Jóns

Jóns

By Óli JónsBusiness
Download on the App Store

All Jóns episodes

  • 103. Silja Thor
    Silja Thor sem er Startup Coach hitti Óla Jóns í sumar í heimsókn sinni til Íslands. Silja hefur búið í 9 löndum en býr í núna í Hollandi. Hún hefur mikla reynslu í hinum stóra Startup heimi, hún segir okkur frá honum og sínu starfi. Silja segir okkur líka frá hjálparstarfi sem hún vinnur í Úganda ásamt ýmsu fleiru. Silja stendur einnig fyrir námskeiðum með Ellen Ragnars sem kom í þátt 73 á femalefounder.io
    Inner Tribe er einnig eitt af fjölmörgum verkefnum sem Silja kemur að og hægt að nálgast allar upplýsingar um það hér.
    Silja hvetur alla sem hafa áhuga á að hafa samband við sig í gegnum Linkedin.
    29 min
  • FKA Ásta Guðmundsdóttir
    Ásta Guðmundsdóttir er forstöðumaður Kerfisreksturs og Framlínuþjónustu hjá Origo.
    Ásta segir okkur frá því að hún eignaðist barn áður en hún varð 18 ára eftir að hafa flosnað upp úr námi en svo kom vendipunktur þar sem hún ákvað að fara í meira nám og flutti á Bifröst. Þar kláraði hún viðskiptafræði og í kjölfarið fór hún svo til Bretlands í meistaranám í verkefnastjórnun.
    Ásta segir okkur þessum tímum ásamt lífinu í dag, vinnunni og fjölskyldunni.
    31 min
  • 102. Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir
    Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar er gestur Óla Jóns í þætti 102. Við ræddum markaðsmál, menntun, lífið og tilveruna.
    Hulda kemur einnig inn á hvernig er hægt að nýta sér betur samfélagsmiðla til markaðsetningar og algeng mistök í því sambandi. Við ræðum golf og fótbolta en Hulda sem er frá Akranesi starfaði um tíma hjá ÍA og er einnig menntaður golfkennari.
    52 min
  • FKA Rakel Lind Hauksdóttir
    Rakel Lind Hauksdóttir er fjármála- og fjáröflunarstjóri hjá SOS barnaþorp. Í þessu einlæga viðtali segir Rakel okkur frá því meðal annars hvað varð til að hún hóf störf hjá SOS barnaþorp. Rakel segir okkur einnig frá starfseminni þar og sögunni.
    Rakel sem nýlega var kjörin í stjórn FKA framtíð segir okkur frá því hvers vegna hún telur mikilvægt að taka þátt í félagsstörfum ásamt því að segja okkur frá því hvaða félagsstörfum hún hefur tekið þátt í.
    33 min
  • 101. Gréta María Grétarsdóttir
    Gréta sem ólst upp úti á landi segir það forréttindi að alast upp upp þar. Íþróttir hafa alltaf átt stóran þátt í lífi Grétu en hún á að baki glæstan feril í körfuboltanum bæði sem leikmaður og þjálfari. Hún þjálfaði meistaraflokk KR og segir okkur frá því að það hafi í raun verið fyrsta alvöru stjórnunarstaðan. Bæði sem þjálfari og stjórnandi hefur Gréta lagt áherslu á að hjálpa fólki að hafa trú á sér. Gréta sem útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólinn í Hamrahlíð segist ekki hafa verið dæmigerður MHingur. Gréta lærði svo vélaverkfræði í háskóla. Meistarverkefnið hennar fjallaði svo um vöruþróun. Gréta starfaði meðal annars hjá Arionbanka í 6 ár, sem fjármálastjóri hjá Festi og svo sem framkævmdastjóri Krónunnar. Eins og áður segir lítur Gréta á sitt aðal hlutverk sem stjórnanda að hjálpa sínu fólki að vaxa.
    Gréta leggur einnig mikla áherslu að fyrirtæki geri allt sem þau geta til að láta gott að sér leiða og nefnir sem dæmi í umhverfsimálum og í jafnréttisbaráttu. Að allir nýti sín tækifæri eins og þær geta til góðs. Hún telur einnig mikilvægt að þora að viðurkenna mistök og það er ekkert af því ef þú lærir af þeim, allir eru mannlegir. Listin að mistakast opinn hádegisfundur sem gréta hélt í HR kemur einmitt inn á það. Við ræðum einnig um konur í stjórnum og veltum upp spurningunni, hvers vegna þær séu ekki fleiri.
    48 min
