Í þessum þætti köfum við ofan í vegferð BOOZT, fyrirtækis sem hefur á tiltölulega skömmum tíma byggt upp eitt öflugasta netverslunarkerfi Norðurlanda.
Við ætlum ekki bara að segja söguna heldur rýna í hvað liggur raunverulega að baki árangrinum og hvað önnur fyrirtæki geta lært af þessari vegferð.
Við ræðum sérstaklega stefnu, omnichannel nálgun, mælikvarða, hlutverk stjórnar ásamt framtíðarhorfum og áhrif gervigreindar á verslun og þjónustu.
Viðmælandi minn er Jón Björnsson stjórnarmaður hjá BOOZT.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um:
· Þróun Boozt frá startup í risaveldi
· Af hverju Boozt lítur á sig sem tæknifyrirtæki, ekki bara verslun
· Last mile leyndarmálið sem breytti leiknum
· Mælikvarðana sem skipta máli og þá sem geta drepið vöxt
· Hvað gerist þegar birgjar sjá gögnin þín í rauntíma
· Hlutverk stjórnamanna, stjórnarformanns og samsetning stjórna
· Hvað stjórnendur fyrirtækja eiga aldrei að hætta að gera
· Gervigreindina og framtíðina
.... og margt fleira.
Þá viltu ekki missa af þessum þætti!