Hlaðvarp Samfylkingarinnar

Hlaðvarp Samfylkingarinnar

By Samfylkingin - Jafnaðarmannaflokkur ÍslandsNewsPolitics
Download on the App Store

Hlaðvarp Samfylkingarinnar episodes

  • 9. Samfylkingin í beinni: Birna Rún Eiríkisdóttir leikkona & Ólafur Örn Ólafsson veitingamaður

    Samfylkingin í beinni er vettvangur þar sem jafnaðarmönnum gefst kostur á að ræða málin, leita hugmynda og spyrja spurninga.


    Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar og borgarfulltrúi, ræðir að þessu sinni við Ólaf Örn Ólafsson veitingamann og kokk á flakki, og Birnu Rún Eiríksdóttur, leikkonu og leiksstjóra. Bæði Birna og Ólafur hafa starfað á mörgum mismunandi vettvöngum og þekkja vel líf hins sjálfstætt starfandi, frumkvöðlastarf, listir og menningu, stofnun fyrirtækja, að dans og leika fyrir alþjóð og svo mætti lengi telja.

    44 min
  • 4. Samfylkingin í beinni: Jóna Þórey Pétursdóttir forseti Stúdentaráðs HÍ

    Samfylkingin í beinni er vettvangur þar sem jafnaðarmönnum gefst kostur á að ræða málin, leita hugmynda og spyrja spurninga.


    Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar og borgarfulltrúi, ræðir að þessu sinni við Jónu Þórey Pétursdóttur forseti Stúdentaráðs, saman ætla þær að fara yfir stöðu námsmanna í dag og hvernig framtíðin lítur út.

    51 min
  • 2. Samfylkingin í beinni: Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB

    Samfylkingin í beinni er vettvangur þar sem jafnaðarmönnum gefst kostur á að ræða málin, leita hugmynda og spyrja spurninga.


    Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar og borgarfulltrúi, ræðir að þessu sinni við Sonju Ýr Þorbergsdóttur formann BSRB, saman ætla þær að fara yfir stöðu líðandi stundar og kryfja málin.

    46 min
  • 3: Samfylkingin í beinni: Magnús Orri Schram - frumkvöðull

    Samfylkingin í beinni er vettvangur þar sem jafnaðarmönnum gefst kostur á að ræða málin, leita hugmynda og spyrja spurninga.


    Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar og borgarfulltrúi, ræðir að þessu sinni við Magnús Orra Schram frumkvöðul, ráðgjafa og framkvæmdastjóra Hálendisbaðanna, saman ætla þau að fara yfir stöðu líðandi stundar í ferðaþjónustunni og kryfja málin.

    39 min
  • 1. Samfylkingin í beinni: Oddný G. Harðardóttir - þingflokksformaður

    Áherslur Samfylkingarinnar á þingi og hjá sveitarfélögum. 


    Samfylkingin í beinni er vettvangur þar sem jafnaðarmönnum gefst kostur á að ræða málin, leita hugmynda og spyrja spurninga.


    Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar og borgarfulltrúi, hefur umsjón með útsendingum. Oddný Harðardóttir, þingflokksformaður, og Heiða Björg ræða að þessu sinni áherslur Samfylkingarinnar á þingi og hjá sveitarfélögum, fara yfir stöðu líðandi stundar og kryfja málin.

    46 min
  • 3. Samtalið: Steinunn Gestsdóttir, Pétur Már Halldórsson og Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir

    Samtalið er hlaðvarps- og streymisþáttur þar sem grasrót Samfylkingarinnar fer yfir málefni líðandi stundar og fær til sín skemmtilega gesti úr íslensku þjóðfélagi.

    Samfélög sem leggja áherslu á nýsköpun þurfa að gera það í samhengi við öflugt menntakerfi, þá sérstaklega með stuðningi við framsækna rannsóknarháskóla og hagstæðri umgjörð nýsköpunarfyrirtækja.


    Arðurinn sem rannsóknir skila samfélaginu er óumdeildur, bæði þegar litið er til fjárhagslegra lífsgæða og grænna lausna fyrir sjálfbært samfélag. Rannsóknir sá fræjum fyrir atvinnulífið, en það þarf að gefa þeim aðstæður og rými til að lifna við og vaxa.

    Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor kennslumála og þróunar við Háskóla Íslands, og Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Nox medical, ræða menntun, nýsköpun og rannsóknir, og hlutverk þeirra í samfélagi framtíðarinnar, í samtali við við Jóhönnu Vigdísi Guðmundsdóttur, formann menntanefndar Samfylkingarinnar og framkvæmdastjóra Almannaróms – miðstöðvar máltækni á Íslandi.

    47 min

About Hlaðvarp Samfylkingarinnar

From the publisher's feed

Í hlaðvarpi Samfylkingarinnar er talað við fólk víðs vegar í samfélaginu. Jafnaðarmannastefnan er pólitík sem sem stuðlar að velferð einstaklingsins, eflingu atvinnulífs, sanngjörnum viðskiptum,…