
Sign up to save your podcasts
Or


Hólmsteinn Bjarni Birgirsson er nýjasti gestur Hampkastsins.
Hólmsteinn eða Steini eins og hann er kallaður greyndist fyrir nokkrum árum rétt rúmlega fertugur með ólæknandi taugahrörnunarsjúkdóm og slitigt sem smátt og smátt mun koma honum í hjólastól. Í viðtalinu fer Steini yfir það sem eina sem hefur linnað þær kvalir sem sjúkdómnum fylgja en það er CBD og THC rík olía og RSO sem hann notar á kvöldin. Áhugavert viðtal þar sem vanmáttur heilbrigðiskerfisins í þessum verkjastillingarmálaflokk kemur skýr í ljós.
Þórarinn Ævarsson fyrrum framkvæmdarstjóri IKEA og kraftkarakter kom í Hampkastið og ræddi við Gunnar Dan Wiium og kraftaverkamátt RSO olíunar og reynslu sína og vitundarvakningu með hjálp hugvíkkandi nátturuefna.
Meta Pahernik flutti hingað til lands ásamt eiginmanni sínum, Jurij, fyrir fáeinum árum en í heimalandinu Slóveníu ræktuðu þau hamp á bóndabæ sínum. Hjónin flytja til landsins slóvensk matvæli auk þess sem Meta framleiðir heilsuvörur úr hampi undir heitinu Jara. Meta er viðmælandi í nýjum þætti HAMPKASTSINS, umræðuþætti Hampfélagsins, þar sem hún rekur sögu sína og hvernig hampurinn kom inn í líf hennar.
Áhuginn á hamprækt kviknaði hjá Metu á öðru ári í námi sínu í landbúnaðarfræði við háskólann í Maribor, annarri stærstu borg Slóveníu. „Þetta var fyrsta ritgerðin sem ég skrifaði þetta skólaárið og eftir að ég hafði skoðað bók um jaðarræktun (e. alternative crop). Við lesturinn komst ég að því hvað þetta er margslungin planta sem gefur af sér textíl, eldsneyti, matvöru, byggingarefni og pappír og áfram mætti telja.“ Meta tekur það sérstaklega fram að það hafi ekki verið vímugjafinn kannabis sem hún hafði hug á. „Ég hafði ekki áhuga á kannabínóðum á þessum tíma. Auðvitað þekkti ég þá sögu alla enda samofin plöntunni sjálfri en ég var tvítug að velja mér framtíð og það var ekki heillavænlegt að gera vímugjafanum í plöntunni hátt undir höfði. Þetta var auðvitað þunn lína þarna á milli en ég var að vinna með aðra hluti plöntunnar.“
Git Skoglund: Íslendingar klæddust hampfötum á miðöldum
Vefnaðarleifar sem varðveittar eru á Þjóðminjasafni Íslands og hafa til þessa dags taldar vera úr hör reyndust vera úr hampi. Þykir þessi uppgötvun renna stoðum undir þá tilgátu að auk hör hafi hampur verið ræktaður hér á landi allt frá landnámi og fram á 19. öld. Þetta kemur fram í nýjum þætti HAMPKASTSINS, umræðuþætti Hampfélagsins, þar sem rætt er við sænsku fræðikonuna Git Skoglund sem gerði umrædda uppgötvun. Git hefur þrívegis komið til landsins vegna fræðistarfa sinna og í sumar tók hún jarðvegssýni sem rannsökuð verða í háskólanum í Helsinki í Finnlandi.
Robert C. Clark: „Íslendingar þurfa eigið afbrigði af kannabis“
„Í sannleika sagt þá er þetta ekki réttur staður á jarðkringlunni. Þið eruð of nálægt pólnum,“ segir bandaríski rithöfundurinn og fræðimaðurinn Robert C. Clark í nýjasta þætti HAMPKASTSINS, umræðuþætti Hampfélagsins, um ræktun kannabisplöntunnar á Íslandi. Robert hefur rannsakað kannabis frá því snemma á áttunda áratug síðustu aldar og fylgt eftir gríðarlegum breytingum á landslaginu þegar kemur að kannabis í Bandaríkjunum en einnig í Evrópu þar sem hann var búsettur lengi í Amsterdam.
