Heimili og skóli

Heimili og skóli

By Heimili og skóliParentingKids & Family
Download on the App Store

Heimili og skóli episodes

  • Netöryggi á nýjum tímum 3: Ábendingalína Barnaheilla

    Þóra Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum og Eiríkur Ásgeirsson rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á Suðurnesjum ræða saman um Ábendingalínu Barnaheilla. Þau svara spurningum um hvað sé gert við tilkynningarnar sem berast og afhverju það er mikilvægt að tilkynna ef við sjáum ólöglegt eða óviðeigandi efni.

    Hægt er að finna Ábendingalínu Barnaheilla á https://www.barnaheill.is/is/abendingalina eða með því að smella á strokleðrið efst í hægra horninu á barnaheill.is


    15 min
  • Netöryggi á nýjum tímum 2: Hjálparsími og netspjall Rauða krossins 1717

    Hanna Ruth Ólafsdóttir og Sandra Björk Birgisdóttir verkefnastjórar Hjálparsíma Rauða krossins 1717 kíktu til okkar og spjölluðu sín á milli um starfsemi 1717, hver það eru sem nýta og geta nýtt þjónustu hjálparsímans og gefa góð ráð hvað hægt að gera ef manni líður illa. Þær ræddu einnig ýmis mál sem brennur á ungu fólki eins og neteinelti og hvað sé hægt að gera ef einhver lendir í því.

    26 min
  • Það þarf þorp 3: Einelti – Allt það nýjasta frá World anti-bullying forum (fyrri hluti)

    Bryndís Jónsdóttir sérfræðingur hjá Heimili og skóla ræðir við Sigríði Björk Einarsdóttur framkvæmdastjóra SAMFOK, Salvöru Sæmundsdóttur sérfræðing hjá Umboðsmanni barna og Stellu Hallsdóttur lögfræðing hjá Umboðsmanni barna um eineltismál.

    Umræðuefni okkar í dag er einelti á breiðum grunni. Fyrir skömmu tóku þær þátt í  World anty-bullying forum ráðstefnunni í Stokkhólmi. Ráðstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir samtal milli þeirra sem stunda rannsóknir á einelti, þeirra sem starfa að forvörnum, hagsmunaaðila og þeirra sem vinna við stefnumörkun enda er áhersla á þekkingu byggða á rannsóknum.  Meðal annars er rætt um það sem fram fór á ráðstefnunni.

    31 min
  • Netöryggi á nýjum tímum 1: Sigurður Haukur Gíslason

    Í fyrsta þætti Netöryggi á nýjum tímum ræðir Bryndís Jónsdóttir við Sigurð Hauk Gíslason, kennsluráðgjafa í upplýsingatækni við grunnskóla Kópavogs. Þau ræddu meðal annars um börn og snjalltæki, reglur, skjátíma og það jákvæða sem tæknin gefur okkur.

    50 min

About Heimili og skóli

From the publisher's feed

Á þessari rás eru hlaðvarpsþættir Heimilis og skóla. Meðal þátta er Það þarf þorp, Netöryggi á nýjum tímum og Siggi og Sigga Dögg nöldra um netið.