Kerfið

Kerfið

Download on the App Store

Kerfið episodes

  • Betrun 5. þáttur - Bílageymsla verður fangageymsla
    Fá dómsmál hafa vakið jafn mikla athygli í íslenskri nútímaréttarsögu og Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Tryggvi Rúnar Leifsson sat í gæsluvarðhaldi í rúm fjögur ár eða yfir 1500 daga í tengslum við rannsókn málsins. Þar af í einangrun í Síðumúlafangelsinu á annað ár. Viðmælendur í þættinum eru Hreinn Hákonarson og Tryggvi Rúnar Brynjarsson. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    1 hr 1 min
  • Betrun 4. þáttur – Lög og réttur á tímum upplýsingarinnar
    Um miðja 18. öldina fjölgaði dómum á Íslandi og því fjölgaði föngum í haldi sýslumanna og af þessu hlaust mikill kostnaður. Sýslumennirnir sendu því konungi bænaskrá og töldu að besta lausnin á þeim mikla kostnaði sem fylgdi sakamönnum væri fundin, einfaldlega að taka þá af lífi. Þetta fæli líka í sér tímasparnað. Í stað þess að þurfa að fara með sakamanninn með sér fram og aftur um landið gæti sýslumaður bæði fellt og fullnægt dómnum á einum og sama deginum. Davíð Þór Björgvinsson, Hrannar Hólm, Hreinn Hákonarson, Már Jónsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir eru viðmælendur í þættinum. Dagskrárgerð annaðist Guðrún Hálfdánardóttir og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    57 min
  • Betrun 3. þáttur - Fangaflutningar til Finnmerkur
    Eins og ekkert sé sjálfsagðara þá eru fimm konur og tólf karlar sett á skip í Kaupmannahöfn og send nánast á heimsenda. Ætli það hafi talist betrun meðal embættismanna að senda fanga norður í Barentshaf í stað þess að leyfa þeim að snúa heim til Íslands? Viðmælendur í þættinum eru Eiríkur Hermannsson, Halldór Guðmundsson, Már Jónsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    56 min
  • Betrun 2. þáttur – Brennimerktir og ærulausir
    Aðstæður almúgafólks um aldamótin 1800 voru skelfilegar eftir hörmulegt tíðarfar um áratugaskeið. Langflestir þeirra sem voru sendir í afplánun í Kaupmannahöfn höfðu gerst sekir um þjófnað, jafnvel bændur sem aldrei höfðu gerst sekir um óráðvendni. Viðmælendur í þættinum eru: Eiríkur Hermannsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    59 min
  • Betrun 1. þáttur – Íslendingar í dönskum þrælakistum
    Málefni fanga í nútíð og fortíð eru umfjöllunarefni þáttaraðarinnar Betrun. Í þáttunum er meðal annars fjallað um Íslendinga sem enduðu í þrælakistum Kaupmannahafnar á átjándu og nítjándu öld. Meirihluti þeirra átti ekki afturkvæmt og endaði ævina í Stokkhúsinu enda aðbúnaðurinn þar skelfilegur. Viðmælendur í þættinum eru: Eiríkur Hermannsson, Hrannar Hólm, Sigríður Hjördís Jörundsdóttir og Þráinn Farestveit. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    56 min
  • 5. þáttur - Börn sem hafa sérstöðu
    Börn eru allskonar og í fullkomnum heimi ætti það ekki að skipta neinu máli. Þau fengju einfaldlega þjónustu við hæfi, svona eins og lög gera ráð fyrir. En kerfið hefur átt erfitt með að laga sig að breyttum heimi. Viðmælendur í þættinum eru: Guðbjörg Rut Þórisdóttir, Meyvant Þórólfsson og Sara Rós Kristinsdóttir. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    1 hr 1 min
  • 4. þáttur - Ræður kerfið við verkefnið?
    Kerfið er fyrir meðaltalsnemandann sem getur ákveðna hluti en þeir sem ráða ekki við það verkefni eiga á hættu að falla á milli kerfa. Börn sem eru á biðlistum eru með skilgreindan vanda en það vantar nákvæma skilgreiningu á hvers eðlis hann er. Þegar loksins kemur að lokagreiningu hefur barnið jafnvel beðið í fimm ár, fyrst eftir forgreiningu hjá sveitarfélagi og síðan hjá ríkinu. Viðmælendur í þættinum eru Bóas Valdórsson og Sigurður Árni Reynisson. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    59 min
  • 3. þáttur - Staðan versnar bara
    Embætti umboðsmanns barna hefur í fimm ár safnað upplýsingum um börn og biðlista. Á þeim tíma hafa biðlistarnir bara lengst og ekkert sem bendir til þess að staðan sé að batna. Það skorti umburðarlyndi fyrir fjölbreytileika mannlífsins og það þekkja svo sannarlega foreldrar barna sem teljast til staðalfrávika frá meðaltalinu á normalkúrfunni. Gestir þáttarins eru Salvör Nordal og Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    58 min
  • 2. þáttur - Barist fyrir lífi barnsins
    Það tekur á að passa ekki inn í kerfið, ekki bara fyrir barnið, heldur alla fjölskylduna. Því við viljum öll það besta fyrir börnin okkar og erum reiðubúin að berjast með kjafti og klóm fyrir þeirra lífi. Já, svo þau lifi af. Því börn sem eru á jaðrinum, jafnvel hrakin þangað af öðrum, eru í stöðugri hættu. Helga Guðmundsdóttir, Íris Björk Eysteinsdóttir og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir eru viðmælendur í þættinum. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    1 hr 1 min
  • 1. þáttur - Börn og biðlistar
    Börnin sem passa ekki inn í kerfið, börnin á biðlistum. Börnin sem þurfa að hafa meira fyrir hlutunum en önnur í almenna skólakerfinu. Börnin sem eru á jaðrinum. Þetta eru börnin sem þurfa mest á öflugu kerfi að halda. Kerfi sem ekki hafnar þeim heldur styður þau. Anna-Lind Pétursdóttir og Kristján Ketill Stefánsson eru viðmælendur í þættinum en Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    59 min

About Kerfið

From the publisher's feed

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni.


Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir

Framleiðsla: Rás…