Helgaspjallið

Helgaspjallið

By Helgi ÓmarsSociety & Culture
Download on the App Store

Helgaspjallið episodes

  • Þáttur 189 - Helgi & Áki Maikai ræða forsetakosningar í USA, kynjamál og næringu
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is
    Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid
    Það er fátt sem mér finnst skemmtilegra en að spjalla við vin minn Áka sem er oft þekktur sem Áki hjá Maikai. Hann er ekki bara skemmtilegur heldur ekkert eðlilega klár, og er oft með hugmyndir og skoðanir sem koma skemmtilega á óvart. Við sátumst niður og ræddum meðal annars kosningarnar í Ameríku og hvað gæti legið að baki í þeim málum, stríðsrekstur, kynjamál, næringu og svo margt meira. Vonandi njótiði vel -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 22 min
  • Þáttur 188 - Jara Giantara um að nýja heiminn, fyrri líf, hausinn okkar og ferð sína til Japan
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is
    Nings - www.nings.is
    Ég veit fátt betra en að setjast niður á móti stjörnuspekingnum per excellance, vinkonu minni og viskubrunninum Jöru Giantöru en hún er án efa með stærstu tilfinningagreind sem ég hef upplifað og að hlusta á hana er eins að vera krakki að hlusta á einhverja stórspennandi sögu. Svo sem fullorðinn læri ég alltaf eitthvað nýtt og hún opnar alltaf fyrir eitthvað fallegt í höfðinu á manni. Í þetta skipti settumst við niður í mega kósí, ræddum ferð hennar til Japans, fyrri líf, stjörnuspeki og hvað er í gangi í rosalega mörgum retrograde-um ásamt svo mörgu öðru.
    www.giantara.com fyrir nýja námsskeiðið hennar sem við ræðum einnig í þættinum.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 34 min
  • Þáttur 187 - Jana Steingríms um skrefin að betri líðan með mat & næringu
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is
    Kristjana Steingrímsdóttir, betur þekkt sem Jana Steingríms og þekkt á samfélagsmiðlum undir @janast er heilsuþjálfari, jóga kennari og kokkur en næring er hennar besta fag og er maturinn hennar töfrum líkast, bæði fyrir augun, ilm og bragð. Jana er ein af stofnendum Happ sem við munum eflaust mörg eftir og er Happ enn í blússandi í Lúxemborg. Við förum um víðan öll, en það sem ég tók mest úr þessu spjalli var þekking hennar og ástríða um að borða regnbogann og nýta mat sem næringu og grunn að góðri heilsu og gera það skemmtilega! Ég mæli svo innilega með að hlusta á þessa stórkostlegu konu og fylgja henni á samfélagsmiðlum og njóta þar líka!
    Þið finnið Jönu á Instagram undir @janast
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 15 min
  • Þáttur 186 - Steinunn Þórðar / Namasteina snýr aftur um HLAUP 101 og endurhæfing eftir ofbeldi
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is
    Steinunn Þórðar eða Namasteina kom í Helgaspjallið fyrir örfáum árum, og vakti þá mikla athygli fyrir einlæga og öfluga frásögn um ofbeldissamband sem hún var þá í. Það var yndislegt að hittast aftur í þessum þætti bæði búin að vinna í eftirköstum og komin á fallegan stað í sjálfum okkur. Við ræðum þau mál en svo mál málanna, HLAUP! Ég er að gíra mig upp í að verða hlaupari eins og hún og hún tekur okkur í algjöran, alvöru og einlægan masterclass. Hlaupum saman!
    Hægt er að fylgjast með Steinunni á Instagram: @namasteina
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 14 min
  • Þáttur 185 - Helgi & Pétur fara yfir mál líðandi stundar
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is
    Það er gott að eiga kláran, tilfinningagreindan, nautskemmtilegan og indælan unnusta sem ég hef mikið dálæti að spjalla við alla tíma sólarhringsins, en núna, bakvið míkrófóninn okkar í Helgaspjallinu. Við tökum stöðuna, það sem hefur gengið á, gengur á og það sem koma skal.
    52 min
  • Þáttur 184 - Gummi Emil um að lifa útfrá hjartanu, fangelsisdóminn, kuldann og mátt hugans
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is
    Gummi Emil er einkaþjálfari og viskubrunnur, hann hefur vakið mikla athygli útfrá kuldaiðkun og ' Víkingar vakna ' og miðlar með okkur hvaðan þessi iðkun kemur og hvað liggur að baki. Við förum einnig tilbaka og kynnumst Gumma og hvernig hann fór frá því að vera feiminn í skóla í að verða orkusprengjan sem hann er í dag. Við förum einnig yfir mátt hugans og hversu mikilvægt það er að hugsa sem minnst og gera sem mest.
