Grænkerið

Grænkerið

By GrænkeriðSociety & Culture
Download on the App Store

Grænkerið episodes

  • Sjókvíaeldi útskýrt

    Í þættinum ræðum við Jón Kaldal, talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins um sjókvíaeldi á Íslandi. 

    Jón rekur sögu þessa iðnaðs hér á landi og við köfum meðal annars ofan í 

    • Umhverfisáhrif laxeldis
    • Áhrif á villtan laxastofn
    • Áhrif á eldisdýrin
    • Efnahagsleg áhrif

    -
    Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf. 


    Intro: Promoe - These walls don’t lie

    1 hr 29 min
  • Afhverju hættir fólk að vera vegan?

    Viðmælandi minn að þessu sinni er Axel Friðriks sem telst nú orðinn reglulegur gestur. Axel er grafískur hönnuður hjá Studio Fin og er ábyrgur fyrir nýja útlitinu á Grænkerinu, sem ég er í skýjunum með. 

    Í þætti dagsins ræðum við Axel um af hverju fólk hættir að vera vegan..   
    Hvaða hindrunum mætir vegan fólk og hvernig getum við stutt við þau? 


    Ef þú fílar þáttinn, skrifaðu endilega review til að hjálpa Grænkerinu að ná til fleirri hlustenda <3


    -
    Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf. 


    Intro: Promoe - These walls don’t lie

    1 hr 1 min
  • Hryllingssaga og tilkynning

    Þessi þáttur átti að fjalla um hrekkjavökuna en hringsnérist í höndunum á tveimur með athyglisbrest og fjallaði nú minnst um það málefni. En hvað með það, gjörið svo vel. 

    Rósa María kíkir í heimsókn eins og svo oft áður og við fórum yfir hvað er á döfinni hjá Grænkerinu. 

    • Eva segir frá raunverulegri hryllingssögu sem hún lenti í á dögunum, 
    • Við ætlum að elda með ykkur fyrir jólin!
    • Við leitum til hlustenda til að finna nafn á jóla-matreiðslu-gleðina sem er framundan
    • World Vegan day er 1. nóvember og við ætlum í vegan pálínuboð


    Þáttur dagsins er í boði Hérastubbs bakarís. 
     Við hvetjum fólk til að gera sér ferð til Grindarvíkur og sjá hvernig alvöru vegan úrval í bakaríi lítur út! Meðal annars er hægt að fá ostaslaufur, snúða, kleinuhringi, kanilkleinur og sérbökuð vínarbrauð. 

    Ef þú vilt styðja við rekstur hlaðvarpsins getur þú nú gert það í gegnum www.buymeacoffee.com/graenkerid. Þinn stuðningur skiptir máli. 


    -
    Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf. 


    Intro: Promoe - These walls don’t lie

    57 min
  • Við þurfum róttækar kerfisbreytingar - Finnur Ricart

    Finnur Ricart Andrason, forseti Ungra umhverfissinna er gestur minn í þætti dagsins.

    Þema þáttarins eru kerfisbreytingar og við beinum kastljósinu að búvörusamningum.  Það hefur aldrei verið mikilvægara að stjórnvöld og aðrir aðrir valdhafar stuðli að því að fæðukerfin okkar séu endurmótuð til að þjóna hagsmunum samfélagsins.

    Þeir styrkir sem ríkið veitir í landbúnað í gegnum búvörusamninga ættu að stuðla að náttúruvernd, loftlagsvernd, dýravelferð og heilsu fólks. Í dag er staðan ekki svo góð en árið 2020 fóru 14,4 milljarðar í búvörusamninga og þá fóru 85% beint í að framleiða mjólk og rautt kjöt.

     
    Ýtið endilega á subscribe eða follow á Grænkerið á ykkar hlaðvarpsveitu. Það hjálpar hlaðvarpinu með sýnileika og tryggir að þú missir ekki af næsta þætti! 

    -
    Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf. 


