Grandi101

Grandi101

By Grandi101Health & Fitness
Download on the App Store

Grandi101 episodes

  • #21 Grandi101 - Unnar Már osteópati
    Unnar Már segir frá sjálfum sér og hvers vegna hann fór í sitt Osteópata nám í Svíþjóð. Hann talar einnig um hvað Osteópati er og við förum yfir víðan völl saman í skemmtilegu hlaðvarpi.
    Þáttastjórnandi: Númi Snær Katrínarson
    Hljóðmaður: Sveinbjörn Hafsteinsson
    1 hr 2 min
  • #19 Guðný Hjaltadóttir - Að æfa á meðgöngu á Granda101
    Þessi þáttur er unninn í samstarfi við H verslun.
    Guðný Hjaltadóttir hefur verið meðlimur á Granda101 síðan 2017. Hún er að klára sína fyrstu meðgöngu og hefur verið að æfa áfram út á Granda alla meðgönguna. Í hlaðvarpinu segir hún hlustendum frá því hvernig hún nálgaðist upplýsingar um hvernig hún þyrfti að aðlaga æfingar sínar eftir því sem leið á meðgönguna án þess að hætta að mæta í hóptímanna á Granda101.
    Þáttastjórnandi: Valdís Bjarnadóttir
    Hljóðmaður: Eiríkur Sigurðarson
    42 min
  • #18 Eygló Egilsdóttir - Af hverju að fasta?
    Eygló Egilsdóttir er eigandi Metabolic Reykjavíkur og fyrirtækisins Jakkafatajóga. Eygló er einnig búin að prófa sig áfram í því að fasta í styttri og lengri tíma. Hún segir frá því í þættinum af hverju hún byrjaði að fasta, hvað gerist í líkamanum þegar við föstum og hvaða heilsufarslegu ávinningar gæti hlotist af því að stunda föstur reglulega. Einnig er farið yfir það að æfa á fastandi maga sem og góð ráð þegar byrjað er að feta sín fyrstu spor í því að fasta.
    Þáttastjórnandi: Valdís Bjarnadóttir
    Hljóðmaður: Eiríkur Sigurðarson
    52 min
  • #17 Þóra Guðrún Jónsdóttir - Úr sófanum í fastagest í WOD kl.06!
    Þóra Guðrún Jónsdóttir mætti á fyrstu æfingu sína daginn þegar Grandi opnaði. Þá hóf hún vegferð sína að heilbrigðari lífstíl þar sem hún hafði aldrei stundað reglulega hreyfingu. Þóra fer yfir hvernig það er að taka ákvörðunina að byrja að hreyfa sig og hvernig það hefur haft áhrif á líf hennar og fjölskyldu hennar síðan.
    Þáttastjórnarndi: Valdís Bjarnadóttir
    Hljóðmaður: Eiríkur Sigurðarson
    33 min
  • #15 Númi - Aðlaganir á Granda101 v/Covid, CREW101 og Functional training þjálfaranámskeið.
    Númi, einn af eigendum Granda101, er gestur þáttarins. Hann fer yfir Covid tímabilið, hvaða takmarkanir stöðin hefur þurft aðlaga sig að og hvernig sumarið hefur verið á Granda. Hann fer yfir hvað er framundan hjá Granda í haust og breytingar á stundatöflu.
    Í þættinum er einnig farið yfir hugtakið CREW101 og þau þjálfaranámskeið sem Númi hefur verið að þróa fyrir functional training.
    Þáttastjórnandi: Valdís Bjarnadóttir
    Hljóðmaður: Eiríkur Sigurðarson
    30 min
  • #13: Gestur Pálma - Lögmál frammistöðu
    Gestur Pálmason hefur s.l. 18 ár unnið við löggæslu- og öryggisstörf og er fyrrverandi meðlimur sérsveitar ríkislögreglustjóra. Hann hefur stýrt alþjóðlegum löggæslu- og öryggistengdum verkefnum og komið að kennslu og þjálfun á því sviði. Gestur hefur tekið virkan þátt í og stýrt teymum alþjóðlegra sérfræðinga á sviði öryggis- og löggæslu til að takast á við sífellt flóknara umhverfi. Þá hefur hann umbreytt fjölbreyttri reynslu yfir í ástríðu við að þjálfa einstaklinga og teymi í öllum geirum í átt að aukinni getu og til að takast á við áskoranir með sérstaka áherslu á virkni og ákvarðanatöku undir álagi.
    Gestur hefur starfað sem stjórnenda- og teymisþjálfari hjá breska þjálfunarfyrirtækinu Complete Coherence s.l. og þannig starfað með mörgum af stærstu fyrirtækjum heims.
    Þáttastjórnandi: Eyþór Ingi Einarsson
    Hljóðmaður: Eiríkur Sigurðarson
    52 min
  • #12: Erlendur Egils - Sálfræðilegir þættir í íþróttum og hreyfingu
    Erlendur (Elli) Egilsson starfar sem sálfræðingur og vinnur meðal annars með íþróttafólki. Í þættinum spjalla Elli og Eyþór um sálfræðilega þætti sem tengjast íþróttum og hreyfingu almennt. Elli hefur verið meðlimur Granda101 nánast frá opnun og kemur hann inná upplifun sína á stöðinni.
    Þáttastjórnandi: Eyþór Ingi Einarsson
    Hljóðmaður: Eiríkur Sigurðsson
    46 min

About Grandi101

From the publisher's feed

Grandi101 er heilsu- og líkamsræktarstöð staðsett á Fiskislóð 49-51, 101 Reykjavík