rætt er um í þættinum:
Judy Quinn: “Liquid Knowledge: Traditional Conceptualisations of Learning in Eddic Poetry,” Along the Oral-Written Continuum: Types of Texts, Relations and their Implications (Brepols, 2010), 183–226.
Ann Sheffield: “Men Who Brew: Masculinity and the Production of Drink in Medieval Icelandic Literature,” Scandinavian Studies 2023:1, 85–107.
Bak við luktar dyr í Eddu leynist sannkallaður fjársjóður: íslensku handritin. Vitnisburður um horfna veröld, heill heimur í orðum.
Í dag tökum við tali Svanhildi Óskarsdóttur, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, sem segir okkur frá lítilli bók sem ferðaðist eftir krókaleiðum alla leið frá Breiðafirði til Manchester á Englandi.
Bókin sem rætt er um í þættinum:
Þórgunnur Snædal, Rúnir á Íslandi (Stofnun Árna Magnússonar, 2024).
From the publisher's feed
Fyrir alla sem þyrstir í fróðleik um bókmenntir, sögu og menningu Norðurlandanna. Fræðimennirnir Hjalti Snær Ægisson og Teresa Dröfn Njarðvík veita innsýn í menningarheim miðalda og spjalla um…