
Sign up to save your podcasts
Or


Fórum yfir GW17 í aðdraganda jóla og spáðum í leikina sem fóru fram. Í fyrsta skipti í sögu Hugarburðarbolta krýndum við Drottningu umferðarinnar. Gleðileg jól!
Fengum góða gesti í stúdíóið til að fara yfir leiki umferðarinnar.Úlfarnir skoruðu öll þrjú mörk leiksins á Emirates en töpuðu samt gegn Arsenal. Man City eru komnir í gang og setja pressu á Arsenal með 0-3 sigri á Crystal Palace. Liverpool sigraði Brighton 2-0 þar sem Mo Salah kom inn á strax í fyrri hálfleik við mikinn fögnuð stuðningsmanna. Aston Villa heldur áfram frábæru gengi og unnu glæstan 2-3 útisigur á West Ham. Chelsea unnu og Cole Palmer er mættur. Notthingham Forest vann Tottenham frekar þægilega 3-0 og Man Utd og Bournemouth gerðu 4-4 jafntefli í trylli á Old Trafford.
Fórum yfir 15 umferð deildarinnar og byrjuðum á að skauta yfir þá fjórtándu. Það var af nógu að taka þegar jólamánuðurinn er genginn í garð. Annar þáttastjórnenda fór og skellti sér á Emirates og sá sigurleik undir ljósunum 2-0 sigur Arsenal gegn Brentford.
Hreimur Örn tónlistarmaður og harður Liverpool stuðningsmaður hefur ennþá trú á sínum mönnum. Við ræddum allt um GW13 í enska boltanum og það var jólastemmning í stúdíó 1.
Arsenal valtaði yfir Tottenham 4-1 í Norður Lundúna slagnum. Liverpool steinlá á heimavelli gegn Nottingham Forest 0-3. Newcastle vann Man City 2-1 í frábærum leik á St.James's Park. Chelsea sigraði Burnley 0-2 á útivelli. Brighton vann endurkomusigur gegn Brentford. Crystal Palace lagði Úlfana sannfærandi á útivelli og Everton lagði Man Utd 0-1 á Old Trafford.
Man City kjöldrógu Liverpool í risaslag helgarinnar.Svörtu kettirnir náðu í stig gegn toppliði Arsenal. Tottenham og Man Utd gerðu 2-2 jafntefli í London. Er orðið heitt undir Eddie Howe eftir 3-1 tap gegn Brentford? Aston Villa komust aftur á sigurbraut um helgina. Everton unnu sterkan heimasigur gegn Fulham. West Ham unnu lífsnauðsynlegan 3-2 sigur gegn Burnley og leikur Crystal Palace og Brighton stóð ekki alveg undir væntingum.
Arsenal með 6 stiga forskot á Man City á toppnum eftir 0-2 sigur gegn nýliðum Burnley. Loksins vann Liverpool sigur þegar Aston Villa kom í heimsókn. Chelsea lagði Tottenham á útivelli þar sem að Joaõ Pedro skoraði sigurmarkið. West Ham með langþráðan sigur á Newcastle. Man Utd tókst ekki að halda sigurgöngu sinni áfram í Skírisskógi. Brighton og Crystal Palace með góða sigra og Erling Haaland heldur áfram að vera heitur þegar City lögðu Bournemouth.
Englandsmeistararnir töpuðu sínum fjórða leik í röð í deildinni. Arsenal með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar. Man City og Chelsea töpuðu bæði sínum leikjum um helgina. Man Utd spiluðu sinn besta leik á tímabilinu. Nýliðarnir unnu sína leiki og Bournemouth eru í 2.sæti deildarinnar eftir 9.umferðir.
Man Utd lagði Liverpool á Anfield 1-2 í hörkuleik. Arsenal lagði Fulham í kotinu 0-1 á lau kvöldið. Aston Villa sigraði Tottenham á Tottenham Hotspur Stadium 1-2. Sunderland halda áfram að gera góða hluti. Brighton lagði Newcastle á Amex og Erling Haaland er áfram á eldi hjá ljósblá liðum Man City.
Arsenal komnir á toppinn í deildinni eftir helgina. Semenyo áfram á eldi. Chelsea vann Liverpool á Brúnni. Manchester liðin unnu bæði sína leiki um helgina. Everton með rosalegan endurkomusigur gegn Crystal Palace. Nottingham Forest í brasi eftir enn eitt tapið og núna gegn Newcastle í norðrinu.
From the publisher's feed