Krakkaheimskviður

Krakkaheimskviður

Download on the App Store

Krakkaheimskviður episodes

  • Allt um Nóbelsverðlaunin
    Í þessum þætti Krakkaheimskviðu beinum við sjónum okkar að Nóbelsverðlaununum. Hvað eru þau eiginlega, hverjir eru vinningshafar Íslands og hver fá þau þetta árið? Allt um Nóbelsverðlaunin í þætti dagsins.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    16 min
  • Gervigreindarráðherra í Albaníu
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas nýjasta ráðherra Albaníu, sem er gervigreindarforrit. Hvað er gervigreind eiginlega, hvernig virkar hún og hvernig getur hún verið ráðherra? Hafsteinn Einarsson, dósent við Háskóla Íslands, svarar þeim spurningum.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    15 min
  • Óeirðir og valdaskipti í Nepal
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða eru óeirðir og valdaskipti í Nepal til umfjöllunar. Fyrir hverju börðust nepalskir mótmælendur og hvernig er hægt að kjósa forsætisráðherra á Discord? Karitas kafar í aðdraganda óeirðanna, hvað það var sem gerðist og hvernig framhaldið í Nepal verður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    15 min
  • Þingkosningar í Noregi
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas nýafstaðnar þingkosningar í Noregi ásamt fréttamanninum Hallgrími Indriðasyni. Kjötbolluvísitala, krakkakosningar og kosningakerfi Norðmanna eru helstu umfjöllunarefni þáttarins.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    16 min
  • Fyrsti þáttur vetrarins og helstu fréttir sumarsins
    Í þessum fyrsta Krakkaheimskviðuþætti vetrarins fer Karitas yfir helstu fréttir sumarsins með aðstoð fréttamannsins Birtu Björnsdóttur. Verkefnalisti Trumps, staðan á Gaza og ritstjóraskipti Vogue eru meðal þess sem þátturinn í dag beinir sjónum sínum að.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    16 min
  • Ofsaveður og umhverfismál
    Í þessum síðasta Krakkaheimskviðuþætti vetrarins langar Karitas að komast að því af hverju ofsaveður og fellibyljir heita mannanöfnum og hvernig óveður myndast. Henni til aðstoðar er veðurfræðingurinn Katrín Agla Tómasdóttir. Í seinni hluta þáttarins er umhverfis- og aðgerðarsinninn Greta Thunberg í aðalhlutverki.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    16 min
  • Forsetakosningar í Póllandi
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða fjallar Karitas um Pólland og nýafstaðnar forsetakosningar þar í landi. Henni til halds og trausts er fréttamaðurinn Margrét Adamsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    15 min
  • Hraðtíska, ofneysla og fatafjöllin sem við hendum
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða er hraðtískuheimurinn og ofneysla mannanna til umfjöllunar. Karitas ræðir við Ester Öldu, sérfræðing hjá Umhverfis- og orkustofnun og Gunnar Dofra hjá Sorpu um hvað það er sem við hendum, hvernig við getum hent minna og hvað verður um fötin sem við viljum ekki lengur nota.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    14 min
  • Bakslag í réttindabaráttu trans fólks
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða fjöllum við um aðför að réttindum trans fólks. Hvers vegna er verið að banna trans konum að keppa í íþróttum og hver ræður hvaða klósett fólk má nota? Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir eru gestir þáttarins.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    15 min

About Krakkaheimskviður

From the publisher's feed

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og…