Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Hlaðvarp Hæglætishreyfingarinnar. Hæglætishreyfingin er hreyfing fólks sem hefur tileinkað sér eða hefur áhuga á að tileinka sér hæglæti (e. slow living, einnig simple-living). Hæglæti er svar við hra... more
FAQs about Hæglætishlaðvarpið:How many episodes does Hæglætishlaðvarpið have?The podcast currently has 24 episodes available.
June 01, 20214. þáttur - Sólveig María og Guðný Valborg - Samvera, náttúran, útivera og hæglætiÍ 4. þætti Hæglætishlaðvarpsins spjalla Sólveig María og Guðný Valborg saman um hæglætislífsstílinn og hvernig þær hafa fléttað hann inn í sín líf. Þær leggja báðar áherslu á samveru fjölskyldna, útiveru og náttúrutengingu í hægu huglægu tempói. Þær útskýra hvaða gildi og þýðingu það hefur fyrir þær í því hraða nútímasamfélagi sem við búum í....more40minPlay
May 01, 20213. Þáttur - Hæglæti og samskipti - Nína og Ágústa MargrétÍ 3. þætti Hæglætishlaðvarpsins fjalla Nína Jónsdóttir og Ágústa Margrét Arnardóttir um Hæglæti og samskipti. Nína, sem er búsett á Nýja-Sjálandi, er mjög áhugasöm um hæglætisuppeldi og umhverfismál. Hún smíðar leikföng í tómstundum sínum og fjölskyldan nýtur lífsins í fallegri náttúrunni. Nína er með instagram reikninginn @the.slow.living.mama. Ágústa Margrét býr ásamt fjölskyldunni sinni á Djúpavogi, sem er Cittaslow bær eða hæglætisbær. Hún hefur líka mikinn áhuga á hæglætisuppeldi og virðingarríkum samskiptum. Hún stundar gjarnan ævintýralega útivist í fögru umhverfi Austurlands og annars staðar. Ágústa heldur úti instagram reikningunum @icelandic.adventure.family og @agustamargretmarkthjalfi. Nína og Ágústa Margrét ræða saman um samskipti sem þær eiga við sig, börnin sín og maka. Þær deila heilmikilli visku um sínar uppgötvanir um hæglætið. Hæglætishreyfingin er með heimasíðuna www.hæglæti.is....more1h 11minPlay
March 31, 20212. þáttur - Hæglæti og streita - Ingibjörg-og-SólveigÍ þessum 2. þætti Hæglætishlaðvarpsins fjalla Ingibjörg Ólafsdóttir og Sólveig María Svavarsdóttir um Hæglæti og streitu, ofurmennsku og kulnun, en þær eru báðar í bata eftir kulnun. Þær fjalla meðal annars um það hvernig hæglæti getur verið gagnlegt til að fyrirbyggja kulnun eða ofstreitu eða til að ná bata?...more38minPlay
February 28, 20211. þáttur. Hugmyndafræði Hæglætishreyfingarinnar, Þóra og SólveigÍ þessum fyrsta hlaðvarpsþætti Hæglætishreyfingarinnar spjalla Þóra Jónsdóttir og Sólveig María Svavarsdóttir um hugmyndafræði Hæglætishreyfingarinnar og ávinning hæglætislífsstíls í hraða samfélagsins. Þakka þér fyrir að hlusta. Fylgdu okkur endilega á facebook og Instagram og gakktu til liðs við hópinn Hæglætishreyfingin á facebook. Heimasíðan okkar er www.haeglaeti.is...more41minPlay
FAQs about Hæglætishlaðvarpið:How many episodes does Hæglætishlaðvarpið have?The podcast currently has 24 episodes available.