Gull og grænir skógar

Gull og grænir skógar

Download on the App Store

Gull og grænir skógar episodes

  • Garðurinn, skipulag og limgerðin stór og smá

    Í þættinum er fjallað um hlutverk og skipulag limgerða. Limgerði hafa lengi verið nýtt til að skipta upp landi, stýra umferð, fela svæði og prýða. Rætt er um limgerði í sögulegu samhengi, völundarhús og svo hinn fallegustu og eftirsóknarverðustu limgerði. Fjallað er um tegundir sem henta í limgerði hér á landi. Í þættinum er einnig rætt um stefnur og strauma úr garðlistasögunni í samhengi við skipulag garða og þá stíla sem hafa haft áhrif á hvoru tveggja heimsfræga garða og hinn almenna garðyrkjumann. 

    Viðmælendur: Þráinn Hauksson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir. 

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    56 min
  • Garðagróður frá Kína: Fjölbreyttar kínverskar plöntur, fræsöfnun Joseph Rock og framtíðarhljómur

    Í þættinum er haldið í ferðalag til Kína út frá vel þekktum garðagróðri á Íslandi. Kastljósinu er beint sérstaklega að fjölæringum, gulbambus, reynitegundum og runnum frá Kína. Fjallað er um fræsöfnunarleiðangra Joseph Rock sem varði 27 árum í að ferðast um Kína og safna fræjum og gögnum en reynir ‘Joseph Rock’ ber heiti hans. Rætt er um stærsta skógrækta- og uppgræðslurverkefni heims, „The great green wall of China“. Einnig kemur næsthæsta tré í heimi við sögu og hið sögufræga musteristré – Ginkgo biloba. Að lokum er leitast við að spá fyrir um framtíðina út frá kínverskum tækninýjungum. 


    Viðmælendur: Brynhildur Magnúsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson og Steinar Björgvinsson. 

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    55 min
  • Skjól og ætur garðagróður

    Í þættinum er fjallað um um skjól, skjólbelti og skjólveggi – en einnig um fjölbreyttar tegundir garðagróðurs sem má leggja sér til munns. Gefin eru ráð varðandi skjólbeltagerð og rætt við sérfræðinga sem þekkja ætan garðagróður það vel að þeir geta tínt upp í sig mismunandi tegundir eftir þörfum. Rætt er um brautryðjendur í útiræktun, flautur úr hvönn, æt sumarblóm, æta fjölæringa svo og runna og tré sem gefa uppskeru sem ýmist má tína beint upp í sig, steikja í orly-deigi, sulta eða nýta sem skraut á kökur eða í salat. 


    Viðmælendur eru Auður I. Ottesen, Auður Kjartansdóttir og Steinar Björgvinsson. Flautuleikur: Eyjólfur Eyjólfsson. 

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    55 min
  • Jarðsögulegt samhengi plantna: súrefnisbyltingin, viðarvöxtur, blómgun og sveppir

    Í ellefta þætti af Gulli og grænum skógum er fjallað um tilkomu planta og þróun þeirra í jarðsögulegu samhengi. Fjallað er um ýmis einkenni sem plöntur hafa þróað með sér allt frá súrefnisbyltingunni fyrir meira ein tveimur milljörðum ára. Sérstök áhersla er lögð á þróun plönturíkisins á tímum risaeðlanna en á þeirra tíma kom viðarvöxtur og blómgun til sögunnar. Ljósi er varpað á frumstæðar tegundir og þróaðar tegundir plantna. Þróunarsaga planta er þá einnig sett í samhengi við þróunarsögu sveppa og dýra. Rætt er við sérfræðinga á sviði jarðsögu og jarðfræði, grasafræði og garðyrkju.


