Hampkastið

Hampkastið

By HampfelagidScienceNature
Download on the App Store

Hampkastið episodes

  • Jeff Lowenfels

    Bakteríur bylta kannabisrækt 

    „Það eru bakteríurnar sem ráða ferðinni og við erum rétt að byrja að skilja hversu mikilvæg áhrif þær hafa á eiginleika kannabis,“ sagði Jeff Lowenfels, einn þekktasti talsmaður lífrænnar garðyrkju í heiminum, í viðtali við Hampkastið, umræðuþátt Hampfélagsins. Þar deildi hann innsýn sinni í undraheim jarðvegsins, mikilvægi lífrænnar ræktunar og hvernig ný vísindi eru að umbreyta skilningi okkar á kannabisplöntunni. 


    35 min
  • Jasna Kovac. Cannabis Nurse

    Kannabis getur bætt lífsgæði sjúklinga

    „Ég sá mikla möguleika og ég áttaði mig á því að sjúklingar þurfa að vita af þessu, hjúkrunarfræðingar þurfa að vita af þessu. Foreldrarnir sem ég ræddi við sögðu allir það sama, þ.e. að læknar þurfi að læra um þetta og fræða okkur hin,“ segir slóvenski hjúkrunarfræðingurinn Jasna Kovac um jákvæð áhrif af notkun kannabis í meðferð gegn flogaveiki barna. Kovac er stofnandi og forseti Medca, samtaka heilbrigðisstarfsfólks í Slóveníu sem starfar á sviði kannabismeðferða.

     Kovac er frumkvöðull þegar kemur að innleiðingu kannabislyfja í heilbrigðiskerfi Slóveníu. Í nýjasta þætti Hampkastsins, umræðuþætti Hampfélagsins, gefur Kovac hlustendum innsýn inn í líf sitt og baráttu fyrir kannabismeðferðum í lækningaskyni. 

    45 min
  • Dr. Pavel Kubů, sérfræðingur á sviði líftækni

    Kannabis mætir skorti á blóðvökva

    „Árleg áætluð eftirspurn eftir blóðvökva hefur verið um 160 milljónir lítra en um 100 milljónum lítra hefur ekki mætt," segir Dr. Pavel Kubů, sérfræðingur á sviði líftækni og læknisfræði, en fyrirtæki hans, Plasma for People, hefur þróað tækni sem gæti gjörbylt heilbrigðiskerfinu eins og við þekkjum það í dag. Kubů sem er með doktorspróf í læknisfræði frá Charles háskólanum í Prag, höfuðborg Tékklands, var á Íslandi nýverið og kynnti byltingarkenndar rannsóknir sínar og þróun á blóðvökva sem unninn er úr fræjum kannabisplöntunnar. Fari sem horfir mun Plasma for People setja á markað lækningavöru sem gagnast mun milljónum manna um allan heim.

    38 min
  • Neil Woods. Fyrrum leynilögreglumaður sem berst fyrir afglæpavæðingu

    Íslendingar ættu að hefja regluvæðingu strax

    „Þjóðir heims verða að regluvæða vímuefni til þess að ná aftur stjórninni. Vímuefni geta verið varasöm og í vel flestum þeim löndum sem ég hef heimsótt er auðveldara fyrir börn að kaupa ólögleg vímuefni en áfengi og tóbak,” segir leynilögreglumaðurinn fyrrverandi Neil Woods í viðtali við Hampkastið, umræðuþátt Hampfélagsins, en Woods hélt erindi á  alþjóðlegri ráðstefnu sem félagið stóð fyrir um miðjan október síðastliðinn. Woods sem starfaði bresku lögreglunni um árabil og tókst þar á við harðsvíraða glæpamenn hvetur íslensk stjórnvöld til að hefja ferlið til regluvæðingar sem fyrst.  

    44 min
  • Faðir kannabínóðana. Lumír Hanuš


    Gríðarleg aukning á kannabisrannsóknum 

    Mikil og stöðug aukning á vísindarannsóknum hefur varpað nýju ljósi á möguleika kannabisplöntunnar í læknavísindum og virðist ekkert lát á. Þetta sagði tékkneski efnafræðingurinn Lumír Hanuš í viðtali við Hampkastið, umræðuþátt Hampfélagsins, en hann hélt erindi á  alþjóðlegri ráðstefnu sem félagið stóð fyrir um miðjan október síðastliðinn. Rannsóknir Hanuš frá því fyrir miðja síðustu öld mótuðu skilning vísindamanna á kannabisplöntunni og læknisfræðilegum notum hennar en eftir langvarandi bann og fordóma hefur áhugi á kannabisfræðum aukist gríðarlega á umliðnum árum. 

