Krakkaheimskviður

Krakkaheimskviður

Download on the App Store

Krakkaheimskviður episodes

  • Apinn Punch og metár hjá LEGO
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um ofurkrúttið Punch, lítinn apa unga sem vann hug og hjörtu fólks um allan heim fyrr í mánuðinum. Í seinni hluta þáttarins skoðar Karitas sögu LEGO og metárið þeirra 2025.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    16 min
  • 150 ár frá fyrsta símtalinu
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða höldum við upp á 150 ára afmæli talsímans með sögulegri yfirferð. Góðir gestir segja frá fyrstu símunum sem þeir muna eftir og við komumst að því hvernig við fórum frá því að geta bara hringt í næsta herbergi í litlu lófatölvuna sem við þekkjum í dag.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    16 min
  • Allt um ramadan
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðist Karitas um ramadan með fréttamanninum Ólöfu Ragnarsdóttur og Embla Bachmann kíkir í Stórmoskuna í Reykjavík og ræðir við unga múslima um hátíðina.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    15 min
  • Pöndupólitík
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas pöndupólitík, eða pöndudiplómasíu og sögu risapöndunnar. Útvarpskonan Vera Illugadóttir og doktorsneminn Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir eru gestir þáttarins.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    15 min
  • Bad Bunny og Ofurskálin
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas Ofurskálina sem fór fram síðustu helgi, tónlistaratriði Púertó Ríkó-mannsins Bad Bunny og hvernig það tengist stjórnmálum í Bandaríkjunum. Fréttamaðurinn Ingunn Lára Kristjánsdóttir er gestur þáttarins.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    16 min
  • Vetrarólympíuleikarnar
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um Vetrarólympíuleikana sem hófust á föstudaginn. Karitas rekur sögu leikanna og ræðir um keppnisgreinarnar við íþróttafréttamanninn Gunnar Birgisson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    15 min
  • EM og saga handboltans
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas þjóðaríþróttina handbolta. Hvaðan kemur hún og hvers vegna er handbolti svona vinsæll á Íslandi? Íþróttafréttamaðurinn Helga Margrét Höskuldsdóttir er gestur þáttarins.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    15 min
  • Saga Grænlands og vilji Grænlendinga
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða einbeitir Karitas sér að Grænlandi. Hver er saga landsins, hvers vegna eru allir að tala um það og hvað vill Trump eiginlega? Fréttamaðurinn Hallgrímur Indriðason veit ýmislegt um málið.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    15 min
  • Hvað er að gerast í Venesúela?
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur Venesúela, hvað gerðist þar í byrjun árs og hvers vegna. Fréttamaðurinn Oddur Þórðarson er gestur þáttarins.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    15 min
  • Hvað er í vændum á nýju ári?
    Í þessum þætti Krakkaheimskviða veltir Karitas því fyrir sér hvað verður í fréttum árið 2026. Fréttamaðurinn Birta Björnsdóttir er gestur þáttarins og spáir í spilin.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    15 min

About Krakkaheimskviður

From the publisher's feed

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og…