
Sign up to save your podcasts
Or


Hulda Jónsdóttir Tölgyes, sálfræðingur, grænkeri og aktivisti kom í viðtal í Grænkerið og ræddu þær Eva um hvernig aktivismi hefur áhrif á geðheilsu þeirra sem hann stunda.
Í þættinum köfum við ofan í:
Ef þú hefur gaman að þættinum hver ég þig til að ýta á follow eða subscribe á þinni hlaðvarpsveitu. Þannig heldur appið utan um gamla og nýja þætti og hjálpar í leiðinni hlaðvarpinu að ná til fleirra. Þið ráðið, takk samt!
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.
Intro: Promoe - These walls don’t lie
Gestur þáttarins er Valgerður Árnadóttir formaður Samtaka grænkera, varaþingmaður Pírata og dýraverndunar-aktívisti.
Vala hefur lagt áherslu á að tala máli dýranna í pólitísku samhengi og hefur farið fremst í mótmælum og aktívisma í kringum hvalveiðar Íslendinga. Núna nýlega leiddi hún fimm samtök saman undir átakinu Hvalavinir til að berjast gegn hvalveiðum með því að skipuleggja mótmæli, halda umræðunni lifandi og þrýsta á stjórnmálafólk.
Í þessum þætti af Grænkerinu ræða þær Eva um vegan aktívisma og kafa ofan í:
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.
Intro: Promoe - These walls don’t lie
Þrír mánuðir frá síðasta þætti en hér erum við komin aftur!
Eva er að útskrifast úr viðskiptafræði og nú fer Grænkerið á flug eftir smá vor-frí. Birta Ísey og Axel Friðriks kíktu í heimsókn og ræddu þau um stöðuna á vegan málum á Íslandi.
*Eva segir þeim að hún hafi borðað bæði kjöt og egg á Tenerife (óvart).. Hvað þýðir það.. Er hún ennþá vegan?
Við fórum einnig yfir fréttamola úr vegan samfélaginu.
*Vegan búðin skiptir um eigendur
*Vegan aktívistar hafa haldið uppi umræðu um hvalveiðar og hafa staðið fyrir tveimur mótmælum.
*ESA (eftirlitsstofnun EFTA) skilar áliti um að Ísland brjóti lög um verndun dýra sem notuð eru í vísindaskyni með blóðtöku úr fylfullum hryssum. Skömm fyrir matvælaráðuneytið sem er búið að sveigja og beygja lög fyrir hagsmuni eins fyrirtækis.
*Við endum síðan þáttinn á jákvæðri íþróttafrétt aldrei þessu vant.
Intro: Promoe - These walls don’t lie
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.
Intro: Promoe - These walls don’t lie
Rósa frá Vegan búðinni settist niður með mér og við fórum yfir hvernig er hægt að halda vegan barnaafmæli. Hversu mikið vesen er að veganæsa afmæliskökur og klassíska veislurétti? Þátturinn er miðaður að afmælum fyrir börn á leik og grunnskólaaldri en við deilum hvað við höfum sjálfar boðið upp á í barnaafmælum og gefum einföld ráð til að afmælismaturinn slái í gegn.
Þátturinn er í boði Vegan búðarinnar en þau eru komin með hálfan gang tileinkaðann bökunarvörum en þar færðu m.a bæði vegan matarlit og kökuskraut 🎂
Intro: Promoe - These walls don’t lie
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.
Intro: Promoe - These walls don’t lie
Veganúar special!
Birta Ísey og Axel Friðriks frá Samtökum grænkera settust niður með mér og við ræddum um hvað við hefðum viljað vita áður en við gerðumst vegan..
Við fórum yfir hvernig það er að lifa með veganisma, vinasambönd og almenn samskipti við annað fólk (sem er ekki vegan).
Þátturinn er í boði Vegan búðarinnar og veitingastaðarins Monkey’s.
Intro: Promoe - These walls don’t lie
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.
Intro: Promoe - These walls don’t lie
Birta Ísey og Axel Friðriks frá stjórn Samtaka grænkera komu í spjall til mín um hvað er búið að gerast í Veganúar og hvað er framundan.
