Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Hlaðvarp um heilsu og vellíðan. Bent Marinósson ÍAK einkaþálfari fær til sín áhugaverða gesti til að ræða heilsu og heilsutengd málefni.... more
FAQs about Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.:How many episodes does Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan. have?The podcast currently has 58 episodes available.
April 07, 2023Stafrænt ofbeldi og starfrænar áskoranir ungmenna - Kolbrún HrundViðmælandi þáttarins er Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir. Hún er verkefnastýra jafnréttisskóla Reykjavíkur, en hann sér um allt sem snýr að jafnréttis- og kynheilbrigðismálum í skólum í skólum og frístundarstarfi Reykjavíkurborgar. Kolbrún stýrir einnig þverfaglegu ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar sem styður við starfsstaði þegar upp koma ofbeldismál og þá sérstaklega sem tengjast óæskilegri kynhegðun og kynferðisofbeldi í skóla- og frístundastarfi.Kolbrún nefnir í þættinum mímörg dæmi um þann harða raunveruleika sem blasa við ungmennum í dag....more27minPlay
March 27, 2023Slakaðu á fullkomnunarólinni með GETMO (Good Enough To Move On)Í þessum þætti fer Bent yfir ákveðna aðferðarfræði við framkvæmd verkefna eða daglegra athafna sem má kallast GETMO, en það er skammstöfun á Good Enough To Move On. Þeir sem þekkja fullkomnunaráráttu að einhverju leyti vita hversu hamlandi það fyrirbæri er. GETMO hefur verið fín lausn fyrir marga og endilega kíktu á það!...more12minPlay
February 23, 2023Yfir 200 þekktar veirur orsaka kvef hjá okkur mannfólkinuKvef er einn algengasti kvillinn sem herjar á okkur mannfólkið. Það eru þekktar yfir 200 tegundir veira sem orsaka kvef hjá okkur mannfólkinu. Algengt er að börn fái kvef 6-10x á ári og að meðaltali fá fullorðnir kvef um 4x á ári. Kvef læknast yfirleitt af sjálfu sér og þurfum við að gefa ónæmiskerfinu tækifæri á að kljást við veiruna....more13minPlay
February 20, 2023Er leikur og gleði mikilvæg fyrir heilsuna? - Hrefna Óskarsdóttir iðjuþjálfiHrefna Óskarsdóttir iðjuþjálfi á Reykjalundi er gestur okkar í þessum þætti. Í þættinum bendir Hrefna á mikilvægi þess að hafa gaman og að leika sér, rannsóknir sýna fram á það vísindalega að það hafi góð áhrif á líðan og heilsu. Hrefna bendir einnig á að of lítill tími aflögu geti haft slæm áhrif á lífsgæði okkar en vegna þess að það er mikilvægt fyrir okkur að hafa eitthvað fyrir stafni þá geti það haft jafn slæm áhrif að hafa of mikinn tíma - sérstaklega þegar okkur skortir tilgang. Að hafa tilgang, leika sér og hafa gaman er meginefni þáttarins.Styrktaraðili þáttarins er RB rúm, rbrum.is...more51minPlay
February 16, 2023Helstu vítamín - yfirlitÍ þessum þætti förum við yfir helstu flokka vítamína, þeas C og B vítamín annarsvegar og hinsvegar A, D, E og K vítamín. Við förum stuttlega yfir í hvaða fæðu þessi vítamín eru og hvernig skortseinkenni lýsa sér....more19minPlay
February 13, 2023Innsæið og kraftur náttúrunnar - Heiðrún MaríaHeiðrún María er gestur okkar í dag. Í þættinum ræða þau Bent og Heiðrún María m.a. töfra þess að njóta náttúrunnar, vatnsins, kuldans og ná stjórn á eigin hugsunum og líkama. Einnig ræða þau seiglu, viðbrögð okkar, taugakerfið og margt annað spennandi og skemmtilegt.Styrktaraðili er RB rúm, rbrum.is...more1h 8minPlay
February 09, 2023Leitin að innsæinu - Einar Valur ScehvingEinar Valur Sceving tónlistarmaður er gestur okkar að þessu sinni. Bent Marinósson og Einar eiga hér stutt spjall milli kennslustunda hjá Einari og ræða þar m.a. upprunann, stiklað á stóru um tónlistarferilinn og ræða mikilvægi betra lífs - án áfengis, að hlusta meira á innsæið og trúa því og treysta.Styrktaraðilli þáttarins er RB rúm, rbrum.is...more34minPlay
February 06, 2023Bætum áramótaheitin - nokkrar leiðir til bætingarÍ þessum þætti skoðum við ýmis vandamál sem eru við áramótaheit, eða önnur markmið, hvernig við getum mögulega skoðað markmiðin okkar í öðru ljósi og þ.a.l. náð betri árangri....more20minPlay
February 02, 2023Einelti - frá sjónarhorni gerenda og þolanda - Arnór Bjarki BlomsterbergÍ þessum þætti ræða Arnór Bjarki Blomsterberg, Nói, og Bent um reynslu sína af einelti. Annarsvegar segir Nói frá sinni hlið af einelti sem gerandi, þroskaferli, iðrun og leiðina að fyrirgefningu. Hinsvegar segir Bent frá sinni hlið af einelti sem þolandi og upplifun barns í slíkum aðstæðum. Og saman skiptast þeir á skoðunum og ræða þessi mál vítt og breitt.Styrktaraðilli þáttarins er RB rúm, rbrum.is...more1h 24minPlay
January 30, 2023Taugakerfið þitt er ekki í Gettu betur!Taugakerfið er magnað fyrirbæri og mætti almenn þekking á því sannarlega meiri því með því að skilja hvað taugakerfið er að segja okkur getur okkur liðið betur og fundið leiðir til betri heilsu, andlegrar og líkamlegrar. Í dag ætlum við að skoða taugakerfið og þá tvo meginhluta þess, sympatíska taugakerfið og parasympatíska taugakerfið og hvernig þau vinna saman. Við förum m.a. hvernig sympatíska taugakerfið og "flótta- og árásarviðbragð" (oft þekkt sem "fight og flight" viðbragð) virka saman og hvað við getum mögulega gert til að hafa smá áhrif á viðbrögð okkar gegn streitu og álagi.Styrktaraðili þáttarins er RB rúm, rbrum.is...more18minPlay
FAQs about Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.:How many episodes does Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan. have?The podcast currently has 58 episodes available.