Robert er borin og barnfæddur í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum og útskrifaðist frá Háskólanum í Santa Cruz í sama ríki. Áhugi hans á kannabisplöntunni kviknaði í háskólanáminu og leiddi hann út í fræðistörf sem enn sér ekki fyrir endann á. Eftir námið flutti hann til Amsterdam þar sem hann fór til starfa hjá Hortopharm B.V. en það er rannsóknar- og þróunarfyrirtæki og það fyrsta sem fékk leyfi frá hollenskum stjórnvöldum til rannsókna á kannabis. Hann segist enn sífellt fá meiri og breiðari áhuga á plöntunni og nú síðast á sambandi kannabisplöntunnar og mannsins í gegnum aldirnar. „Þetta er planta sem ég sá að var mikilvæg og því meira sem ég rannsaka hana því meira sé ég hversu mikilvæg hún er. [...] Það er ekki til önnur planta til í heiminum sem hefur haft jafn mikil áhrif á mannkynið.“
Gunnar Dan Wiium, stjórnarmaður í Hampfélaginu, tók viðtalið við Robert, Mickael Omar Lakhlifi sá um tæknimál og Andri Karel sá um fréttaskrif.
Halldóra Mogensen ræðir um kannabis og hvernig hún sér framtíð hampsins á Íslandi.
Hispurslaust viðtal þar sem ekkert er skilið eftir
Hampkastið er hlaðvarp Hampfélagsins.
Í þessu hlaðvarpi tölum við um það hvernig hægt er að vinna með móðir jörð til þess að gera okkur sjálfbærari með áherslu á hamp plöntuna og hvað hún getur gert fyrir okkur.
Sigurður Hólmar Jóhannesson er formaður Hampfélagsins og framkvæmdastjóri Ozon ehf og Mobility ehf.
Sigurður er einnig Framkvæmdastjóri Góðvildar Styrktarfélags sem vinnur fyrir langveik börn og börn með fötlun auk þess að vera formaður AHC samtakanna á Íslandi og gjaldkeri AHC sambands Evrópu.
Anna Kristín er arkitekt hjá Lúdika arkitektastofu.
Í þessu viðtali segir hún okkur af hverju hún vill nota hamp sem byggingarefni og af hverju hún er að byggja hamphús á Íslandi
Hampkastið er hlaðvarp Hampfélagsins.
Í þessu hlaðvarpi tölum við um það hvernig hægt er að vinna með móðir jörð til þess að gera okkur sjálfbærari með áherslu á hamp plöntuna og hvað hún getur gert fyrir okkur.
Í þessum þætti fáum við til okkar Alicia Fall sem stofnandi „Her Many Voices „ sem er samfélagsverkefni þar sem frumbyggjum er hjálpað til að hjálpa sér sjálfum
Hérna er hægt að sjá meira um það verkefni: www.hermanyvoices.org
Alicia kemur af frumbyggjum Ameríku og er fyrirlesari sem fer um heiminn og heldur fyrirlestra um sjálfbærni og hún hefur meðal annars talað á TEDx
Hampkastið er hlaðvarp Hampfélagsins. Í þessu hlaðvarpi tölum við um það hvernig hægt er að vinna með móðir jörð til þess að gera okkur sjálfbærari með áherslu á hamp plöntuna og hvað hún getur gert fyrir okkur.
Gestur Hampkastins er Gunnar Dan Wiium. Gunnar Dan er smiður að mennt og vinnur sem smíðakennari í waldorfskólanum Sólstafir Gunnar hefur líka haldið úti hlaðvarpinu Þvottahúsið og gaf út 100 þætti ásamt bróðir sínum.
From the publisher's feed