Hulin Öfl

Hulin Öfl

Download on the App Store

Hulin Öfl episodes

  • 20. Dáleiðsla

    Flest höfum við heyrt um dáleiðslu, en hvað felst í henni í raun og veru?


    Í þessum þætti sviptum við hulunni af dáleiðslu, skoðum mismunandi tegundir og hvernig hún er notuð til að vinna úr áföllum, losna við hræðslu, venja sig af ósiðum eins og reykingum og skoða fyrri líf og aðrar víddir!


    Er dáleiðsla einfaldlega leidd hugleiðsla?


    Við deilum eigin reynslu, ræðum heilsubætandi eiginleika hennar og veltum fyrir okkur áhrifunum sem hún getur haft á líf okkar.


    Hafðu samband við okkur;

    [email protected]


    Heimasíðan okkar;

    ⁠www.hulinofl.com⁠


    Lokaður spjallhópur;

    ⁠www.facebook.com/groups/hulinofl⁠


    Síðan hennar Katrínar;

    www.fyrrilif.com

    53 min
  • 19. Mandela Áhrifin

    Hvernig getur stór hópur fólks verið viss um atburði, staðreyndir og fræg verk sem í raun hafa aldrei verið til?


    Í þessum þætti köfum við ofan í dularfulla fyrirbærið Mandela áhrifin og ræðum þekktar rangminningar eins og „Luke, I am your father,“ skottið á Pikachu og kvikmyndina Shazaam sem aldrei var gerð.


    Við skoðum mögulegar skýringar á þessu fyrirbæri, allt frá minnisvillum til kenninga um fjölvíddar veröld.

    Er mögulegt að við séum að hoppa milli veruleika?


    Kannast þú við eitthvað af þeim Mandela Áhrifum sem við nefndum í þættinum?


    Hafðu samband við okkur;

    [email protected]


    Heimasíðan okkar;

    www.hulinofl.com


    Lokaður spjallhópur;

    www.facebook.com/groups/hulinofl

    51 min
  • 18. Álfar & Huldufólk

    Hvað vitum við í raun um álfa og huldufólk?

    Í þessum þætti förum við í ferðalag inn í heim þeirra goðsagna og sagna sem við höfum um þessar dularfullu verur.

    Við kynnumst mismunandi tegundum álfa, allt frá garðálfum til búálfa, og skoðum hvernig íslensk þjóðtrú lýsir þeim sem náttúruverum í klettum og steinum, oft með spíss eyru og ótrúlega þrautseigju þegar kemur að því að verja heimili sín.


    Við förum líka inn í sögu huldufólksins, sem er oft lýst sem líkara mannfólki en býr fjarri okkur í hólum og hæðum. Huldufólkið er sagt geta lagt álög á mannfólkið, á meðan álfarnir eru gjarnan hrekkjóttir og vilja vernda sitt.

    En á sama tíma virðist þetta stundum vera eitt og hið sama.

    Í þættinum munum við deila ýmsum frásögnum af álfum og huldufólki, uppgötva tengslin við norræna goðafræði og líta til annarra menninga eins og á Írlandi og Skotlandi, þar sem þessar verur eru kallaðar „the fairies“ og tengdar gömlum gyðjum og þjóðsagnaverum.


    Hver er raunverulega sagan á bak við álfa og huldufólk?


    Skoðið nýju heimasíðuna okkar!

    www.hulinofl.com


    Verið með í lokaða Facebook hópnum!

    www.facebook.com/groups/hulinofl


    Sendu okkur póst!

    1 hr 9 min
  • 17. Nahanni Dalurinn

    Í þessum þætti skoðum við Nahanni dalinn í norðvestur Kanada, einnig kallaður "dalur hinna hauslausu" og "dalur dauðans."

    Dalurinn geymir myrka leyndardóma: óútskýrð mannshvörf og dularfull dauðsföll, þar sem höfuðlausar líkamsleifar hafa fundist og fólk hreinlega horfið sporlaust. Við skoðum líka þjóðsögur um loðna risa, illar verur og ógnvekjandi anda sem eru taldir vernda dalinn.

    Hvað er eiginlega á seyði?


