Háskaleikur

Háskaleikur

By Útvarp 101Music
Download on the App Store

Háskaleikur episodes

  • 03. Maí 2019 - Sbeen Around
    Sbeen Around var gestur Áskels í Háskaleik föstudagskvöldið 3. maí. Sbeen Around hefur verið virk plötusnælda í íslensku hússenunni síðustu ár og vakið athygli með mixseríurnar House Salad Music og MUG Melodies þar sem hún spilar djúpa og jackin' hústóna.
    https://soundcloud.com/sbeenaround
    2 hr 1 min
  • 26. Apríl 2019 - Ezeo
    Ezeo var gestur Áskels í Háskaleik þann 26. apríl. Ezeo er maðurinn á bak við ViBES collective sem hafa gert góða hluti á klúbbum Reykjavíkur síðustu ár. Ezeo spilar djúpa og minimalíska tóna í hæsta gæðaflokki.
    https://soundcloud.com/dj-ezeo
    1 hr 58 min
  • 29. Mars 2019 - Janus Rasmussen
    Janus Rasmussen sendi frá sér sína fyrstu sólóplötu, Vín, síðasta föstudag og kom í Háskaleik að ræða plötuna og ferilinn ásamt því að taka DJ sett í sérstökum takeover þætti.
    2 hr 3 min
  • 22. Mars 2019 - Áskell
    Í Háskaleik þann 22. mars á spilaði Áskell nýja tónlist auk þess sem settið hans frá bílakjallaranum á Sónar Reykjavík árið 2017 fékk að hljóma
    2 hr 7 min
  • 15. Mars 2019 - Felix Leifur
    Felix Leifur var sérstakur gestur Háskaleiks föstudaginn 15. mars. Áskell spurði hann spjörunum úr varðandi ferilinn, Brot, tónlistina, sömplin og næstu skref. Öll tónlistin í þættinum er frumsamin, óútgefið og útgefið í bland og margt sem hefur aldrei heyrst í útvarpi áður.
    This is a Felix Leifur special edition of Háskaleikur. All the music is made by Felix Leifur. A lot of the tunes are unreleased.
    2 hr 1 min
  • 8. Mars 2019 - Polar Attraction
    Gestur þáttarins 8. mars var Polar Attraction.
    Polar Attraction er samstarfsverkefni Jadzia & Kosmodod sem búsett eru í Berlín. Lagið þeirra „Slippin“ kemur út á safnplötunni „Blizzard People“ á Sweaty Records síðar í mánuðnum. Settið þeirra fyrir Háskaleik samanstendur einungis af frumsömdu efni.
    1 hr 58 min
  • 01. Mars 2019 - KrBear
    Gestur þáttarins 1. mars var KrBear.
    KrBear hefur verið áberandi á skemmtistöðum Reykjavíkur síðustu ár með sín djúpu og dulúðarfullu sett. Hans fyrsta útgáfa kemur út síðar á árinu og má heyra mikið af frumsömdu efni í settinu hans.
    https://soundcloud.com/krbear
    2 hr 3 min
  • 22. Feb 2019 - Viktor Birgiss
    Gestur þáttarins þessa vikuna var Viktor Birgiss.
    Viktor Birgiss hefur verið virkur þátttakandi í íslensku hússenunni síðastliðinn áratug. Viktor og Jónbjörn stofnuðu útgáfufyrirtækið Lagaffe Tales árið 2012 og hefur tónlist þeirra dreifst út um allan heim á síðustu árum. Tónsmíðar Viktors hafa verið gefnar út á labelum s.s. Love Potion, Etoka Shapes og á Lagaffe Tales.
    https://soundcloud.com/birgiss
    2 hr 1 min

About Háskaleikur

From the publisher's feed

Háskaleikur er danstónlistarþáttur með Áskeli (BORG) í beinni útsendingu á föstudagskvöldum á Útvarp 101 og á 101.live milli kl. 20:00 - 22:00. Þátturinn er klukkutími af tónlist og tali þar sem…