    Intro: Promoe - These walls don’t lie

    1 hr 7 min
  • Vegan heilsa - Rósa Líf Darradóttir læknir

    Þessi þáttur er NEGLA þó ég segi sjálf frá. 

    Rósa Líf Darradóttir, læknir, grænkeri og aktívisti kom til mín í alveg ótrúlega fræðandi viðtal þar sem við ræddum áhrif plöntumiðaðs mataræðis á heilsu okkar. 

    Hún fór nýlega erlendis á Vegmed, stærstu ráðstefnu plantbased heilbrigðisstarfsfólks í Evrópu.  Hún segir okkur frá ráðstefnunni og við förum um víðan völl til að kafa ofan í þetta víðamikla málefni. 

    Rósa er einstaklega góð í að segja flókna hluti á einföldu mannamáli en við ræddum meðal annars um : 

    • Tengsl mataræðis við sjúkdóma og þá sérstaklega krabbamein og hjarta- og æðasjúkdóma
    • Plöntufæði sem læknisfræðilegt meðferðarúrræði
    • Þurfum við að taka mark á næringarráðleggingum um æskilega eða skaðlega næringu? 
    • Hvað þýðir það að ákveðnar matvörur sé flokkaðar sem skaðlegar eða krabbameinsvaldandi? 



    Þessi þáttur er í boði Kökulist Bakarí en þar er hægt að fá gómsætar kökur með prentuðum myndum og rooooooooooooosalega góðum mini kleinuhringjum sem þú verður eiginlega að prófa.. 

    -
    Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf. 


    Intro: Promoe - These walls don’t lie

    1 hr 42 min
  • HOT TAKES - Vegan edition

    ÚFF.. 

    Í þessum þætti kom Rósa María, meðstofnandi Grænkersins í heimsókn og við tókum fyrir HOT TAKES vegan edition..  Það tók ekki langan tíma fyrir Evu að fara í flækju og ég er ekki frá því að þetta sé ponsu óþægilegt en ég meina þetta er bara á milli okkar.. 

    Minni á að þetta eru okkar skoðanir en það er engin vegan lögregla sem ákveður hvað er rétt og rangt. You do you. 


    Þessi þáttur er í boði Ethique sem framleiðir plastlausar hár- og húðvörur! Inn á hlustendavakt Grænkersins á facebook gefum við tveimur heppnum stútfullan gjafapoka af vörum frá Ethique, dregið verður úr leiknum 24. september

    -
    Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf. 


    Intro: Promoe - These walls don’t lie

    1 hr 13 min
  • Vegan sambönd - Gætiru deitað aðila sem er ekki vegan?

    Gætir þú verið í sambandi með aðila sem er ekki vegan? 
    Þessari spurningu (og mörgum fleiri) reyndi ég ásamt Birtu Ísey og Axel Friðriks að svara í þættinum. 

     Við fókusum á ástarsambönd en komum þó einnig inná dínamík í samböndum milli vina og á milli foreldra og barna. 

    Við fórum yfir hvernig staðan er innan okkar sambanda og í lokin skoðum við einnig hvað hlustendur svöruðu þegar ég spurði ykkur nokkurra sambandsspurninga.


    Þessi þáttur er í boði Ethique. 

    • Ethuiqe framleiðir  sjampó- og hárnæringarkubba ásamt húðvörum en vörurnar eru plastlausar, koma í fallegum, minimalískum umbúðum og eru að sjálfsögðu cruelty free og vegan. 

    Þú færð Ethique meðal annars í stóru Hagkaupsbúðunum, Fjarðarkaup, Reykjavíkurapóteki og í netverslunum hjá Heimkaup, Hagkaup, Beautybox, Beutybar og Fotia. 

    -
    Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf. 


    Intro: Promoe - These walls don’t lie

    1 hr 27 min
  • Vegan brúðkaup - Rósa María

    Í þessum þætti af Grænkerinu fáum við Rósu Maríu, einn af stofnanda Vegan búðarinnar og Jömm í heimsókn. 

