Kokkaflakk í eyrun

Kokkaflakk í eyrun

By HljóðkirkjanArtsFood
Download on the App Store

Kokkaflakk í eyrun episodes

  • #23 María Hjálmtýsdóttir - Kynjaður matur

    Þau sem hafa hlustað á Kokkaflakkið hafa kannski tekið eftir því að ég er búinn að vera að spá í hvernig standi á því að sumur matur er frekar hugsaður handa körlum og annar konum. Til þess að hjálpa mér til þess að komast til botns í þessu fékk ég í heimsókn til mín á Vínstúkuna, Maríu Hjálmtýsdóttur kynjafræðikennara. Við María höfum verið saman í matarklúbbi og hún kemur alltaf með Mole. Við tölum um það, um furðulega hluti sem fólk hendir og svo þessa kynjavinkla í mat og drykk. Mjög áhugavert spjall við skemmtilega konu. 

    55 min
  • #22 Dóra Svavarsdóttir - Baráttukona

    Í þessum þætti tölum við um matarsóun, umhverfisvernd, sótsporið sem máltíðin okkar skilur eftir sig og hvað við getum gert til að spyrna gegn þessum vandamálum. Til þess að ræða þetta fékk ég til mín Dóru Svavarsdóttur matreiðslumann sem er mikil baráttukona gegn matarsóun og er í forsvari fyrir Reykjavíkurdeild Slow food. Við förum rækilega yfir þetta allt saman í frábærlega skemmtilegu spjalli þó málefnið sé alvarlegt.

    1 hr 21 min
  • #21 Hlal Jarah - Kóngurinn af Mandi

    Þessi þáttur er á ensku því viðmælandi minn að þessu sinni er Hlal Jarah sem er frá Sýrlandi. Við þekkjum hann flest sem Hlal á Mandi. Hann rekur nokkra veitingastaði á höfuðborgarsvæðinu og er með tvo í viðbót á teikniborðinu. Annar þeirra er fyrsti vatnspípustaðurinn í Reykjavík og þar hittumst við og áttum þar gott spjall. Við töluðum um kebab, sýrlenskan mat, fjölskyldu og smá um pólitík. En samt mest um mat.

    54 min
  • #20 Jakob Jakobsson - Jómfrú
    Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er Jakob Jakobsson sem lengi var kenndur við Jómfrúna, sem er í raun alls ekki skrítið því hann stofnaði hana og átti lengi ásamt Guðmundi manninum sínum. Jakob var líka fyrsti karlmaðurinn til að útskrifast frá dönskum kokkaskóla sem smurbrauðsjómfrú en þangað til hafði það verið kvennastarf. Við tölum um það, upphafið á veitingahúsinu Jómfrúnni, hvernig það er að vera gay í veitingabransanum í Reykjavík og líka nýja frábæra staðinn hans og Guðmundar í Hveragerði, Matkrána. Og auðvitað líka heilmikið annað.
     
    Frábært spjall við frábæaran mann
    1 hr 2 min
  • #19 Guðrún Sóley - Veganklappstýra
    Það eru margir sem prófa að tileinka sér vegan-lífsstíl í janúar í tilefni af Veganúar sem viðmælandi þáttarins segir að sé hátíð fyrir veganista.  Kokkaflakkarinn er áhugasamur um alla anga matarhegðunar fólks og fékk því eina helstu klappstýru veganista í spjall en það er engin önnur en hún Guðrún Sóley Gestsdóttir sem um ræðir. Við ræddum veganmat og lífsstílinn, fordómana sem þau sem kjósa að vera vegan verða fyrir og hversu stressandi það er að skrifa matreiðslubók, sem hún jú hefur reynslu af. Guðrún Sóley er þekkt andlit sem hefur verið viðloðandi fjölmiðla um árabil, bæði í útvarpi og sjónvarpi, þar sem hún stýrir meðal annars menningarumfjöllun á RÚV. Mjög skemmtilegt spjall. 
     
    Gleðilegan veganúar!
    1 hr 10 min
  • #18 Ragga Nagli - Að borða í núvitund

    Hér er fyrsti þátturinn á nýju ári og í honum kveður við dáldið annan tón en áður, þó umræðuefnið sé auðvitað ennþá matartengt. Gestur þáttarins í þetta sinn er Ragnhildur Þórðardóttir sem er betur þekkt sem Ragga Nagli. Hún heldur úti hlaðvarpinu Heilsuvarpið og heimasíðunni ragganagli.com þar sem hún fjallar um allskonar heilsutengd málefni. Þetta var geysilega gott spjall þar sem við fórum yfir hvað það er að borða í núvitund, hvað það getur gert fólki að skammast sín sífellt fyrir hvað það borðar og hvað það er mikilvægt að borða það sem þér finnst bragðgott. Við fórum líka yfir það hvernig best er að ná árangri ef meiningin er að taka til í mataræðinu sem algengt er um áramót. 