    Skoðið nýju heimasíðuna okkar!

    www.hulinofl.com


    Verið með í lokaða Facebook hópnum!

    www.facebook.com/groups/hulinofl


    Sendu okkur póst!


    1 hr 4 min
  • 16. Dúkkur

    Í þessum þætti skoða Anna og Katrín dularfullar, andsetnar dúkkur.

    Þær ræða hvernig dúkkur hafa lengi verið tengdar krípí tilfinningum, sérstaklega þegar þær verða of raunverulegar.

    Katrín útskýrir hugtakið "uncanny valley" og tengir það við hvers vegna okkur finnst dúkkur, trúðar og tölvuleikjapersónur stundum óþægilegar. Svo kemur umræðan um dularfullar dúkkur sem hreyfa sig, tala eða gera enn furðulegri hluti.

    Spurningin er: hvað er í gangi með þessar dúkkur?


    Skoðaðu brot úr þættinum um "Suzy Doll" hér;

    https://youtu.be/e88nJUiQkSs?si=d7FPmIDqiM3n2HAy


    Skoðið nýju heimasíðuna okkar!

    www.hulinofl.com


    Verið með í lokaða Facebook hópnum!

    www.facebook.com/groups/hulinofl


    Sendu okkur póst!

    1 hr 15 min
  • 15. Mismunandi Sálir

    Í þessum þætti fjöllum við um kenningar sem tengjast mismunandi uppruna og tilgangi sálna á jörðinni.

    Við skoðum kenningar þriggja sérfræðinga, Dolores Cannon, Michael Newton og Lindu Backman, sem hafa rannsakað þróun sálna í gegnum dáleiðslu.

    Þau tala um mismunandi hópa sálna, allt frá jarðbundnum sálum til þeirra sem koma frá öðrum víddum eða plánetum, og hvernig þær sálir koma til að hjálpa mannkyninu.


    Við skoðum þessar kenningar og hvort sálir séu í raun jafn mismunandi og þær virðast vera, eða hvort þær séu allar hluti af stærra samhengi.


    Vertu með okkur í lokaða Facebook hópnum!

    www.facebook.com/groups/hulinofl

    Sendu okkur póst!

    40 min
  • 14. Heilun, Spá & Miðlun

    Við förum yfir helstu hugtök og skilgreiningar á þessum áhugaverðu aðferðum.


    Spátæki - Spil & Pendúll:

    https://open.spotify.com/episode/5fmLMp9cRV9guDdlTxqyv7?si=95cec7e6e2da44fa


    Spátæki - Bollaspá & Ósjálfráð Skrift:

    https://open.spotify.com/episode/5wOBhf7YsPekr0GHwe8gO3?si=b17005d1c5d34d0a


    Vertu með okkur í lokaða Facebook hópnum!

    www.facebook/groups/hulinofl


    Sendu okkur skilaboð!

    1 hr 10 min
  • 13. Ódauðleikavilla

    Þessi þáttur fjallar um það merkilega fyrirbæri: Ódauðleikavillu eða Quantum Immortality.

    Er fólk að sveiflast á milli vídda, færast í aðra vídd ef það deyr fyrir aldur fram hér í okkar vídd?


    Vertu með okkur í lokaða Facebook hópnum;

    www.facebook.com/groups/hulinofl


    Sendu okkur póst;

    1 hr 5 min
  • 12. Sálarflakk

    Fyrsti þátturinn í seríu 2 fjallar um sálarflakk!

    Hvað er sálarflakk og hver er ávinningurinn af því?


    Monroe Institute;

    https://www.monroeinstitute.org


    Kennslumyndband;

    https://youtu.be/hxJEnwvbl8w?si=nmnqr3qBQCkXmoCg



    Lokaði hópurinn okkar á Facebook;

    www.facebook.com/groups/hulinofl


    Sendu okkur póst!



    54 min

About Hulin Öfl

From the publisher's feed

Hulin Öfl með Önnu Kristínu & Katrínu er podcast um allskonar andleg málefni, við förum um víðan völl með hlustendum og sviptum hulunni af hinum ýmsu huldu öflum.