
Sign up to save your podcasts
Or


Nýlega var kynnt til sögunnar ný ofurhjólakeppni á Vestfjörðum sem verður haldin í fyrsta skiptið í sumar. Við erum að tala um 930 km yfir fjóra hjóladag og fullt af hækkun. Bæði malbik og möl og allt yfir 210 km dagleiðir. Við ræðum við Halldóru Björk Norðdahl, sem er ein fjögurra sem stendur á bak við mótið og verkefnið Cycling Westfjords.
Hlaðvarpið snýr aftur eftir smá pásu. Í þættinum skoðum við aðeins við hverju megi búast á komandi keppnistímabili, hverjir hafa flutt sig milli liða og hverju það skipti, auk þess að skauta hratt yfir síðasta tímabil.
Við heyrum í tveimur keppendum á Evrópumeistaramótinu og heimsmeistaramótinu. Við heyrum í Hafdísi Sigurðardóttur, einni af Akureyrardætrunum sem keppti í TT og RR á Euro á Ítalíu í síðustu viku og Bríeti Kristý Gunnarsdóttur sem keppti í vikunni á heimsmeistaramótinu í Flanders í tímatöku og mun á laugardaginn taka þátt í götuhjólreiðum. Þær gefa okkur innsýn inn í það að fara út í stórar keppnir sem þessar og beint í djúpu laugina, við fáum að heyra wattatölur og Bríet lýsir baráttu við hjólið í miðri TT-keppni.
Framundan er stórhátíð fyrir íslenskt hjólreiðaáhugafólk. Tólf íslenskir keppendur taka þátt í Evrópumótinu í Trentino á Ítalíu eftir viku og fjögur mæta á heimsmeistaramótið í Belgíu eftir tvær vikur. Mikael Schou, afreksstjóri HRÍ, kynnti hópinn í ágúst, en í nýjasta hlaðvarpi Hjólafrétta fer hann yfir valferlið á keppendum, markmiðin, framtíðarhugmyndir í afreksmálum og nýlega æfingarferð til Svíþjóðar svo eitthvað sé nefnt. Það eru hjólavinirnir í KPMG sem eru bakhjarl þáttarins.
Af hverju verður meiri uppbygging hjólreiðainnviða vestan Elliðaáa á næstu árum? Hvað er gert ráð fyrir að lagt verði af hjólastígum á næstu 5 árum? Förum við að sjá sérstakar aðgerðir fyrir hjólreiðar við gatnamót og hvaða hjólaframkvæmdir verða stærstar í ár? Katrín Atladóttir leiddi hóp sem lagði fram drögð að nýrri hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavík nýlega og hún ræðir þessi mál og fleiri við Hjólafréttir, meðal annars hvað hún telji að geti orðið hlutfall hjólandi ferða í öllum ferðum innan borgarinnar til lengri tíma og hvort markmið áætlunarinnar sé of hógvært.
Beðist er velvirðingar á slæmum hljóðgæðum á nokkrum stöðum í viðtalinu.
Þriðja bikarmótið í götuhjólreiðum fór fram á Snæfellsnesi um helgina. Hjólafréttir gera upp keppnina, hvernig baráttan í helstu flokkum þróaðist og fara yfir áhugaverð augnablik sem skiptum sköpum varðandi útkomuna.
Rúnar Örn kryfur Suðurstrandarvegskeppnina sem fór fram á laugardaginn og rýnir í dýnamíkina sem var í gangi. Hvað var að virka í karla- og kvennakeppnunum og hvað leiddi til sigurs?
Hjólreiðamaðurinn Ingvar Ómarsson er þessa stundina staddur á Spáni, réttara sagt í héraðinu Andaluciu, þar sem hann tekur þátt í fjöldægra fjallahjólakeppni ásamt tékkneskum liðsfélaga. Rætt er við hann um hvernig hafi gengið, stemninguna úti og hvernig hann horfi á morgundaginn, en það verður lengsta dagleiðin.
Fyrstu keppnir ársins eru rúllaðar af stað. Við lítum yfir Reykjanesmótið og fáum góða lýsingu á því hvað gekk á í Elite kk keppninni Rúnar ber saman keyrsluálag milli kk og kvk hópanna. Skoðum líka úrslitin í fyrstu TT keppni ársins í Vogum og rennum hratt yfir Giro-ið.
Í þessum þætti ræðum við núverandi keppnisflokkafyrirkomulag og veltum fyrir okkur stöðu masters-flokka og hvort þeir haldi jafnvel aftur af þróun hér á landi. Farið er yfir ráðningu nýs afreksstjóra HRÍ og hvernig landsliðið geti virkað sem gulrót á stærri hóp en hefur verið. Við förum líka yfir erlendar keppnir og hvort yfirfæra megi árangur Quicksteps á íslenska keppnislandslagið. Við rennum einnig yfir það hvað sé framundan á erlendum vettvangi. Gleðilega páska.
From the publisher's feed