    1 hr 17 min
  • #17 Kristinn Guðmundsson - Soð
    Gestur minn í þessum þætti er myndlistarmaðurinn Kristinn Guðmundsson. Kristinn býr í Brussel en með nútímatækni tókst okkur að spjalla saman yfir hafið og maður lifandi hvað það var skemmtilegt spjall. Kristinn hefur í nokkur ár verið að gera þætti sem heita Soð sem slógu fyrst í gegn á Youtube sem rötuðu svo þaðan í Sjónvarp Símans og nú er hann kominn í hið virðulega Ríkissjónvarp, sem sumir virðulegir áhorfendur skilja misvel. Kristinn kemur til dyranna eins og hann er klæddur, bæði í þessu spjalli og sem og í sínum þáttum. Við spjöllum um internet-hatur, myndlist og lífið almennt. Frábærlega skemmtilegt!
    1 hr 24 min
  • #16 Ragnar Freyr - Læknirinn í eldhúsinu

    Jólagestur þessa þáttar er enginn annar en Læknirinn í eldhúsinu, Ragnar Freyr Ingvarsson. Hann var á tímabili vinsælasti matarbloggari landsins, það vinsæll að hann var beðinn um að koma blogginu fyrir í bók til útgáfu. Síðan hefur hann gert nokkrar bækur og einnig sjónvarpsseríur. Við ræddum þetta auðvitað allt saman sem og Covid 19, því Ragnar var settur sem yfirlæknir Covid-göngudeildar Landsspítalans sem komið var upp á mettíma. Við töluðum líka um mat, jólamat og sænskan mat. Mjög skemmtilegt spjall við mjög skemmtilegan mann. 

    1 hr 40 min
  • #15 Jólasleggjudómar með Gunnari Karli og Fanneyju Dóru

    Það eru að koma jól og þá dugir ekkert annað en að henda í jólaþátt. Í þessum þætti fæ ég til liðs við mig tvo matreiðslumenn og við förum yfir jólahefðir í mat hjá þeim og þjóðinni allri. Við förum líka rækilega yfir hvaða jólamatur er ofmetinn og hvaða jólamatur er vanmetinn án nokkurrar ritskoðunnar og þar falla nokkrar sleggjur. Ef grant er hlustað má líka finna allskonar pro tip sem ættu að hjálpa fólki við matargerð á jólum, enda eru hér á ferð tveir af færustu matreiðslumönnum Íslands sem eru; Gunnar Karl Gíslason, yfirkokkur á DILL restaurant sem eins og fólk veit er eini staðurinn á Íslandi sem hefur nokkurntíma hlotið Michelin stjörnu og Fanney Dóra Sigurjónsdóttir sem hefur lengi verið meðlimur í kokkalandsliði Íslands og var fyrirliði þess þegar það varð í þriðja sæti á Ólympíuleikunum síðast. Sjúklega skemmtilegt spjall um allt og ekkert, en fyrst og fremst mat og jólin. 

     
    Kokkaflakk í eyrun er í boði:
     
    Bríó frá Borg Brugghúsi: http://www.borgbrugghus.is/thebeer/product/nr-75-brio-afengislaus
     
    Vínstúkunnar tíu sopa: https://www.facebook.com/V%C3%ADnst%C3%BAkan-T%C3%ADu-Sopar-604298820067421/
     
    Kokkaflakk er framleitt af Hljóðkirkjunni: https://www.facebook.com/hljodkirkjan
     
    [ATH Myndin er samsett]
    1 hr 32 min
  • #14 Hlédís Sveinsdóttir - Hamhleypa
    Gestur þessa þáttar er Hlédís Sveinsdóttir. Hlédís er sannkölluð hamhleypa til verka sem hefur látið allskonar hluti gerast af því að henni hefur fundist þörf á því.
     
    Hún stofnaði vefsíðu sem gerði fólki kleift að ættleiða kindur og lömb, var ein af upphafsfólki og mikil talskona Beint frá býli og rekjanleika landbúnaðarafurða. Hún er líka önnur tveggja kjarnorkukvenna sem hafa staðið að matarmarkaði Búrsins, fyrst á bílaplaninum við Nóatún og síðustu ár í Hörpunni tvisvar sinnum á ári. Með því hefur hún stutt ærlega við bakið á frumkvöðlastarfi í landbúnaði og matvælaframleiðslu með því að gefa fólki pláss til að selja og þróa nýjar vörur. 
     
    Um þessar mundir vinnur hún við sjónvarpsþáttagerð auk þess að vera í nefnd sem vinnur að því að búa til landbúnaðarstefnu Íslands, sem er jú grunnurinn að allri matvælaframleiðslu á landinu. Allt þetta gerir hún meðfram því að vera einstæð móðir á Akranesi, ásamt því að hafa í mörg ár staðið í erfiðum málarekstri vegna læknamistaka við fæðingu dóttur sinnar. 
     
    Mögnuð kona og frábært spjall!
    1 hr 28 min

About Kokkaflakk í eyrun

From the publisher's feed

Ólafur Örn spjallar við fólk sem er eitthvað að fást við mat eða drykk, eða hefur mikinn áhuga á mat eða drykk.