Hvernig þróast framboð og eftirspurn raforku næstu fimm árin? Hvaða áskoranir eru fram undan í flutningskerfinu - og hvernig bregðumst við við þeim? Í þessum þætti rýnum við í Kerfisjöfnuðarskýrslu Landsnets, árlega greiningarskýrslu sem gefur innsýn í orkukerfið og þær sviðsmyndir sem geta blasað við á næstu árum. Skýrslan er lykilverkfæri við ákvarðanatöku um afhendingaröryggi, orkunýtingu og orkuskipti.
Gestur þáttarins er Árni Baldur Möller sérfræðingur í kerfisgreiningum en hann og Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi spá hér í spilin, ræða stærstu áherslurnar og varpa ljósi á þær sviðsmyndir sem gætu mótað framtíð raforkukerfisins