
Sign up to save your podcasts
Or


Spjallað við Arnþór Gústavsson um Cycling Westfjords og Riftið. Einnig kemur Andri Már í heimsókn og segir okkur frá Greflinum sem fer fram 20. ágúst.
Ellefta dagleið í Tour de France er líklega einhver sú albesta sem hjólreiðaáhugamenn hafa fengið að fylgjast með á þessari öld og jafnvel í lengri tíma. Hjólafréttir fara aðeins yfir stöðuna nú þegar keppnin er hálfnuð. Þá er staðan tekin á Riftinu, en búast má við yfir þúsund erlendum hjólurum til landsins vegna hennar í næstu viku. Að lokum ræðum við um landsliðsmálin sem eru heitt málefni að vanda. Erum við að senda á rétt mót?
Tour de France byrjar nú á föstudaginn. Hverjum þarf að fylgjast með, við hverju á að búast, hvernig lítur brautin út og hverjir enda í hvaða treyjum? Eiga Roglic og Vingegaard séns í Pogacar og af hverju fékk Cavendish ekki að koma með í ár til að reyna að brjóta metið hans Merckx. Þetta og miklu meira í þættinum í dag + uppgjör eftir Íslandsmótið á Mývatni.
Þegar aðeins 240 km (af 4800) eru eftir af RAAM 2022 heyrðum við í Viðari Braga Þorsteinssyni, einum liðsmanna Decode XY, og heyrðum hvernig keppnin hefði gengið. Reyndar hafði þá nýlega verið keyrt á einn liðsmann Decode, en áverkar sem betur fer ekki mjög alvarlegir. Viðar fer yfir það fyrirkomulag sem liðið notast við, hvað hafi komið á óvart og ber setup Decode við Beamer liðið sem var fyrsta 8-manna liðið í ár á nýju meti.
Íslandsmótin í tímatöku og götuhjólreiðum fara fram í vikunni fyrir norðan. Við förum aðeins yfir stöðuna og við hverju megi búast þar. Þá ræðum við um önnur helstu mál í hjólreiðum á síðustu dögum og sem eru framundan auk þess að tease-a aðeins fyrir TdF. Svo er Kwaremont spurningin á sínum stað.
Átjándi þáttur eftir stutta pásu. Við förum yfir það helsta sem hefur verið í gangi, það sem er framundan og skoðum aðeins nánar uppskeruna í síðustu götuhjólamótum. Einnig er staðan tekin á landsliðsmálum og Rúnar spurður um ástæður þess að hann sé að færa fókusinn úr TT í RR.
Hafsteinn Ægir Geirsson er margfaldur Íslandsmeistari í hjólreiðum og hefur verið í fararbroddi í sportinu hér á landi síðustu tvo áratugi. Hann er jafnfram head mechanic hjá Lauf, en fyrirtækið kynnti nýtt hjól í vikunni, Seiglu. Hafsteinn hefur hjólað á því síðan í september og prófað það meira en nokkur annar. Hann fer yfir hvað er nýtt á þessu hjóli og þróun malarhjólreiða með tilliti til dekkjabreiddar og dempunar. Hafsteinn ræðir líka nýju flokkaskiptinguna og segir okkur stutt frá þátttökunni í EM á Ítalíu í fyrra.
Fyrir um viku síðan kynnti HRÍ tillögu stjórnar fyrir komandi Hjólreiðaþing um breytt fyrirkomulag flokkakerfisins. Í grunninn stjórn leggur til að slaufa masters flokkunum og hafa frekar getuskipt flokkakerfi A-B-C flokka. Bjarni Már Gylfason mætir í þáttinn til að ræða slíkar breytingar og hvaða þýðingu það hefði. Hverjir eru kostirnir og hverjir eru gallarnir?
Við fengum góðan gest í settið í þetta skiptið, en hún Ása Guðný Ásgeirsdóttir, yfirþjálfari hjá HFR, kom og ræddi við okkur um stöðuna í þjálfunarmálum hjá yngri deildinni. Hvað dregur ungt fólk í sportið, hvernig erum við að standa okkur og hvað má gera betur. Auk þess ræðum við um aðstöðumál og hvernig hún sjái fyrir sér næstu skref í frekari uppbyggingu.
Cycloross worlds eru framundan og við ræðum keppnina við hana Bríeti Kristý. World tour er líka að byrja og við skellum í smá upphitun fyrir tímabilið.
From the publisher's feed