
Sign up to save your podcasts
Or


Pólitíkin 61. þáttur
Umsjón: Halla Sigrún Mathiesen
Viðmælendur: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Sigurgeir Jónasson og Ingveldur Anna Sigurðardóttir. Þátturinn er tekinn upp á flokksráðs- og formannafundi flokksins 28. ágúst 2021.
Lýsing: Pólitíkin er umræðuþáttur um stjórnmál og helstu samfélagsmál á hverjum tíma. Þátturinn er á vegum Sjálfstæðisflokksins og leitar eftir sjónarmiðum sjálfstæðisfólks en við leitum líka fanga utan flokksins, eins og málefnið býður upp á hverju sinni.
Þáttur frá 28. ágúst 2021.
Pólitíkin 60. þáttur
Umsjón: Guðfinnur Sigurvinsson
Viðmælendur: Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson. Þátturinn er tekinn upp á flokksráðs- og formannafundi flokksins 28. ágúst 2021.
Lýsing: Pólitíkin er umræðuþáttur um stjórnmál og helstu samfélagsmál á hverjum tíma. Þátturinn er á vegum Sjálfstæðisflokksins og leitar eftir sjónarmiðum sjálfstæðisfólks en við leitum líka fanga utan flokksins, eins og málefnið býður upp á hverju sinni.
Þáttur frá 28. ágúst 2021.
Pólitíkin 62. þáttur
Umsjón: Guðfinnur Sigurvinsson
Viðmælendur: Bjarni Benediktsson, formaður Sjáflstæðisflokksins. Þátturinn er tekinn upp á flokksráðs- og formannafundi flokksins 28. ágúst 2021.
Lýsing: Pólitíkin er umræðuþáttur um stjórnmál og helstu samfélagsmál á hverjum tíma. Þátturinn er á vegum Sjálfstæðisflokksins og leitar eftir sjónarmiðum sjálfstæðisfólks en við leitum líka fanga utan flokksins, eins og málefnið býður upp á hverju sinni.
Þáttur frá 28. ágúst 2021.
Sjötti þáttur VELFERÐIN, þættir um velferðar- og heilbrigðismál.
Læknar þurfa að sóa dýrmætum tíma fyrir framan tölvuskjáinn
Þorkell Sigurlaugsson, formaður velferðarnefndar ræðir við Davíð Þórisson, lækni á bráðamóttöku Landspítala og annan af höfundum hugbúnaðarins LEVIOSA.
Í þættinum lýsir Davíð því hversu mikill tími, oft meira en 50%, er varið fyrir framan tölvuskjáinn, við skráningar á gögnum og sækja gögn, í stað þess að sinna sjúklingnum. Verulega skortir á fjárfestingu í innviðum á sviði upplýsingakerfa þar með talið stafrænna lausna á Landspítala. Gamaldags upplýsingakerfi og bútasaumur við fjölmörg önnur kerfi, er lýsandi dæmi um óhagkvæmni í rekstri spítalans.
Davíð veit um hvað hann er að tala, því hann er sérfræðilæknir á bráðadeild Landspítalans í Fossvogi. Hann stofnaði fyrirtæki ásamt frænda sínum Matthíasi Leifssyni hagfræðingi, sem er að þróa hugbúnaðinn LEVIOSA sem gæti umbylt allri skráningu hjá heilbrigðisstofnunum. Dæmi um nýsköpunarmöguleika innan heilbrigðiskerfisins.
Davíð er mikill áhugamaður um forritun, en hann valdi frekar í læknisfræðina en forritun, því honum hugnaðist betur að vera í kringum fólk en tölvuskjái í vinnunni. Svo kom á daginn að hann ver oft meira en 50% fyrir framan tölvuskjái í vinnunni.
Mjög áhugavert viðtal við Davíð sem opnar augu áhorfandans fyrir þeim tækifærum sem eru í hagræðingu innan Landspítala og einnig til útflutnings á hugbúnaði og þekkingu á sviði heilbrigðisvísinda.
Pólitíkin 59. þáttur
Umsjón: Guðfinnur Sigurvinsson
Viðmælandi: Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs m.a. um áskoranir vinnumarkaðar með auknu framboði háskólamenntaðs starfsfólks og afleiðingar af því m.a. á launaþróun.