    50 min
  • Olían breytti dúkku í barn

    Olían breytti dúkku í barn 

    „Dóttir mín var falleg og dásamleg þegar hún fæddist en hún var örlítið öðruvísi en önnur börn. Hún horfði ekki í augu okkar og grét meira en venjulegt þykir. Þegar hún var aðeins fjörutíu daga gömul fékk hún fyrsta flogakastið. Allur líkami hennar hristist og við foreldrarnir urðum dauðskelkuð,“ segir Norberto Fischer í viðtali við Hampkastið, umræðuþátt Hampfélagsins, en hann hélt erindi um dóttur sína Anny á  alþjóðlegri ráðstefnu sem félagið stóð fyrir fyrr í mánuðinum. Anny var fjögurra ára þegar hún var greind með sjaldgæfan og alvarlegan flogaveikissjúkdóm. Hún lærði að tala og ganga áður en sjúkdómurinn náði yfirhöndinni. „Flogaköstin urðu verri og hún breyttist hreinlega í dúkku sem ekki gat hreyft sig, talað eða borðað. Raunveruleikinn varð að okkar verstu martröð.“ 

    25 min
  • Magnús Þórðarson prófessor

    „Ég hef áhuga á því að hjálpa Íslandi að finna út hvaða reglugerðaumgjörð virkar best og ég held að Íslandi eigi að gera þetta,“ segir Magnús Þórsson, prófessor við háskólann Johnson & Wales í Rhode Island-ríki í Bandaríkjunum, í viðtali við Hampkastið, umræðuþátt Hampfélagins, en hann kennir frumkvöðlastarf í kannabisgeiranum, nám sem er einstakt á heimsvísu. Magnús segir að stjórnvöld ættu að ráðast í lögleiðingu á kannabis enda muni það stuðla að sjálfbærum atvinnurekstri, nýsköpun og ótal tækifærum fyrir Íslendinga, til að mynda í gegnum skattheimtu af greininni.

    44 min
  • Steinunn Ólína og medical kannabis

    „Plantan er hrein snilld”

    „Þađ er löngu kominn tími til ađ viđ endurhugsum þetta og leyfum fullorđnu fólki ađ ráđa því svolítiđ sjálft hvernig þađ linar sínar þjáningar,” segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og forsetaframbjóđandi, í nýjasta þætti Hampkastsins, umræđuþætti Hampfélagsins, en Steinunn Ólína mun í næsta mánuđi stýra tveggja daga ráđstefnu, Hampur til framtíđar, sem haldin verđur í Salnum í Kópavogi. Hún hefur sjálf reynslu af notkun lyfjahamps í gegnum mann sinn, Stefán Karl Stefánsson, sem háđi hetjulega baráttu viđ krabbamein en laut í lægra haldi áriđ 2018.

    31 min
  • Kynning Hemp for the future ráðstefnu Hampfélagsins

    Ísland er Eden fyrir kannabisræktun

    „Með okkar ódýru orku, góða vatn, kalda veðrið og lítinn raka höfum við fullkomna blöndu til að verða stórþjóð í kannabisræktun innanhúss. Við þurfum bara kjarkinn í það,‟ segir Sigurður Jóhannsson, formaður Hampfélagsins. „Það er mikill áhugi á Íslandi erlendis frá og margir að skoða möguleikann á að setja upp vinnslustöðvar hér á landi.” Sigurður var gestur í nýjasta þætti Hampkastsins þar sem hann kynnti alþjóðlega ráðstefnu Hampfélagsins sem haldin verður 11.-12. október næstkomandi í Salnum í Kópavogi. Ráðstefnan ber heitið Hampur fyrir framtíðina og flytja þar erindi heimsþekktir sérfræðingar úr greininni.

    Sigurður segist trúa því að ráðstefnan komi til með að opna augu fólks um þá möguleika sem í hampinum felast og að hún sé frábært tækifæri fyrir áhugasama að efla tengslanet sitt í greininni. „Það er ótrúlegur áhugi á henni erlendis og fólk er að koma hingað hvaðanæva úr heiminum. Við erum með fyrirlesara á heimsmælikvarða og erum að fá að heyra eitthvað nýtt. Við erum að fá að heyra allar hliðar máls því það eru ekki eingöngu möguleikar fyrir bændur að nýta þessa plöntu heldur alls konar fyrirtækið sem standa í iðnaði. Við erum með fyrirtæki eins og Marel sem er að gera færibönd fyrir alls konar framleiðslu. Það er fyrirtæki sem gæti auðveldlega aðlagað sig að þessari grein og komið sterkir inn á markaðinn.”

    https://hemp4future.is/

    28 min
  • Georg H. Ómarsson fer yfir stöðu ópíóða og möguleika lyfjahamps í því samhengi

    Nýjasti gestur Hampkastsins er Georg Heiðar Ómarsson. Georg starfaði við vöruþróun og markaðsstjórn í íslensku lyfjafyrirtæki í rúman áratug. Á þeim tíma tók hann þátt í að koma um 100 nýjum lyfjum á markað og flest þeirra samheitarlyf. 

    Í þessum þætti fóru Georg og Gunnar yfir stöðu ópíóða á Íslandi og möguleikanum sem felst í að skipta honum að mestu leiti út með lögleiðingu lyfjahamps í lækningaskyni. Magnaður þáttur sem engin ætti að láta fram hjá sér fara.

    45 min

About Hampkastið

From the publisher's feed

Hampfélagið fer af stað með HAMPKASTIÐ sem eru umræðuþættir í hljóði og mynd og fjalla að sjálfsögðu um HAMP. Þáttastjórnendur eru Sigurður Hólmar og Þórunn Þórs sem bæði eru stjórnarmenn í…