    Hlustendur ættu að kannast við Rósu en kom einnig að stofnun Grænkersins og er sannkallaður frumkvöðull . Hún er einnig heljarinnar matgæðingur. Hún gifti sig í sumar og hélt að sjálfsögðu snar-vegan veislu innblásna af Jömm veitingum og sænskum snafsvísum. 

    Við fórum yfir veitingar, vín, fatnað og svo auðvitað félagslega þáttinn. Við ræðum hvernig non-vegan fjölskyldu og vinum fannst að mæta í vegan brúðkaup? Hvað er ekki vegan við vín? Hverju þarf að spá í varðandi brúðarkjól og spariföt?

    Intro: Promoe - These walls don't lie



    -
    Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf. 


    Intro: Promoe - These walls don’t lie

    49 min
  • Á vegan fólk að bjóða upp á kjöt í veislum?

    Í þætti dagsins fær Eva hana Birtu Ísey í heimsókn en  Birta situr í stjórn Samtaka grænkera og segir okkur m.a. frá Vegan festivali sem verður haldið 20 ágúst 2023. 

    Eva byrjar á að segja Birtu frá  brúðkaupi sem hún fór í um daginn en þar var ALLT VEGAN!
    Hún segir henni einnig frá samræðum sem hún átti við non-vegan kunningja fyrir skömmu.  Hann vildi meina að vegan fólk ætti að sjálfsögðu að bjóða upp á kjöt máltíð fyrir þau sem borða kjöt í veislum hjá sér, rétt  eins og "allir" taka tillit til vegan fólks. 

    Við komum meðal annars inná 

    • Er það sambærilegt fyrir "kjötætur" að bjóða upp á eina vegan máltíð og að biðja vegan manneskju að bjóða upp á máltíð með dýraafurðum í?
    • Er tekið svona mikið tillit til vegan fólks?
    • Er svona erfitt fyrir fólk að borða eina vegan máltíð?


    Ef þú hefur gaman að þættinum hver ég þig til að ýta á follow eða subscribe á þinni hlaðvarpsveitu. Þannig heldur appið utan um gamla og nýja þætti og þú hjálpar í leiðinni hlaðvarpinu að ná til fleira fólks

    -
    Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf. 


    Intro: Promoe - These walls don’t lie

    56 min
  • Er hægt að ná árangri í líkamsrækt á vegan mataræði? - Áslaug Guðný Unnsteinsdóttir einkaþjálfari

    Í þættinum ræðir Eva við Áslaugu Guðný Unnsteinsdóttur einkaþjálfara um allt sem viðkemur vegan líkamsrækt. Við förum yfir raunhæfar væntingar til mataræðis og þjálfunar og reynum að svara eftirfarandi spurningum: 

    • Er hægt að telja macros á vegan mataræði
    • Hvaða næringarsjónarmið þarf vegan fólk í líkamsrækt að spá í
    • Hvaða vegan matur er próteinríkur og hvernig er hægt að koma honum inn í máltíðir dagsins
    • Fæðubótaefni -þurfum við þau?


    Þetta og meira til finnur þú í þættinum og nánari upplýsingar má finna á samfélagsmiðlum Grænkersins. 

    Ef þú hefur gaman að þættinum hver ég þig til að ýta á follow eða subscribe á þinni hlaðvarpsveitu. Þannig heldur appið utan um gamla og nýja þætti og hjálpar í leiðinni hlaðvarpinu að ná til fleirri hlustenda. Þú ræður en takk samt!


    Intro:  Promoe - These walls don't lie

    -
    Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf. 


    Intro: Promoe - These walls don’t lie

    1 hr 36 min

About Grænkerið

From the publisher's feed

Velkomin  í Grænkerið, hlaðvarpið sem fjallar um alla króka og kima veganisma og snertir á þeim málefnum sem grænkerar upplifa dags daglega. Talað er á mannamáli út frá raunverulegum aðstæðum…