Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Í hlaðvarpinu Hús&Hillbilly fara systurnar Ragga og Magga Weisshappel inná vinnustofur listamanna og eiga við þá tímalaust spjall um líf og list, allt og ekkert, himinn og jörð og það sem er á mil... more
FAQs about Hús & Hillbilly:How many episodes does Hús & Hillbilly have?The podcast currently has 13 episodes available.
March 19, 2021#13 Rán FlygenringRán Flygenring er alltmúlígtmanneskja og heimskona mikil. Hillbilly heimsótti hana á vinnustofu í Vesturbænum um jólin. Hún gleður okkur flest, og fræðir, með teikningum sínum sem rúmast í mörgum bókum og blöðum. Hún er líka mjög skemmtileg. Og smart. Og klár. Til þess að skoða það sem Rán býr til er hægt að fara inná þessa heimasíðu hér: http://ranflygenring.com/...more0minPlay
November 14, 2020#12 Ragnar KjartanssonHillbilly heimsótti Ragnar Kjartanson á vinnustofu hans í Reykjavík. Það var innsetning í vinnslu, rússnesk stemning, flippaður bar og á stofuborðinu lá bókin „Í dag varð ég kona” eftir Gunnar Dal. Bókin vakti athygli Hillbillyar og Ragnar var svo vænn að lesa uppúr bókinni fyrir hana. Spjallið fór svo útum allt, frá leiklist yfir í tónlist og myndlist og allt þar á milli. Eftir viðtalið er það staðfest að Ragnar er mjög fabulous, eða allavega þykist hann vera það....more0minPlay
October 23, 2020#11 Haraldur JónssonAð koma inn á vinnustofu Haraldar Jónssonar var eins og að vera umfaðmaður hálsakoti barns, eins og hann orðaði það vel sjálfur. Mjúk og sæt lykt tók á móti okkur þegar við hittumst í spjall í miðbænum. Haraldur er einlægur og orðar hlutina heppilega, og minnir okkur öll á að gleyma ekki að undrast....more0minPlay
October 16, 2020#10 Halldór BaldurssonÞað þekkja allir teikningar Halldórs Baldurssonar. Sumir sjá hreinlega fyrir sér teikningar hans þegar þeir hugsa um ákveðna pólitíkusa. Hann er þó með móral yfir hvernig hann teiknaði Katrínu Jakobsdóttur, en hann neyðist til að halda áfram að teikna hana þannig. Hillbilly heimsótti Halldór Baldursson á vinnustofu hans....more0minPlay
October 04, 2020#9 RúríRúrí er gestur Hillbillyar í dag og eins og oft gerist í svo stuttu spjalli þá er margt sem kemst ekki að. Til dæmis töluðum við ekki um framlag hennar á Feneyjartvíæringinn 2003 Arkív, endangered waters, gagnvirka innsetningu sem samanstóð af 52 ljósmyndum af fossum, en við töluðum hins vegar um fyrsta fossinn sem fangaði athygli hennar á barnsaldri og hún fangaði á fyrstu filmuna sína. Svo ræddum við líka frið og bíla. Á heimasíðu listamannsins, www.ruri.is er m.a. hægt að sjá allt um feneyjarverkið og þar sést ljósgrátt á hvítu hve ótrúlega frjó og afkastamikil hún hefur verið og er enn að sjálfsögðu. Verk Rúríar eiga alltaf við. Eftirfarandi tilvitnun er af heimasíðunni: Certainly, water will become the blue gold of our future....more0minPlay
September 11, 2020#8 Lóa HjálmtýsdóttirHillbilly heimsótti Lóu Hjálmtýsdóttur í vinnustofuna/búðina hennar í Hafnarstræti þar sem pizzulykt fyllir öll vit. Lóa spjallaði um húmorinn, teikninámið í New York og þegar Kim Kardashian fékk sér pulsu....more0minPlay
August 28, 2020#7 Kristinn Már Pálmason„Þegar ég kem hingað inn langar mig svo að fara að mála,“ sagði önnur Hillbilly-systirin þegar hún gekk inn á vinnustofu Kristins Más Pálmasonar. Veggir fullir af litlum formum, listaverkum - kláruðum og í vinnslu, blað sem á stóð sellerí, ljósakróna á fáránlegum stað og tónlist í bakgrunni. Kristinn spjallaði um skrimtið, árin í London og bauð Hillbilly að smakka níkótín-töflur....more0minPlay
August 21, 2020#6 Margrét H. BlöndalHillbilly var gestur númer tvö á nýju vinnustofu Margrétar Blöndal. Birtan frá stóra glugganum féll svo fallega á myndir af blómum sem Margrét hafði gert og hengt upp. Út um gluggan sást í Hallgrímskirkjuturn og Sundhöll Reykjavíkur, jarðarber og ruccola salat var borið fram og Margrét talaði meðal annars um mikilvægi þess að langa í eitthvað, en ekki fá....more0minPlay
July 31, 2020#5 Páll HaukurPáll Haukur var skemmtilegur heim að sækja. Hann átti líka skemmtilegan kött (Gulrót). Rétt eins og Hillbilly er hann smá sveitalubbi, ferskur úr Mosfellssveit....more0minPlay
July 10, 2020#4 Rakel McMahonRakel McMahon er mikið sjarmatröll, þó hún sé í dulargervi álfs. Hillbilly kíkti heim til hennar þarsem hún vinnur að sinni myndlist þegar hún er á íslandi. Annars heldur hún sig í Aþenu þaðan semfréttaflutningur er ekki alltaf fagur en listalífið blómstrar....more0minPlay
FAQs about Hús & Hillbilly:How many episodes does Hús & Hillbilly have?The podcast currently has 13 episodes available.