Góðvild

Góðvild

Download on the App Store

Góðvild episodes

  • Spjallið með Góðvild # 10 - Helga Elídóttir

    „Ég féll fyrir þessari sérgrein, mér fannst hún einfaldlega lang skemmtilegust,“ segir barnalæknirinn Helga Elídóttir. Í haust stofnaði hún Facebook hópinn Barnalæknirinn þar sem hún fræðir um ýmislegt gagnlegt tengt börnum. Helga lærði fyrst hér á landi en flutti svo til Malmö í Svíþjóð þar sem hún lærði barnalækningar og ofnæmislækningar barna.

    Að hennar mati er teymisvinna í kringum veikindi barna komin skrefinu lengra í Svíþjóð en hér heima, þó að þetta sé nú að breytast í rétta átt. Það er þó margt sem tengist fjölskyldum langveikra barna sem er betra hjá nágrönnum okkar.


    12 min
  • Spjallið með Góðvild # 9 Hildur Brynja

    Hildur Brynja sagði sína sögu í nýjasta þættinum af Spjallið með Góðvild.

    Hildur Brynja er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, en hefur ekki getað starfað við það síðan Íris Embla kom í heiminn fyrir níu árum síðan. Íris Embla er í hjólastól og er ómálgug og þarf því að tjá sig með öðrum hætti.
    Sjálf gæti Hildur Brynja hugsað sér að vinna til dæmis 20 prósent starf við það sem hún er menntuð í og þannig viðhaldið þekkingunni og tekið meira þátt.

    „Þú getur fengið þessar foreldragreiðslur en þær setja þig algjörlega á hilluna. Þá getur þú ekki unnið með þeim og þú getur ekki farið í skóla eða einn kúrs eða eitthvað sem þú gætir mögulega gert þér til uppbyggingar.“


    sjá grein hér á vísir.is :
    https://www.visir.is/g/20202037924d/sett-a-hilluna-og-geta-ekki-farid-i-hlutastarf-eda-nam


    31 min
  • Spjallið með Góðvild # 8 Halldóra

    Markþjálfun getur skipt sköpun fyrir fólk sem þarf stuðning til að stíga sín fyrstu skref í átt að betra lífi. Í þessum þætti af Spjallið með Góðvild ræðir Halldóra Hanna um það hvernig hún er búin að breyta erfiðri og neikvæðri reynslu yfir í jákvæða breytingu með sjálfskoðun sem umturnaði lífi hennar. Hana langar hana nú að hjálpa öðrum að komast á betri stað í lífinu og þá sérstaklega öðrum foreldrum langveikra barna sem á hverjum degi glíma við gífurlegt álag og áskoranir.

    18 min
  • Spjallið með Góðvild # 7 Sigurður H. Jóhannesson

    Sigurður Jóhannesson gagnrýnir að ekki fáist niðurgreiðsla frá Sjúkratryggingum Íslands fyrir mörgum hjálpartækjum sem gætu bætt lífsgæði langveikra og fatlaðra barna til muna.

    Siggi er faðir langveikrar stúlku, Sunnu Valdísar, sem er með sjaldgæfan genagalla.

    Sjá frekari umfjöllun hér í grein á Vísir.is

    https://www.visir.is/g/20202032241d/segir-sjukratryggingar-islands-ekki-komnar-inn-i-thessa-old

    12 min
  • Spjallið með Góðvild # 6 Hulda Svansdóttir

    „Fólk á ekki að þurfa að berjast svona til að fá meðferð fyrir barnið sitt, það bara er ekki boðlegt,“ segir Hulda Björk Svansdóttir.

    Ægir sonur Huldu er átta ára gamall og er með vöðvahrörnunarsjúkdóminn Duchenne og er ekki mikið af meðferðum í boði. Sjúkdómurinn er illvígur og leggst eingöngu á drengi og algengt er að hann versni mikið upp úr sjö ára aldri.

    Hulda hefur barist mikið fyrir son sinn síðustu ár og vegna hennar er verið að leggja drög að frumvarpi um rétt barna eins og Ægis til að reyna alla möguleika.


    Sjá frekari umfjöllun hér í grein á Vísir.is
    https://www.visir.is/g/20202029419d/-er-haegt-ad-setja-verdmida-a-barnid-manns-

    17 min
  • Spjallið með Góðvild # 5 Árni Björn

    Árni Björn mætir í spjallið og talar meðal annars um mikilvægi þess að heilbrigðiskerfið grípi foreldra langveikra barna.

    Númer eitt tvö og þrjú þá verða foreldrarnir að vera heilsuhraustir ef þeir ætla að sjá um þetta barn.  
    Þannig að við setjum heilsuna okkar í forgang, alltaf,“ segir Árni Björn Kristjánsson, faðir langveikrar stúlku.  
    Árni og Guðrún Ósk Maríasdóttir eignuðust dótturina Halldóru í maí árið 2013 og hafa síðan þá þurft að berjast við kerfið vegna hennar réttinda.

    Sjá frekari umfjöllun hér í grein á Vísir.is

    https://www.visir.is/g/20202026426d


    10 min
  • Spjallið með Góðvild #4 Sigurður Jóhannesson

    Staða langveikra barna á Íslandi er ekki góð.

    Sigurður Hólmar Jóhannesson  einn af stofnendum Góðvildar og faðir langveikrar stúlku, ræðir um stöðu langveikra barna á Íslandi.

    Sjá frekari umfjöllun hér í grein á Vísir.is

    https://www.visir.is/g/20202023927d/gagnrynir-ad-meirihluti-sofnunarfjar-her-a-landi-fari-til-krabbameinsfelaga

    11 min
  • Spjallið með Góðvild #3 Karolína H. Símonardóttir

    Um hundrað börn á ári missa foreldri en aðeins hluti þeirra fær aðstoð

    Karolína er fjögurra barna móðir sem missti maka sinn fyrir nokkrum árum. Í dag er hún varaformaður Ljónshjarta sem eru samtök fyrir ungt fólk sem misst hefur maka og börn þeirra. Í þættinum Spjallið með Góðvild ræðir hún sorgina og hversu mikilvægt er að heilbrigðiskerfið stígi betur inn í þegar andlát verður.

    Sjá frekari umfjöllun hér í grein á Vísir.is

    https://www.visir.is/g/20202020966d/um-hundrad-born-a-ari-missa-foreldri-en-adeins-hluti-theirra-faer-adstod?fbclid=IwAR1yfhU6BK5OyQLh_aq4ubf6fEBLV_KwMmXUBiZ5ELJxQmD3yQNu-LQDKik

    16 min
  • Spjallið með Góðvild #1 Brynhildur Ýr

    Veikindaréttur á Íslandi hefur tekið litlum breytingum undanfarin ár og er mjög misjafnt hvar fólk stendur eftir stéttarfélögum. Brynhildur Ýr er móðir langveiks drengs og fer hún yfir þessi mál í fyrsta þættinum af Spjallið með Góðvild.


    Sjá frekari umfjöllun hér í grein á Vísir.is

    https://www.visir.is/g/20202014994d






    16 min

About Góðvild

From the publisher's feed

Viðtalsþættir þar sem Góðvild fær til sín fólk úr ólíkum áttum sem öll eiga það sameiginlegt að tengjast langveikum eða fötluðum börnum á einhvern hátt og koma til að ræða mikilvæg málefni tengdum þessum málaflokki.