Jóns

Jóns

By Óli JónsBusiness
Download on the App Store

All Jóns episodes

  • FKA Svana Jóhannsdóttir
    Fyrir tæpum mánuði síðan koma í heimsókn til mín hún Svana Jóhannsdóttir eftir að hafa sent mér póst um að koma í spjall með þessari kynningu "Ég hef búið í Ecuador sem skiptinemi, í Argentínu til að læra að syngja tangó, í London sem aðstoðarleikstjóri og sýningarstjóri í fjórum leikhúsum á West End, í Barcelona sem viðskiptafræðinemi og seinna í spænskri sveit sem eiginkona sláturhússstjórans".
    42 min
  • 98. Harpa Guðmundsdóttir
    Það var mér sönn ánægja og mikill heiður að fá að spjalla í stutta stund við kjarnakonuna og frumkvöðulinn Hörpu Guðmundsdóttur núna í júli.
    Harpa sem er iðjuþjálfi tók þátt í því að stofan Vesturafl  sem er "geðræktar og virknimiðstöð fyrir fólk sem vegna sjúkdóma, veikinda og/eða annarra tímabundinna aðstæðna býr við skert lífsgæði og getur því ekki tekið eins virkan þátt í samfélaginu og það óskar. Í Vesturafli er boðið uppá fjölbreytta þjónustu við hæfi hvers og eins. Í miðstöðinni er starfandi iðjuþjálfi sem aðstoðar fólk við að setja sér markmið og finna leiðir til að ná þeim"
    Harpa segir okkur frá tilkomu Vesturafls, hvernig rekstrinum er háttað ásamt því hvernig það er að búa á Ísafirði.
    Skemmtilegt viðtal við konu sem svo sannarlega lætur ekki sitt eftir liggja og lætur hendur standa fram úr ermum í öllu sem hún fæst við.
    33 min
  • FKA Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
    Það er óhætt að segja að Ágústa Sigrún sé með marga hatta. Hún er menntuð í og hefur starfað við markþjálfun, mannauðsstjórnun, sáttamiðlun, fararstjórn og söng svo eitthvað sé nefnt. Í þessu viðtalið fer Ágústa yfir þetta ásamt mörgu fleiru.
    28 min
  • FKA Eva Magnúsdóttir
    Ég hitti Evu Magnúsdóttur í júní síðast liðnum og þar ræddum við um hennar líf og störf. Hún sagði mér frá fyrirtækinu sínu Podium en það býður uppá sérfræðikunnáttu í stefnumótun, sjáfbærni og ímynd fyrirtækja. Eva sagði okkur líka frá Landvættinum sem hún er að taka þátt og frá FKA.
    40 min
  • FKA Thelma Kristín Kvaran
    Skemmtilegt viðtal við Thelmu Kristínu Kvaran þar sem hún segir okkur frá sínum náms og starfsferli, útskýrir fyrir okkur Jafnvægisvogina og ræðir um FKA framtíð og margt fleira.
    32 min
  • 97. Þór Sigurðsson
    Þór Sigurðsson frumkvöðull og stofnandi Expluria er viðmælandi Óla Jóns í þætti 97.
    Þór segir okkur frá startup verkefnum sem hann hefur komið að og kynnir okkur einnig fyrir Expluria.
    Á expluria.com segir um fyrirtækið
    "We believe connectivity and communication help create unforgettable travel experiences
    Expluria empowers tour operators, guides and booking offices, helping them provide unrivalled customer service experiences to travellers.
    ‍Our app is powered by a rich feature set that includes real-time notifications, all designed to help tour operators to do what they do best."
    32 min
  • 96. Þóranna Jónsdóttir
    Í þessum þætti fáum við að heyra í Þórönnu Jónsdóttir en hún er markaðs- og kynningarstjóri hjá Samtökum verslunar og þjónustu. Þóranna segir okkur frá SVÞ, og leiðinni frá leiklist og söng í störf við markaðsmál, hvað efnismarkaðssetning er og margt fleira.
    29 min
  • FKA Lilja Bjarnadóttir
    Í þessum þætti fáum við að kynnast Lilju Bjarnadóttur.
    Lilja er með fyrirtækið Sáttaleiðin sem hún hefur rekið frá árinu 2015 og er ein af fáum starfandi sáttamiðlurum á landinu. Lilja hjálpar fólki að leysa ágreiningsmál af ýmsum toga, t.d. skilnaðarmál, umgengnismál, erfðamál, viðskiptadeilur, samskiptaerfiðleika á vinnustað og margt fleira.
    25 min
  • FKA Hafdís Erla Bogadóttir
    Við höldum áfram að ræða við skemmtilegar FKA konur í þetta skiptið er það frumkvöðullinn Hafdís Erla Bogadóttir. Þessa dagana er hún og hennar fólk að kynna nýtt Ratleikjaapp. Appið er unnið í samvinnu við sveitarfélög og er það Akranesbær sem ríður á vaðið í tengslum við Írska daga.
    29 min
  • 95. Einar Þór Gústafsson
    Gestur minn í þetta sinn er Einar Þór Gústafsson meðstofnandi Getlocal sem er 4 ára sprotafyrirtæki sem hefur stækkað hratt. Í dag er Getlocal með 60 kúnna í 40 löndum. Einar segir að Getlocal sé einskonar Shopify fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu.
    34 min