gestur dagsins var Kanema Erna Mashinkila sviðslistakona sem leikstýrir sýningunni Þegar ég sé þig sé ég mig í Borgarleikhúsinu. Kanema hafði skemmtilega fimmu í farteskinu en hún talaði um fimm tómstundir sem hafa haft djúp áhrif á líf hennar og þar kenndi margra listrænna grasa
Í síðari hlutanum kom Karl Ágúst Ipsen í heimsókn en hann er Dolly Parton sérfræðingur þáttarins. Dolly varð áttræð á dögunum og hefur ekki setið auðum höndum frekar en fyrri daginn og það þrátt fyrir veikindi.