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 1 min
  • Þáttur 183 - María Rut frá Pælum í Pólitík um stöðu ríkisstjórnar og framhaldið á mannamáli
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is
    María Rut, okkar allra besta, pólitíkusarsjení á mannamáli og varaþingmaður settist á þingmannastól nýlega og sprengdi samfélagsmiðla þegar hún tók mál fyrir sem varða barnafjölskyldur hér á landi. Við fórum yfir þau mál, eins og svo mörg önnur. María deilir með okkur hvað gekk og gengur á á Alþingi þessa dagana, og förum yfir vonarneista framtíðarinnar í þessum málum. Því staðreyndin er sú, að fólk hefur aldrei fylgst eins mikið með og haft eins sterkar skoðanir, jú og tekið þátt. Sem er nákvæmlega það sem við þurfum hér á landi. Svo ef þið viljið recap á því sem gengið hefur á, á algjöru mannamáli. Þessi þáttur er handa ykkur.
    Hægt er að fylgjast með Maríu á samfélagsmiðlum undir @mariarut - algjört must follow ef þið spyrjið mig.
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 10 min
  • Þáttur 182 - Ernuland um heimkomu, nýlega fóstureyðingu og tvöfalt sverð réttlætiskenndarinnar
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is
    Erna Kristín betur þekkt sem Ernuland, er komin aftur til Íslands eftir danskt ævintýri og ég er svo þakklátur að ég hafi náð að grípa hana nánast ferska úr fluginu til mín í Helgaspjallið. Við höfum átt það inni eftir mikið af samtölum í gegnum samfélagsmiðla, sem kannski hlustendur gætu upplifað, þar sem við vorum bæði frekar hátt uppi að loksins ná að sitja undir fjórum augum og tengjast og kynnast. En Erna er eins og svo margir vita, algjörlega stórkostleg og þvílík ánægja að fá að hlusta á hana og einhvernvegin meðtaka það sem þú segir, sem kemur frá svo mögnuðum stað. Við ræðum svo ótrúlega margt, en hún deilir fallegri frásögn um næmni og fóstureyðingu sem hún tók ákvörðun um á krefjandi tímum. Lærdóm í gegnum krefjandi tíma og réttlætiskenndina, sem getur verið þyngri en margir gera sér grein fyrir og hvernig hún hefur einnig áhrif á líf okkar sem höfum atvinnu af því að vinna á samfélagsmiðlum á sturluðum tímum.
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 19 min
  • Þáttur 181 - Kynnumst forsetaframbjóðendum 2024: Halla Tómas
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is
    Það er var og er mér mikill heiður að fá Höllu Tómas í Helgaspjallið, og þá sérstaklega eftir þáttinn. Þegar tilkynnt var að kosinn yrði nýr forseti Íslands þá hafði ég hreinlega ekki kynnt mér Höllu, né hennar bakrunn eða vinnu, svo forsetaframbjóðendur urðu bara fleiri og fleiri og alltíeinu var maður dottinn í eitthvað raunveruleika sjónvarp sem var spennandi að sjá hvernig spilaðist út. Í hvert skipti sem ég hef séð kappræður og almennt þegar Halla Tómas opnar á sér munninn, þá hefur henni alltaf tekist að fanga mig. Þá áttaði ég mig á því að Halla er vissulega afl, sem er mikilvægt að við horfum ekki framhjá. Við ræðum svo ótrúlega margt, hjónabandið, bakrunninn, gildi og allt sem tengist mögulegri framtíð hennar sem forseti Íslands.
    Njótið vel!
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 7 min
  • Þáttur 180 - Ingileif Friðriks um glænýja bók, að fylgja ástríðunni og flogaveiki út frá streitu
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Bpro - www.bpro.is
    Hin ástsæla, hæfileikaríka og ein af mínum allra bestu vinkonum Ingileif Friðriksdóttir kom LOKSINS í Helgaspjallið, og við ræðum svolítið um það í þættinum. Ingileif er mikil fjöllistakona sem fylgir engum reglum um hvernig á að vinna í þessu lífi, hún gerir nákvæmlega þangað sem ástríðan tekur hana og gerir það allt með miklum sóma. Nýjasta verk hugarheim Ingileifar er skáldsagan Ljósbrot, ný bók sem komin er í verslanir. Ingileif segir okkur frá því hvernig þessi bók varð til og hvernig hún fann sjálfstraustið til að dýfa sér í það verkefni. Ingileif er eins insperandi og þær gerast og það er mér mikill heiður að vera vinur hennar og enn meiri heiður að fá hana í Helgaspjallið.
    Ljósbrot fæst í öllum helstu bókabúðum landsins og algjört must að kaupa sér eintak!
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 15 min

About Helgaspjallið

From the publisher's feed

Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is