Kerfið

Kerfið

Download on the App Store

Kerfið episodes

  • 5. þáttur - Verkmennaskólinn á Akureyri
    Verkmenntaskólinn á Akureyri, VMA, er einn stærsti iðn- og verkmenntaskóli landsins. Eins og víða annars staðar er kennt í öllum skúmaskotum en stjórnendur skólans hugsa í lausnum og eru í góðu samstarfi við vinnustaði á Akureyri þar sem hluti kennslunnar fer fram. Viðmælendur í þættinum eru: Ásta Fönn Flosadóttir, Benedikt Barðason, Elsa Eiríksdóttir, Gunnar Möller, Jóhann Gunnar Jóhannsson og Kristjana Stella Blöndal. Auk þess er rætt við nemendur í VMA. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    59 min
  • 4. þáttur FSu og MK
    Íslenska skólakerfið er bóknámsmiðað og lítil áhersla á verk- og starfsnám í grunnskóla. Þetta er meðal annars að hafa áhrif á áhuga ungmenna á slíku námi. En á síðustu árum hefur áhugi á starfsnámi aukist sem þýðir að fáir 18 ára og eldri komast inn í vinsælustu greinarnar. Viðmælendur í þættinum eru: Elsa Eiríksdóttir, Guðríður Hrund Helgadóttir, Haraldur Sæmundsson, Soffía Sveinsdóttir, Sigursveinn Sigurðsson og Stella Blöndal. Jafnframt er rætt við nemendur Matvælaskólans og gesti á opnu húsi í MK. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    57 min
  • 3. þáttur Tækniskólinn
    Aukinn áhugi er á starfsnámi meðal ungs fólks þrátt fyrir að íslenskt menntakerfi sé mjög bóknámsmiðað. Um leið er þrengt að starfsnámi þegar kemur að húsnæðismálum. Tækniskólinn er stærsti framhaldsskóli landsins og býður upp á fjölbreytt starfsnám. Viðmælendur í þættinum eru: Elsa Eiríksdóttir, Hildur Ingvarsdóttir, Kristjana Stella Blöndal, Þráinn Óskarsson og nokkrir nemendur í Tækniskólanum. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. 

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    56 min
  • 2. þáttur - Skortur á faglegri forystu
    Það þarf aðhald í skólakerfinu og skólastjórnendur þurfa að nýta niðurstöður Matsferilsins til að skoða hvað gangi ekki nægjanlega vel og hvernig sé hægt að stíga inn og veita aðstoð. Fagleg forysta, eða réttara sagt skortur á henni, er meðal þess sem er rætt um í öðrum þætti Kerfisins. Viðmælendur í þættinum eru Anna Kristín Sigurðardóttir og Auður Soffía Björgvinsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    58 min
  • 1. þáttur Mælingar og margt fleira
    Mjög er rætt um menntamál og fólk hefur ólíkar skoðanir á stöðu skólakerfisins í dag, ekki síst í grunnskólanum. Það er rætt um kennsluaðferðir, símanotkun í skólum, samræmd próf og námsmat í tölum eða bókstöfum. Hvort fimmtán ára drengir séu upp til hópa ólæsir og sífellt verri útkomu í PISA. Það hefur aftur á móti minna farið fyrir umræðu um hvers vegna hlutfall íslenskra nemenda sem búa yfir afburðahæfni lækkar á sama tíma og nemendum sem ekki ná meðalhæfni fjölgar. Gestir í þessum fyrsta þætti eru Gunnar Gíslason og Rúnar Sigþórsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    58 min
  • 7. Virði íslensks stúdentsprófs
    Borið hefur á því að stúdentsprófin uppfylli ekki kröfur sem erlendir háskólar gera eftir að að námið var stytt í þrjú ár. Fjarnám, samræmi og ósamræmi milli skólaeinkunna og mikilvægi þess að nýta tæknina til góðra verka. Viðmælendur í þættinum eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Árni Ólason, Eyrún Arnardóttir, Guðjón Hreinn Hauksson, Hjálmar Gíslason, Magnús Þorkelsson, Matthildur Ársælsdóttir, Miriam Petra Ómarsdóttir Awad og Sólveig Hannesdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    43 min
  • 6. Við erum alls konar
    Við erum alls konar og skólakerfið á að spegla þennan fjölbreytileika. Nemendum á starfsbrautum framhaldsskólanna hefur fjölgað gríðarlega undanfarinn áratug sem og nemendum með erlendan bakgrunn. Nánast allir halda áfram námi að loknum grunnskóla og það getur verið áskorun að mæta öllum. Viðmælendur í sjötta þætti eru: Askur Örn Margrétarson, Árni Ólason, Berglind Halla Jónsdóttir, Eyrún Arnardóttir, Gunnlaugur Magnússon, Hildur Ýr Ísberg, Hjálmar Gíslason, Kristín Þóra Möller, Magnús Þorkelsson, Sigríður Anna Ólafsdóttir og Þóra Þórðardóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    43 min
  • 5. Kennaramenntun og faggreinar
    Það vantar faggreinakennara í ýmsum greinum, þar á meðal í svonefndum STEM-greinum. Vandamálið er að það er of fátt ungt raungreinafólk sem lítur á framhaldsskólann sem sinn framtíðarvinnustað. Viðmælendur í fimmta þætti eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Harðarson, Freyja Hreinsdóttir, Guðjón Haukur Hreinsson og Gunnlaugur Magnússon.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    43 min
  • 4. Það vantar húsnæði
    Stjórnendur framhaldsskóla segja það áskorun að koma öllum fyrir sem stunda þar nám. Kennsla fer jafnvel fram í gámum og geymslum og þetta getur haft þau áhrif að færri sæki í verknám en annars væri. Nemendur sem ekki uppfylla inntökuskilyrði á verknáms-, starfsnáms- eða stúdentsbrautir velja framhaldsskólabraut. Viðmælendur í fjórða þætti eru: Berglind Halla Jónsdóttir, Brynja Stefánsdóttir, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, Kristján Ásmundsson, Kristín Þóra Möller, Sigríður Anna Ólafsdóttir, Sólveig Hannesdóttir, Víðir Stefánsson og nemendur í FB og FS.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    43 min
  • 3. Námsmat og námsefni
    Námsmat og námsefni eru stór hluti af starfi innan framhaldsskólakerfisins. Félagslífið er líka mikilvægur hluti af framhaldsskólanum. Gervigreindin er tækni sem ryður sér hratt til rúms í menntakerfinu líkt og annars staðar. Á sama tíma eiga ýmsar námsbrautir undir högg að sækja. Viðmælendur í þriðja þætti Stakkaskipta eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Hildur Ýr Ísberg, Hjálmar Gíslason, Matthildur Ársælsdóttir og Sólveig Hannesdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    43 min

About Kerfið

From the publisher's feed

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni.


Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir

Framleiðsla: Rás…