Mannlegi þátturinn

Kynfræðsla yngsta stigs grunnskóla og Sóli lesandi vikunnar


Listen Later

Við byrjuðum þáttinn á því að senda út upphafið á upplýsingafundi Almannavarna, eins og aðra mánudaga og fimmtudaga í vetur. Þátturinn var því styttri sem því nemur.
Höfundar sjö meistaraverkefna í leikskóla-, grunnskóla-, og frístundafræðum fengu á dögunum viðurkenningu skóla- og frístundaráðs 2020, Viðurkenning fyrir meistaraprófsverkefni er liður í því að hvetja til og auka hagnýtingu rannsókna í fagstarfi með börnum og unglingum í Reykjavík. Rut Ingvarsdóttir fékk viðurkenningu fyrir verkefnið Kraftaverkið ég - Námsefni í kynfræðslu fyrir yngsta stig grunnskóla en í því eru meðal annars kennsluleiðbeiningar og námsbók í kynfræðslu fyrir 5-8 ára nemendur, en skortur hefur verið á námsefni í kynfræðslu fyrir nemendur á yngsta stigi grunnskólans. Rut sagði okkur meira frá þessu í þættinum í dag.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var Sólmundur Hólm Sólmundarson, eða Sóli Hólm. Hann er auðvitað skemmtikraftur og eftirherma sem flestir ættu að þekkja úr sjónvarpi, nú síðast úr Skaupinu. En það sem færri kannski vita er að hann hefur skrifað tvær bækur, fyrst ævisögu Gylfa Ægissonar og nú síðast ævisögu rapparans Hr. Hnetusmjör, en hún var einmitt mest selda ævisaga síðasta árs. Við fengum að vita hvaða bækur Sóli hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

76 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners