Háskaleikur

Háskaleikur

By Útvarp 101Music
Download on the App Store

Háskaleikur episodes

  • 4. Október 2019 - Fruit
    Lokaþáttur Lagaffe Tales takeover var ekki af verri endanum. Jónbjörn tók í spilarana í fyrri klukkutímanum með blöndu af breakbeats og elektrói! Fruit, íslenskur producer/dj búsettur í Kaupmannahöfn, sendi yfir hressandi mix fyrir seinni klukkutímann, njótið!
    2 hr
  • 27. September 2019 - Intr0beatz
    Lagaffe Tales fengu til sín engan annan en Intr0beatz í stúdíóið þessa vikuna! Jónbjörn og Viktor Birgiss spiluðu alskonar hressa tóna fyrri klukkutímann áður en Intr0beatz steig á stokk, njótið!
    2 hr 2 min
  • 20. September 2019 - Moff & Tarkin
    Lagaffe Tales takeover heldur áfram, Jónbjörn og Viktor Birgiss tóku b2b DJ sett fyrsta klukkutímann með slatta af fersku húsi. Góðkunningi Lagaffe til margra ára, Moff & Tarkin, tók yfir seinni klukkutímann með funheiti gestamix beint frá Vín, njótið!
    2 hr 2 min
  • 6. September 2019 - Lagaffe Tales Takeover
    Lagaffe Tales tóku yfir Háskaleik í september meðan Áskell var í fæðingarorlofi. Jónbjörn og Viktor Birgiss hafa rekið útgáfufyrirtækið Lagaffe Tales við góðan orðstír síðustu ár og verið áberandi um allan heim.
    2 hr 1 min
  • 30. Ágúst 2019 - Jónbjörn
    Jónbjörn hefur verið áberandi nafn í íslensku senunni síðustu ár enda ekki við eina fjölina felldur. Hann hefur verið búsettur í Berlín og getið sér góðs orðstírs fyrir plötusnúðakænsku sína þar. Jónbjörn rekur útgáfuna Lagaffe Tales með Viktori Birgiss auk þess að hafa gefið út sínar eigin tónsmíðar hjá D.KO, Neo Violence, FALK og Pompon records. Mikill heiður að fá Jónbjörn aftur heim til Íslands og Háskaleikur þakkar honum kærlega fyrir komuna í þáttinn.
    2 hr 1 min

About Háskaleikur

From the publisher's feed

Háskaleikur er danstónlistarþáttur með Áskeli (BORG) í beinni útsendingu á föstudagskvöldum á Útvarp 101 og á 101.live milli kl. 20:00 - 22:00. Þátturinn er klukkutími af tónlist og tali þar sem…