
Sign up to save your podcasts
Or


Arsenal eru komnir með 7 stiga forskot í deildinni eftir sigur á Brighton á Amex 0-1. Man City missteig sig í 2-2 jafntefli gegn Nottingham Forest á Etihad. Man Utd og Liverpool lutu bæði í gras gegn andstæðingum sínum og Tottenham er einungis 1 stigi fyrir ofan fallsæti eftir tap í Lundúnaslag gegn Crystal Palace á heimavelli.
Arsenal eru áfram með 5 stiga forskot á toppi deildarinnar. Það var markasúpa í leikjum helgarinnar. Liverpool vann West Ham 5-2 á Anfield. Burnley tapaði 3-4 gegn Brentford eftir hetjulega baráttu. Man City unnu sterkan 0-1 sigur gegn góðum Leedsurum og Newcastle tapaði 2-3 heima gegn Everton. Þetta og allt hitt í þættinum.
Arsenal eru með montréttinn í Norður London eftir helgina. Liverpool fóru eins og Hrói Höttur um Nottingham borg og stálu 0-1 sigri gegn Forest. Man City sigraði Newcastle 2-1. Man Utd gerðu góða ferð til Liverpool borgar og unnu Everton 0-1. Fulham og Brighton með flotta útisigra um helgina og James Milner er orðinn leikjahæsti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar þegar hann lék sinn 654. leik.
Man City saxar á forskot Arsenal. Var þetta stærsta klúður tímabilsins? Liverpool fyrstir til að sigra Sunderland á Leikvangi Ljóssins. Thomas Frank og Sean Dyche eru orðnir atvinnulausir í bili. Sesko bjargaði Man Utd í London gegn West Ham. Mávarnir í frjálsu falli og Jörgen Strand Larsen byrjar vel í fyrsta heimaleik sínum en ævintýrið endaði ekki vel.
Man City sigraði Liverpool á Anfield og loksins skoraði Erling Braut Haaland. Arsenal vann Sunderland fagmannlega á Emirates. Man Utd með þægilegan 2-0 sigur á Tottenham á Old Trafford. West Ham náðu í 3 stig á Turf Moor. Brentford gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Newcastle 2-3 í norðrinu. Cole Palmer þakkaði fyrirliða traustið með því að henda í þrennu á 38 mínútum!
Arsenal eru með 6 stiga forskot eftir leiki helgarinnar. Tottenham og Man City gerðu 2-2 jafntefli í Norður London. Liverpool sigruðu Newcastle 4-1 á Anfield Road. Man Utd með 3-2 sigur á Fulham í spennu trylli. Aston Villa þurftu að lúta í gras á heimavelli gegn góðu Brentford liði 0-1. Þetta og allt hitt í GW24.
Man Utd skellti toppliði Arsenal á Emirates vellinum 2-3. Chelsea og Man Utd komust upp fyrir Liverpool með tapi þeirra síðast nefndu gegn Bournemouth 3-2 á suðurströndinni. Crystal Palace tapaði 1-3 gegn Chelsea í Lundúna slag. West Ham unnu annan leik sinn í röð. Newcastle tapaði gegn Aston Villa á sínum heimavelli 0-2 um helgina og Everton og Leeds skildu jöfn.
Man Utd sýndu gamla góða takta í 2-0 sigri á Man City á Old Trafford. Arsenal breikkaði bilið á toppnum í 7 stig þrátt fyrir 0-0 jafntefli gegn Notthingham Forest í Skýriskógi. Liverpool missteig sig gegn nýliðum Burnley 1-1 á Anfield. Það gengur ekkert upp hjá Tottenham í deildinni. Sunderland halda áfram að vera í Evrópubaráttu. Aston Villa tapaði heimaleik eftir svakalega sigurgöngu.
Stórmeistara jafntefli 0-0 á Emirates hjá Arsenal og Liverpool í mígandi rigningu. Igor Thiago er ekkert að grínast með formið á sér. Fulham skellti Chelsea í kotinu. Man City og Aston Villa náðu ekki sigrum í sínum leikjum. Svakalegur leikur á St.James's Park þegar Newcastle lagði Leeds 4-3. Antoine Semenyo átti fallega kveðjustund fyrir Kirsuberin í 3-2 sigri gegn Tottenham. Degi seinna keypti Man City hann. Man Utd voru að spila gegn Burnley úti eftir að Ruben Amorim var rekinn.
Arsenal á toppnum þegar árið 2026 er gengið í garð. Unnu Aston Villa 4-1 í toppslag umferðarinnar. Enso Maresca er hættur með Chelsea. Var þetta planað hjá honum? Liverpool kraftlitlir á nýársdag heima gegn Leeds í 0-0 jafntefli. Man City náði ekki að vinna á leikvangi ljóssins en munu engu að síður vera í toppbaráttunni.
From the publisher's feed