
Sign up to save your podcasts
Or


Crystal Palace eina ósigraða liðið í deildinni gerðu sér lítið fyrir og skelltu meisturum Liverpool 2-1 á Selhurst Park. Arsenal með svakalegan endurkomusigur gegn sterku Newcastle liði á St.James's Park. Brentford vann Man Utd 3-1. Aston Villa vann loks sigur 3-1 gegn Fulham. Sunderland ævintýrið heldur bara áfram. Úlfarnir komust loksins á blað og Brighton skelltu Chelsea á Brúnni 1-3.
Liverpool eru með 5 stiga forskot í deildinni eftir 2-1 sigur í Bítlaborgarslagnum gegn Everton. Arsenal og Man City gerðu 1-1 jafntefli á Emirates. Man Utd unnu mikilvægan sigur á Chelsea 2-1 á Old Trafford. Allir nýliðarnir náðu í stig um helgina. Brighton og Tottenham gerðu 2-2 jafntefli á Amex og Bournemouth og Newcastle skildu markalaus 0-0 á suðurströndinni.
Man City sigraði Man Utd í slagnum um Manchester borg. Tottenham og Arsenal sigruðu bæði sína andstæðinga með sömu markatölunni. Bournemouth skelltu Brighton á Suðurströndinni. Nokkrir 0-0 leikir og Brentford og Chelsea gerðu 2-2 jafntefli á G-Tech vellinum í London.
Villi Neto kíkti til okkar í Hugarburðarbolta Extra og við fórum yfir það helsta. Völdum topp 5 bestu fantasy pikkin það sem af er tímabili. Kaup og sölur liðanna voru rædd og við rýndum í framhaldið eftir þetta landsleikjahlé. Fórum yfir liðin okkar og hverjar fyrirætlanir okkar eru í næstu umferðum.
Draumamark Dominiks Szobozlai skildi lið Liverpool og Arsenal að um helgina. Man Utd kreisti fram sigur á elleftu stundu. Brighton skellti Man City. West Ham létti pressunni af stjóra sínum með 0-3 sigri í Notthingham. Chelsea sigraði Fulham 2-0 í Lundúna slag á Brúnni og Tottenham lá á heimavelli 0-1 gegn spræku liði Bournemouth.
Tottenham lögðu Man City á Etihad sannfærandi. Arsenal löbbuðu yfir Leeds á heimavelli. Brentford sigraði Aston Villa 1-0. Everton með glæstan heimasigur í fyrsta leiknum á nýja stórglæsilega Hill Dickenson stadium. Chelsea kjöldrógu West Ham 1-5 á Ólympíu leikvanginum í London. Man Utd náðu í sterkt stig gegn Fulham í London. Hjálmar Örn skemmtikraftur og Spursari var gestur þáttarins og við fórum yfir umferðina.
Fyrsta umferðin fór af stað með látum á föstudagskvöld með Liverpool sigri á Bournemouth. Við Hreimur Örn Heimisson sem var gestur þáttarins fórum yfir þann leik ásamt öllu öðru sem gerðist í þessari fyrstu umferð tímabilsins 2025/26. Top 3 á sínum stað ásamt rauða spjaldinu og svo er það nýr liður sem er fantasy pick umferðarinnar.
Hugarburðarbolti fór aftur af stað. Fengum góða gesti en þeir Villi Neto og Hreimur Örn komu til okkar og ræddu við okkur allt sem þú þarft að vita um enska boltann og fantasy leikinn.
Það komu frábærir gestir í uppgjörs þátt Hugarburðarbolta. Villi Neto og Davíð Guðbrands gerðu upp tímabilið með okkur og vinningshafar voru krýndir. Þökkum kærlega fyrir tímabilið og heyrumst á því næsta.
Newcastle, Aston Villa og Nottingham Forest töpuðu öll sínum leikjum í baráttunni um meistaradeildarsætin. Evrópudeildarmeistarar Tottenham steinlágu á heimavelli gegn Brighton 1-4Man Utd kvöddu stuðningsmenn sína með sigri og á Anfield fór Englandsbikarinn á loft.
From the publisher's feed