Krakkaheimskviður

Krakkaheimskviður

Download on the App Store

Krakkaheimskviður episodes

  • Hvað er NATO og Legó-slysið
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur Atlantshafsbandalagið, eða NATO, með aðstoð fréttamannsins Björns Malmquist. Karitas skoðar svo Legó-slysið svokallaða sem varð árið 1997 og afleiðingar þess.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    16 min
  • Samband Íslands og Danmerkur, Norðurlandaráð og krakki ársins
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða förum við til Danmerkur með fréttamanninum Hallgrími Indriðasyni þar sem Halla Tómasdóttir, nýr forseti Íslands, fór í sína fyrstu opinberu heimsókn í vikunni. Við skoðum líka samband Danmerkur við tvö önnur lönd, Grænland og Færeyjar, og baráttu þessara landa fyrir því að verða fullgildir meðlimir Norðurlandaráðs. Karitas skoðar svo vísindamanninn Heman Bekele sem er 15 ára og var í ágúst valinn krakki ársins af tímaritinu Time.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    16 min
  • Hvað er að gerast í Líbanon og er vatn á Mars?
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða minnumst við atburða síðasta árs frá því að Hamas-liðar réðust inn í Ísrael 7. október 2023. Fréttamaðurinn og fullorðins-Heimskviðuumsjónarmaðurinn Bjarni Pétur Jónsson segir okkur hvernig þessir atburðir tengjast því sem er að gerast í Líbanon, en á þriðjudaginn réðst Ísraelsher inn í landið. Í seinni hluta þáttarins vendum við kvæði okkar í kross og förum út í geim, nánar til tekið til Mars. Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, segir okkur frá mjög merkilegri uppgötvun um plánetuna.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    15 min
  • Löndin sem breyttu um nöfn og staða stelpna í Afganistan
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða segir Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV, okkur frá löndunum sem hafa breytt nöfnunum sínum. Karitas og Ólöf Ragnarsdóttir skoða stöðu stelpna og kvenna í Afganistan og þær reglur sem þær þurfa að hlýða í síauknum mæli.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    16 min
  • Allt um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum

    Í þessum þætti af Krakkaheimskviðum kynnum við okkur forsetakosningarnar í Bandaríkjunum sem fara fram í byrjun nóvember. Bogi Ágústsson segir okkur hvað er svona merkilegt við þær, Karitas fer yfir atburði sumarsins og Birgir Þór Harðarson útskýrir kosningakerifð.


    Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir

    Ritstjórn: Birta Björnsdóttir og Karitas M. Bjarkadóttir

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    16 min
  • Fyrsti þáttur og helstu fréttir sumarsins!

    Í þessum allra fyrsta þætti Krakkaheimskviða fjöllum við stuttlega um stærstu fréttir sumarsins og kynnum okkur hvað verður um allt draslið og dótið sem fylgir stórum íþróttamótum eins og Ólympíuleikunum þegar þau klárast.


    Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir og Birta Björnsdóttir

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    15 min

About Krakkaheimskviður

From the publisher's feed

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og…