  • FKA Ragnheiður H Magnúsdóttir
    Við höldum áfram að ræða við félagskonur FKA. Í þetta skiptið er það Ragnheiður H. Magnúsdóttir en hún er vélaverkfræðingur og master í framleiðsluverkfræði frá Álaborgarháskóla árið 2000.
    Ragnheiður segir okkur frá námi sínu, starfsferli fram að þessu ásamt því að koma inn á hin ýmsu mál varðandi jafnrétti og baráttumál kvenna.
    41 min
  • 100. Óli Jóns
    Þá er komið að þætti 100 af hlaðvarpinu með Óla Jóns. Þegar stefndi í að þessi þáttur væri á næsti leiti spurði ég á Linkedin hvern fólk vildi sjá í þessum hundraðasta þætti. Þórarinn Hjálmarsson stakk upp á því að tekið yrði viðtal við mig Óla Jóns og þessa vegferð. Þessi tillaga fékk góðan hljómgrunn og úr varð að hann tók viðtal við mig.
    Þórarinn sem er markaðsstjóri Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands og stjórnarmaður í Félagi viðskipta- og hagfræðinga (FVH) ásamt því að vera stundarkennari í markaðsfræði.
    Fyrir um sjö árum síðan ákvað hann og kona hans að fá sér hund og átti sú ákvörðun eftir að breyta lífi þeirra til hins betra. Með hundinum fylgdi mikil hreyfing en það gat þó verið erfitt að koma sér fram úr klukkan 5 á morgnana til að hreyfa hundinn. Óli byrjaði að hlusta á erlend hlaðvörp um sölu og markaðssetningu til að stytta sér stundir og skemmta sér í göngutúrunum. Hann les að jafnaði um eina bók um markaðsmál á viku, til að halda í við síbreytilegan markað og hlaðvörp var önnur leið til að bæta þá þekkingu.
    45 min
  • 99. Freyr Ólafsson
    Freyr Ólafsson stjórnendaráðgjafi og formaður frjálsíþróttasambandsins er gestur minn í þætti númer 99 af Hlaðvarpinu á Jóns. Freyr sem er fjögurra barna faðir, íþróttafræðingur, tölvunarfræðingur og pistlahöfundur svo fátt eitt sé nefnt segir okkur frá lífi í leik og starfi í þessu viðtali. Freyr fer líka yfir hvað honum finnst mikilvægt í stjórnun fyrirtækja, hvar tækifæri liggja oþh.
    36 min
  • FKA Snjólaug Ólafsdóttir
    Einn af síðustu viðmælendum mínum í þessari þáttaröð FKA og Jóns er dr. Snjólaug Ólafsdóttir.
    Snjólaug er doktor í umhverfisverkfræði frá Háskóla Íslands og með BS gráðu í efnafræði frá sama skóla. Hún valdi námið sem hún fór í af því að hún vildi kynnast umhverfinu og auka skilning sinn og annarra á því. Snjólaug fór í efnafræði til að læra betur um umhverfismál, og síðan í umhverfisverkfræðina í framhaldinu. Í náminu lagði hún áherslu á endurnýjanlega orku og loftgæði og eyddi miklum tíma í að hugsa eins og gasmólíkúl.
    32 min
  • FKA Erla Ósk Pétursdóttir
    Erla starfar hjá fjölskyldufyrirtækinu Vísi hf í Grindavík. Í þessu spjalli segir hún okkur frá námi og starfi sínu í Bandaríkjunum, hvers vegna hún staldraði þar við eftir nám. 
Erla segir okkur líka frá því hvernig það er að alast upp við fiskinn og sjóinn og í fjölskyldurfyrirtæki. Einnig förum við inn á það hvernig viðhorf íslendinga hefur breyst gagnvart sjávarútvegsfyrirtækjum og öllum þeim breytingum sem hafa orðið á síðustu árum.
    Á visirhf.is segir um fyritækið
“Vísir er rótgróið, kröftugt og framsækið íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki þar sem öll áhersla er lögð á ábyrgar veiðar, hátæknivinnslu og vörugæði. Fyrirtækið býr yfir góðum skipaflota útbúnum til línuveiða og rekur saltfiskvinnslu og frystihús í Grindavík. Afurðir Vísis eru fjölbreyttar, unnar úr fyrsta flokks hráefni, og framleiddar fyrir breiðan hóp kröfuharðra viðskiptavina  vítt og breitt um heiminn. Vísir hefur  í 50 ár notið mikillar gæfu og haft á að  skipa metnaðarfullu og tryggu starfsfólki  – mannauður fyrirtækisins er því lykillinn  að farsælum rekstri þess. “
    34 min