Kennsluvarpið

Kennsluvarpið

By Kennslumiðstöð Háskóla ÍslandsEducation
Download on the App Store

Kennsluvarpið episodes

  • Persónuvernd með Grétu Björk Guðmundsdóttur

    Gréta Björk Guðmundsdóttir er prófessor á Menntavísindasviði Háskólanns í Ósló. Hún er næsti gestur í hljóðveri Kennslumiðstöðvar. Gréta brást hratt við ásamt samstarfsaðila sínum í Bandaríkjunum þegar Covid skall á og kannaði viðbrögð kennara við því að þurfa að umbreyta hefðbundinni kennslu sinni með notkun stafrænnar tækni. Niðurstöðurnar voru áhugaverðar og sérstaka athygli vakti skortur á þekkingu á persónuvernd.

    21 min
  • Fjarkennslan í brennidepli með Sólveigu Jakobsdóttur

    Fjarkennsla hefur sjaldan verið jafn umtöluð og á tímum Covid og næsti gestur Kennsluvarpsins er þess vegna Sólveig Jakobsdóttir prófessor í fjarkennslufræði á Menntavísindasviði. Eftir langan fjarkennsluferil hefur Sólveig mikið að segja um það hvernig fjarnám er kennt á tímum Covid.



    28 min
  • Námsmat á tímum Covid með Amalíu Björnsdóttur

    Amalía Björnsdóttir prófessor við Háskóla Íslands er mætt í hljóðver til að ræða um námsmat á tímum Covid. Heimsfaraldurinn hefur breytt miklu í starfi háskóla um allan heim. Amalía telur þörf á að endurskoða námsmat til framtíðar meðal annars með tillit til þess hvernig skilgreina á svindl í prófum eða heimaverkefnum.

    33 min
  • Blandað nám með Rögnu Kemp Haraldsdóttur

    Ragna Kemp Haraldsdóttir kennir Upplýsingafræði við Háskóla Íslands.  Ragna hefur langa reynslu af blandaðri kennslu. Kennslumiðstöðin telur að reynsla Rögnu muni nýtast kennurum vel á tímum Covid og að hún muni kveikja hugmyndir um hvernig er hægt að gera námið skemmtilega fyrir þá sem sækja nám sitt rafrænt.

    25 min
  • Hverjir eru kostir staðnáms með Terry Gunnell

    Terry Gunnell hefur unnið sem kennari um árabil og er handhafi viðurkenningar fyrir framúrskarandi kennslu árið 2018 í Háskóla Íslands. Hvernig finnst honum best að kenna staðnám og hvað þýðir það eiginlega að vera "stuffed lemon"? 

    25 min
  • KENNSLUVARPIÐ

    Kennsluvarpið upplýsir kennara um stefnur og strauma á sviði kennslufræðinnar en er ekki síst ætlað að veita innblástur fyrir mismunandi kennsluaðferðir - bæði nýjar sem gamlar.


    Markmið kennsluvarpsins er að deila kennslufræðilegri þekkingu við Háskóla Íslands með opnum umræðum við kennara frá ýmsum deildum innan háskólans.


    Kennsluvarpið er framleitt af Kennslumiðstöð Háskóla Íslands. 

    1 min

About Kennsluvarpið

From the publisher's feed

Kennsluvarpið upplýsir kennara um stefnur og strauma á sviði kennslufræðinnar en er ekki síst ætlað að veita innblástur fyrir mismunandi kennsluaðferðir - bæði nýjar sem gamlar.