
Sign up to save your podcasts
Or


Í þessum þætti ræðum við við Vigni Vatnar Stefánsson, einn fremsta skákmann þjóðarinnar og nýkrýndan stórmeistara.
Í þættinum talar hann um mikilvægi líkamlegs og andlegs heilbrigðis. Einnig kemur hann inn á erfið tímabil, þunglyndi, sjálfsvígshugsanir, bróðurmissir og hvernig hann tókst á við þær áskoranir
Í þættinum er rætt við Láru Kristínu Pedersen, fyrrum landsliðskonu í knattspyrnu. Lára opnar sig um reynslu sína af atvinnumennskunni og þeim andlegu áskorunum sem fylgja afreksíþróttum. Þá ræddum við um matarfíkn og pressuna sem fylgir því að spila á hæsta stigi.
Í þessum þætti er rætt við Arnar Pétursson, einn sigursælasta hlaupara í sögu Íslands. Arnar er sjötíu og þrefaldur Íslandsmeistari, hefur sigrað Laugaveginn tvisvar, sett Íslandsmet í 100 kílómetra hlaupi og keppt fjórum sinnum á HM í hálfmaraþoni og einu sinni á HM í utanvegahlaupum. Arnar ræðir um mikilvægi sterks hugarfars og hvernig maður fær það mesta úr sjálfum sér í keppni.
Agnar Smári Jónsson, handknattleiksmaður, var gestur í níunda þætti. Agnar Smári á farsælan feril á bakinu. Hann talar um baráttu sína við átröskun og afleiðingar hennar, þ.á.m. sjálfsvígshugsanir, og pressuna á að halda andliti og frammistöðu undir pressu. Áhugaverður þáttur um mikilvægt málefni.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson, knattspyrnumaður, heimspekingur og kennari, var gestur í áttunda þætti. Arnór Sveinn á langan feril í knattspyrnu. Hann segir frá sinni nálgun á hugarfari bæði innan knattspyrnunnar sem og í lífinu. Þá fer hann yfir hvernig hann fann ástríðuna aftur eftir að hafa misst hana um tíma. Arnór Sveinn útskýrir dyggðarsiðfræði og lýsir hvernig hann nýtir sér þau fræði til að verða betri knattspyrnumaður og manneskja.
Anton Sveinn McKee, afreksmaður í sundi og Ólympíufari, var gestur í sjöunda þætti. Anton fer yfir feril sinn og segir frá hinum ýmsu verkfærum sem hann nýtti til að ná sínum árangri. Anton fór inn á sín gildi sem íþróttamaður og bað okkur um að bæta hér í textann þriðja gildinu sem hann gleymdi að nefna í viðtalinu. Gildin hans eru þrjú; óttalaus, vera í núvitund og óbrjótanlegur.
Hann kemur einnig inn á mikilvægi þess að bæta umgjörð fyrir afreksfólk á Íslandi til að framleiða enn fleiri afreksfólk.
Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþrautarkona og Ólympíufari, var gestur í þætti sex. Guðlaug Edda fer yfir Ólympíuleikana í París, mótlæti og meiðsli sem hún hefur gengur í gegnum og segir frá þróun hennar sem íþróttakonu. Þá fer hún yfir hvernig hún þjálfaði líkama og huga fyrir íþróttina og sitt daglega líf.
Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta og leikmaður Vals, var gestur í þætti 5. Farið var yfir sögu hans og Kristófer gaf góð dæmi um hvernig hugurinn getur reynt að leika gegn manni innan sem utan vallar. Hann lýsir því hvernig hann vann sérstaklega í að þjálfa sig að mæta huganum.
Hildur Antonsdóttir, landsliðs- og atvinnukona í knattspyrnu, var gestur í fjórða þætti. Farið var yfir meiðsli og mótlæti sem hafa haft áhrif á feril Hildar. Hún ræðir mikilvægi þess að þjálfa hugann líkt og líkamann. Hildur lýsir hvernig hún þjálfar hugann, meðal annars með sjónmyndaþjálfun, og ræðir áhrif sjálfstrausts á frammistöðu.
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks í knattspyrnu, var gestur í þriðja þætti Hugræns Styrks. Höskuldur segir frá erfiðleikum sem hann hefur gengið í gegnum, bæði á knattspyrnuferlinum sem og í lífinu. Hann segir frá tímanum eftir að eldri bróðir hans féll frá, þá hvernig hans upplifun var og hvernig hann vann með það áfall.
From the publisher's feed