Nánari upplýsingar um allt tengt Veganúar má finna á www.veganuar.is
Við kynnum inn nýjan samstarfsaðila ásamt gjafaleik sem var að fara í loftið! Farið inná Instagram reikning Grænkersins til að taka þátt og sjá nánari upplýsingar um leikinn.
Þátturinn er í boði Vegan búðarinnar og veitingastaðarins Monkey’s.
Intro: Promoe - These walls don’t lie
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.
Intro: Promoe - These walls don’t lie
Gleðilegt nýtt ár og velkomin í Veganúar!
Axel F Friðriksson frá Samtökum grænkera kom í heimsókn og sagði mér allt frá Veganúar. Hverjir taka þátt? Afhverju tekur fólk þátt? Um hvað snýst Veganúar?
Við fórum yfir hvaða viðburðir verða settir á stokk ásamt því sem við tókum saman nokkra "topp 5" lista af okkar uppáhaldsvörum til að gefa hlustendum hugmyndir um góðan vegan mat í janúar!
Talað er um Veganúar sérstaklega fram að mín 43 og þar hefst topp fimm lestin.
Þátturinn er í boði Vegan búðarinnar
Intro: Promoe - These walls don’t lie
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.
Intro: Promoe - These walls don’t lie
Þó mörgum finnist erfitt að trúa því er stundaður verksmiðjubúskapur á ýmsum dýrategundum á Íslandi. Dýrunum er haldið í miklum þéttleika og beitt er tilteknum aðferðum til að auka framleiðslu umfram náttúrulega getu umhverfisins. Velferð dýranna er þannig fórnað fyrir hámarks hagnýtingu afurða.
"Það hefur aldrei verið eins samfélagslega viðurkennt að dýr eru skyni gæddar verur, að það eigi að fara vel með þau og að þau njóti ákveðna réttinda innan lagalegs ramma. En á sama tíma höfum við aldrei farið jafn illa með dýr í matvælaiðnaði".
Rósa Líf Darradóttir, læknir og dýravinur er í stjórn Samtaka um dýravelferð. Hún kom í heimsókn og sagði frá herferðinni sem samtökin hrintu af stað undir heitinu "Styður þú verksmiðjubúskap þessi jól?" Þar sem þau vekja athygli á aðstæðum svína í matvælaiðnaði á Íslandi.
Hún útskýrir hvernig flestum svínum á Íslandi er slátrað með grimmilegum hætti í gasklefum og hvetur fólk til að velja með veskinu og styðja ekki við slíka meðferð á dýrum.
Þessi þáttur er í boði Vegan búðarinnar og jömm
Intro: These walls don't lie - Promoe
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.
Intro: Promoe - These walls don’t lie
Rósa frá Vegan búðinni kom í heimsókn til Evu og þær fóru
hvernig það er að vera eini grænkerinn í jólaboðinu. Hvernig kemur man sér út úr óþægilegum samræðum við ættingja? Má afþakka boð í jólasamkomu þegar ekki verður neitt vegan í boði?
Þær reyna að svara þessu ásamt því að koma inná þeirra uppáhalds jólamat og gefa tips um hvernig er hægt að galdra fram gómsætar vegan máltíðir.
Þátturinn er í boði Vegan búðarinnar og Jömm.
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.
Intro: Promoe - These walls don’t lie
Ert þú vegan og ætlar að halda partý?
Ertu að fá vegan manneskju í partý og vilt bjóða upp á vegan veitingar?
WE GOT YOU.
Eva fagnaði þrítugsafmælinu sínu um daginn og deilir hvað hún fer í gegnum þegar plönuð er vegan veisla! Er allt áfengi vegan? Er snakk vegan? Við förum yfir helstu atriðin sem koma að vegan veisluhöldum og reynum að gefa hjálpleg ráð fyrir næsta partý.
Þátturinn er í boði Vegan búðrinnar og Jömm
Intro: Promoe - These walls don’t lie
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.
Intro: Promoe - These walls don’t lie
From the publisher's feed
Velkomin í Grænkerið, hlaðvarpið sem fjallar um alla króka og kima veganisma og snertir á þeim málefnum sem grænkerar upplifa dags daglega. Talað er á mannamáli út frá raunverulegum aðstæðum…