    Viðmælendur: Brynhildur Magnúsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson og Steinar Björgvinsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    55 min
  • Lyngrósir og brautryðjendastarf Óla í Nátthaga í kjölfar fræsöfnunarleiðangursins 1985

    Í maímánuði er tilvalið að staldra við krúnudjásnið í garðinum, lyngrósir eða rhododendron. Rætt er við Ólaf Sturlu Njálsson eða Óla í Nátthaga um lyngrósir sem hann hefur ræktað frá ungingsárum. Þá er rætt um brauðryðjendastarf Óla þegar kemur að þeim tegundum sem komust á legg hér á landi eftir stóra fræsöfnunarleiðangurinn til Alaska 1985. Um er að ræða tegundir sem margar þykja vera sjálfsagður staðalbúnaður á gróðrarstöðvum í dag, svo sem ýmsa úrvalskóna af alaskavíði, jörfavíði, sitkavíði og fjöldi skrautrunnayrkja eins og hélurifs 'Rökkva' og sveighyrnir 'Roði' svo örfá dæmi séu tekin. Undir lok þáttar er nokkuð ítarlegt yfirlit gefið yfir alla þá klóna sem Óli hlúði að og valdi til framleiðslu. 


    Viðmælendur eru Ólafur Sturla Njálsson, Steinar Björgvinsson og Guðríður Helgadóttir. 

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    54 min
  • Stofuplöntur: umhirða, tengsl og sögulegt samhengi

    Í þessum níunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um stofuplöntur sem stofustáss, ástríðu, minjagripi, nytjaplöntur og fleira. Rætt er um umhirðu stofuplanta s.s. áburðargjöf og umpottun. Fjallað er um stofuplöntur sem plumma sig á vinnustöðum. Staldrað er sérstaklega við vinsældir kentíapálmans á Viktoríutímabilinu og uppgötvun Wardian-kassas sem gaf kost á að flytja lifandi gróður heimshorna á milli. Að lokum er minnst á plötuna Mother Earth's Plantasia sem út kom 1976, sem tónlist fyrir stofuplöntur og þá sem elska þær.


    Viðmælendur eru Sverrir Gauti Svavarsson, Guðríður Helgadóttir og Steinar Björgvinsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    52 min
  • Garðyrkjuskólinn, Bananahúsið og gróður sem gjafir

    Í þessum áttunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um Garðyrkjuskólann Reykjum, mikilvægi námsins og þær fágætu tegundir sem þar má finna – sérstaklega í Bananahúsinu. Rætt er við núverandi og fyrrverandi nemendur ásamt brautarstjóra garðyrkjubrauta. Vöngum er velt yfir gróðri í formi gjafa með þátttöku Vilmundar Hansens garðyrkju- og þjóðfræðings. 

    Viðmælendur eru Guðríður Helgadóttir, Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Vilmundur Hansen. 

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    53 min
  • Gróður frá suðurhveli jarðar, stofugreni og vendingar á Nýja–Sjálandi.
    Í þættinum er ferðast um suðurhöf í gegnum íslenskan garðagróður sem á heimkynni sín á suðurhveli jarðar – í Argentínu, Síle, Ástralíu og Nýja–Sjálandi. Sérstaklega er fjallað um apahrelli og sneplur. Þá er einnig rætt um stofuplöntuna stofugreni frá Norfolk-eyju sem er að segja má í tísku. Einnig er kafað ofan í nýlegar ákvarðanir Nýsjálendinga um að veita vissum náttúrufyrirbærum þar í landi réttindi til jafns við einstaklinga. Fjallað er um þau náttúrutengsl sem þær ákvarðanir endurspegla og hvaðan þau koma. 

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    55 min
  • Páskahretið 9. apríl 1963 og önnur nýlegri áföll
    Í þættinum er leitast við að kafa ofan í afleiðingar páskahretsins mikla 9. apríl 1963 sem markar viss kaflaskil í gróðursögu landsins. Í kjölfarið er rætt um nýlegri áföll, eins og til dæmis saltrokið í maí 2023 og afleiðingar þess. Að lokum er kastljósinu beint að hérlendum skógarbrunum og afleiðingum þeirra. Viðmælendur eru Halldór Sverrisson, Steinar Björgvinsson og Guðríður Helgadóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    53 min

About Gull og grænir skógar

From the publisher's feed

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.

Í þáttunum úr smiðju Rásar 1 er fræjum sáð og fróðleik um hverskyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði - og…