
Sign up to save your podcasts
Or


Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir telur að nú sé kominn tími til að færa fókusinn frá þolendum yfir á gerendur ofbeldis. „Ég vil tala um að þeir eru alls konar og, triggerandi fyrir mig að segja, en margir af þessum mönnum eru góðir við vini sína og hinn og þennan en svo eru þeir ofbeldismenn.“
Tönju var útskúfað úr samfélagi sínu og heimabæ eftir að hafa sagt frá og tilkynnt ofbeldi af hálfu lögreglumanns. Augngotur, skilaboð og hótanir leiddu Tönju til Noregs þar sem hún býr enn með Nóa, manninum sínum, og tveimur ungum börnum þeirra. Tanja hefur tekið virkan þátt í baráttu gegn ofbeldi í um áratug, þrátt fyrir að vera aðeins nýorðin 31 árs. Hún var hins vegar alls ekki femínísk þegar hún hóf nám í Borgó og fór í kynjafræði hjá Hönnu Björgu, en þar opnuðust augu hennar rækilega.
Viðmælandi: Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir
Þátturinn er í boði bakhjarla Karlmennskunnar. Vertu með.
Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar:
Lítið hefur heyrst frá þolendum eftir háværar byltingar undanfarin ár. Má túlka það sem svo að byltingarnar hafi skilað árangri eða eru aðrar ástæður fyrir þögn þolenda? Við fáum innsýn í reynslu Guðnýjar af íslenska réttarkerfinu en gagnrýni hennar leiddi meðal annars til þess að verklagi lögreglunnar var breytt. Guðný er ein margra kvenna sem hafa kært ofbeldi en mál hennar var látið niður falla þrátt fyrir sterk gögn.
Viðmælandi: Guðný S. Bjarnadóttir stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundnu ofbeldi.
Tekið upp í desember 2025.
Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar:
Woke, réttlætisriddarar, pólitískur réttrúnaður og slaufunarmenning eru hugtök sem Eyja Margrét prófessor í heimspeki tengir við sem andspyrna við baráttuhreyfingar. Eyja er ein fárra fræðimanneskja sem hafa rannsakað slaufun og slaufunarmenningu. Við heimsækjum hugmyndir um slaufun, upplifum siðfár meintra gerenda og komumst að því að fæstum var slaufað. Í versta falli var sumum frestað tímabundið.
Viðmælandi: Eyja M. Brynjarsdóttir prófessor í heimspeki.
Tekið upp í desember 2025
Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar:
„Hvernig get ég orðið ríkur?“ spyr ég Kareni Áslaugu aðalhagfræðing Seðlabankans og bið Höllu Gunnarsdóttur formann VR um að útskýra verðbólgu eins og ég væri 12 ára, af því ég skil ekki peninga. En ég veit það þó að ég skulda meira í dag en fyrir nokkrum árum og það tengist einhvern veginn verðbólgu, vöxtum og vísitölu neysluverðs. En hvernig?
Þessi þáttur er fyrir fólk sem er ekki viðskiptafræðimenntað og skilur tæplega hvað öll þessi hugtök þýða.
Viðmælendur
Karen Áslaug Vignisdóttir aðalahagfræðingur Seðlabankans [tekið upp í desember 2025]
Halla Gunnarsdóttir formaður VR [tekið upp í febrúar 2026].
Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar:
Flóttafólk, hælisleitendur, innflytjendur, ferðamenn, útlendingar. Almennt virðist ekki gerður greinarmunur á hvers konar útlendingur þú ert — nema þú sért hvítur og ríkur en það er önnur umfjöllun. Í þessum þætti verður áhersla á hina meintu ógn sem stafar af útlendingum. Helen María Ólafsdóttir er sérfræðingur í þjóðaröryggismálum og hefur starfað fyrir Sameinuðu þjóðirnar í tæpa tvo áratugi víða um heim. Hún ætlar að svara því hvað sé svona hættulegt við útlendinga.
Viðmælandi: Helen María Ólafsdóttir, sérfræðingur í öryggismálum hjá Sameinuðu þjóðunum.
Tekið upp í nóvember 2025.
Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar:
„Í upphafi var orðið og orðið var Guð“, segir í Biblíunni. Í fræðilegri túlkun mætti segja að Biblían lýsi orðræðu og hvernig orð bera með sér merkingu. Enda eru orð til alls fyrst og þá hlýtur að skipta máli hvaða orð eru notuð til að byrja með. Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikafræðingur og femínískur brautryðjandi ætlar að útskýra orðræðu á íslensku. Hvað er hundaflaut, hvernig það er notað og hvers vegna orðræða getur verið hættuleg?
Viðmælandi: Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikafræðingur.
Tekið upp í nóvember 2025
Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar:
Er hægt að fjalla um ólíka pólitíska hugmyndastrauma, eins og hægri eða vinstri, á hlutlægan hátt? Hvað erum við að tala um þegar við segjum öfga-hægri? Ýttu femínistar ungum drengjum inn í hægrið? Henry Alexander Henrysson útskýrir uppgang hægri hugmynda og færir rök fyrir því hvernig lýðræði er miklu meira en bara kosningar. Við sögu kemur spjall á kaffistofunum, tækifærismennska, frumhvatir og óreiða.
Viðmælandi: Henry Alexander Henrysson doktor í heimspeki
Tekið upp í nóvember 2025.
Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar:
„Eru kynin bara tvö?“ er spurning á Vísindavefnum sem Arnar Pálsson líffræðingur svaraði í stuttu máli: „Nei“. Prófessorinn ætlar að útskýra líffræðilegan fjölbreytileika kyns og hversu ónákvæmt er að yfirfæra atferli dýra yfir á hegðun einstaklinga.
Viðmælandi: Arnar Pálsson prófessor í lífupplýsingafræði
Tekið upp í nóvember 2025.
Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar.
Fáar fræðigreinar, ef nokkur, eru jafn mikið afbakaðar eins og kynjafræði. Hún er sögð vera pólitísk innræting, vinstri áróður, gervivísindi og heilaþvottur. Kynjafræði hefur verið sérstakt fag innan Háskóla Íslands í 30 ár og kennd sem skylda eða valfag í allmörgum framhaldsskólum. Við ætlum að leita svara við því hvað geri kynjafræði að fræðigrein og hvers vegna hún sé svona umdeild?
Viðmælandi: Finnborg Salome Steinþórsdóttir lektor við stjórnmálafræðideild
Tekið upp í desember 2025.
Tipsaðu 290 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 290 kr.
Tipsaðu 390 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 390 kr.
Tipsaðu 490 krónum fyrir þáttinn: Tipsa 490 kr.
Vertu bakhjarl og tipsaðu mánaðarlega: karlmennskan.is/styrkja
TILKYNNING.
Tveir kallar á Spotify
Tveir kallar á Podcasts.
tveirkallar.is
eða
patreon.com/hjonvarpid
From the publisher's feed
Gagnrýnið og kynjað sjónarhorn á völd og viðmið.
Bakhjarlar fjármagna meðal annars hlaðvarpið Karlmennskan. Þú getur verið eitt þeirra:
https://www.karlmennskan.is/styrkja