Hugarburðarbolti

Hugarburðarbolti

By Gunnar GeorgssonSportsFantasy Sports
Download on the App Store

Hugarburðarbolti episodes

  • Hugarburðarbolti þáttur 18

    Össi Árna mætti sem gestur í þáttinn.
    Manchester liðin halda áfram að tapa leikjum. Allt galopið á Tottenham Hotspur Stadium. Liverpool á toppnum yfir jólin. Nottingham Forest liðar áfram á góðu róli í 4.sæti deildarinnar. Sigur í fyrsta leik Vitor Perreira með Úlfana á King Power. Og Alexander Isak sökkti nýliðum Ipswich með snyrtilegri þrennu á Portman Road.
    22.000 manns á Íslandi spila fantasy leikinn í enska fótboltanum. Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp sem alla fantasy spilara þyrstir í.
    Vignir Már Eiðsson og Gunnar Georgsson sjá um þáttinn.
    Gunnar er einn allra sterkasti fantasy spilari landsins. Þeir vita allt um fantasy leikinn
    Vignir Már Eiðsson er þekktur fyrir að spila með hjartanu og er einn öflugasti draft spilari landsins.
    Við förum yfir hverja umferð af enska boltanum með TA-Sport Travel (https://tasport.is/premierferdir/), Dillon, Shake & Pizza, Dúos og Pottinum og Pönnuni. Allt rætt fram og aftur. Verðum með deildina Hugarburðarbolti og það verður nóg af veglegum vinningum t.d Pakkaferð á leik í Enska boltanum fyrir sigurverara deildarinnar. Sigurverari hvers mánaðar fer í pott þar sem dregið verður um utanlandsferð fyrir tvo og svo að sjálfsögðu vikulegir vinningar fyrir sigurverara hverrar umferðar. Kóðinn í deildina er: zmgv1y

    1 hr 13 min
  • Hugarburðarbolti

    Amad Diallo kláraði Man City í borgarslagnum á Etihad. Chelsea setur pressu á Liverpool þar sem Fulham náði í sterkt stig á Anfield. Arsenal ráðalausir gegn Everton á heimavelli. Crystal Palace fyrstir til að leggja Brighton í Brighton. Bæði Gary O'neil og Russel Martin voru reknir um helgina.

    1 hr 9 min
  • Hugarburðarbolti

    Cole Palmer sýning á Tottenham Hotspur Stadium. Bætti met Yaya Toure með því að skora úr 12 vítum í röð. Það er farið að hitna sætið hjá Big Ange hjá Spurs. Flottur Mbeumo gegn Newcastle í 4-2 sigri. Bæði Man City og Arsenal misstigu sig um helgina. Man Utd töpuðu á heimavelli gegn Forest. Og Everton - Liverpool var frestað vegna óveðurs.

    1 hr 10 min
  • Hugarburðarbolti þáttur 15 GW 14

    Þvílík skemmtun á St.Jamse's Park í 3-3 trylli. Fyrsta tap Ruben Amorim kom á Emirates gegn Arsenal. Ollie Watkins var sterkur gegn Brentford. Lopetegui verður að vinna næsta leik annars missir hann starfið hjá West Ham. Bournemouth lagði Tottenham á suður ströndinni 1-0 og Fulham sigraði Brighton.

    1 hr 28 min
  • Hugarburðarbolti GW 13


    Liverpool í gírnum gegn City! City í dýpstu lægð í stjóra tíð Guirdiola. Óvænt hetja Brentford manna gegn Leicester. Vítaþrenna Justin Kluivert gegn Wolves á útivelli! Marka veisla í fyrri hálfleik hjá West Ham og Arsenal. Góðir heimasigrar hjá Man Utd og Chelsea.

    1 hr 12 min
  • Hugarburðarbolti þáttur 13

    Liverpool á siglingu og eru með 8 stiga forskot í deildinni. Versti kafli Man City í 18 ár þegar þeir töpuðu fimmta leik sínum í röð! Áhyggjuefni fyrir nýjan stjóra Man Utd Ruben Amorim. Tottenham yrðu meistarar ef þeir myndu bara spila 38 leiki gegn Man City. Brighton með jafn mörg stig og Arsenal og Chelsea eftir 12.umferðir.

    1 hr 5 min
  • Hugarburðarbolti GW11

    Man City tapaði fjórða leiknum í röð í öllum keppnum! Liverpool eru í góðum gír með 5 stiga forskot á City. Yoane Wissa drjúgur fyrir Brentford eftir meiðslin. Joao Pedro með alvöru innkomu hjá Brighton! Bruno Fernandes kom loksins með frammistöðu og Sammie Szmodics afgreiddi Tottenham í London.

    1 hr 5 min
  • Hugarburðarbolti Þáttur 11

    Kevin De Bruyne með sýningu á Selhurst Park. Kai Haverts er búinn að troða sokk ofan í gagnrýnisraddir. Ollie Watkins mættur aftur og setti tvö. Luton með gríðarlega mikilvægan sigur í fallbaráttunni.
    Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

    1 hr 3 min
  • Hugarburðarbolti þáttur 10

    Tryllt þrenna hjá Foden og ekki sú fyrsta á tímabilinu. Cole Palmer er kóngurinn á brúnni. Alexis McAllister með einn eitt gullmarkið fyrir Liverpool. Fantasy spilarar grátt leiknir þessa umferðina. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

    1 hr 1 min
  • Hugarburðarbolti þáttur 9

    Liverpool aftur á toppinn. Stórmeistarajafntefli á Etihad. Newcastle með magnaðan endurkomusigur. Spurs og Villa bæði með sigra og spennan magnast líka í fallbaráttunni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

    1 hr 4 min

About Hugarburðarbolti

From the publisher's feed

22.000 manns á Íslandi spila fantasy leikinn í enska fótboltanum. Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp sem alla fantasy spilara þyrstir í.