Lýsing: Pólitíkin er umræðuþáttur um stjórnmál og helstu samfélagsmál á hverjum tíma. Þátturinn er á vegum Sjálfstæðisflokksins og leitar eftir sjónarmiðum sjálfstæðisfólks en við leitum líka fanga utan flokksins, eins og málefnið býður upp á hverju sinni.
Þáttur frá 9. ágúst 2021.
Fimmti þáttur um VELFERÐINA; þættir um heilbrigðis- og velferðarmál
Hvers vegna þurfum við nýtt geðheilbrigðissjúkrahús ?
Í þessum fimmta þætti ræðir Þorkell Sigurlaugsson við Nönnu Briem, forstöðumann geðheilbrigðisþjónustu Landspítala.
Á aðalfundi landsamtakanna Spítalinn okkar www.spitalinnokkar.is. flutti Nanna áhugaverðan fyrirlestur m.a um húsnæðismál geðþjónustu Landspítala. Þorkell fékk Nönnu til að renna yfir það helsta og nokkrar glærur þar sem hún fjallaði m.a. um húsnæðismál.
Fyrst fór Nanna yfir umsvif geðþjónustu Landspítala bæði hvað varðar þjónustu almennt, fjölda sjúklinga o.fl., helstu starfsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og lýsti hún því hvernig húsnæði geðdeildar, hvort sem er á Kleppi eða við Hringbraut, er komið til ára sinna og hvernig staðan er hjá nágrannaþjóðunum hvað þetta varðar. Tók hún sem dæmi, áhugaverðar teikningar af nýjum geðspítölum erlendis. Viðhorfið til húsnæðismála og reksturs er talsvert öðru vísi í dag en var fyrir nokkrum áratugum. Meiri áhersla er lögð á umhverfið, fjölbreytta aðstöðu, hreyfingu og aðstöðu fyrir fjölskylduna og gesti.
Fram kom hjá Nönnu að hún hefur áhyggjur af stöðunni, bæði til skemmri og lengri tíma, þá sérstaklega hvað varðar húsnæðismálin. Áhugaverður þáttur með góð skilaboð inn í stefnumótun Sjálfstæðisflokksins í velferðarmálum.
Þáttur frá 15. júlí 2021.
Gjallarhornið 13. þáttur
Viðmælandi: Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri Samgangna.
Umsjón: Birta Karen Tryggvadóttir, stjórnarmaður í Heimdalli.
Lýsing: Gjallarhornið er umræðuþáttur þar sem rætt er um stjórnmálaleg málefni á mannamáli, oft ásamt góðum gestum.
Þáttur frá 28. júní 2021.
Þátturinn á YouTube.
Velferðin 4. þáttur
Umsjón: Þorkell Sigurlaugsson
Viðmælandi: Dr. Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir.
Lýsing: Velferðin er þáttur á vegum velferðarnefndar Sjálfstæðisflokksins. Í þættinum verður fjallað um velferðarmál út frá stefnu Sjálfstæðisflokksins við ýmsa aðila.
Þáttur frá 25. júní 2021.
Þátturinn á YouTube.
Pólitíkin 58. þáttur
Umsjón: Ingvar P. Guðbjörnsson
Viðmælandi: Guðrún Hafsteinsdóttir, nýr oddviti sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi um sínar áherslur og helstu mál sem brenna á í Suðurkjördæmi.
Lýsing: Pólitíkin er umræðuþáttur um stjórnmál og helstu samfélagsmál á hverjum tíma. Þátturinn er á vegum Sjálfstæðisflokksins og leitar eftir sjónarmiðum sjálfstæðisfólks en við leitum líka fanga utan flokksins, eins og málefnið býður upp á hverju sinni.
Þáttur frá 24. júní 2021.
Þátturinn á YouTube.
Velferðin 3. þáttur
Umsjón: Þorkell Sigurlaugsson
Viðmælendur: Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstjóri í Hveragerði og Haraldur Benediktsson, alþingismaður og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis.
Lýsing: Velferðin er þáttur á vegum velferðarnefndar Sjálfstæðisflokksins. Í þættinum verður fjallað um velferðarmál út frá stefnu Sjálfstæðisflokksins við ýmsa aðila.
Þátturinn var tekinn upp 28. maí 2021.
Þátturinn á YouTube.
From the publisher's feed