
Sign up to save your podcasts
Or


Soffía hefur í starfi sínu greint tíu börn með beinkröm hérlendis og segir að íslensk börn séu almennt ekki að fá nægjanlegt magna D-vítamíns. Hvað er til ráða?
Þær Fehima Líf og Katla Rut komu í Læknavarpið á dögunum og sögðu frá því skemmtilega ævintýri þegar þær og tvær aðrar vinkonur úr menntaskóla komust í topp tíu í Gullegginu með hugmynd sína Vita.
Sæmundur Rögnvaldsson er nýdoktor og sérnámslæknir í lyflækningum. Hann var valinn Ungur vísindamaður Landspítala vorið 2025 og nú á dögunum fékk hann um 60 milljóna króna rannsóknarstyrk frá World Cancer Research Fund. Styrkur þessi er til þess að rannsaka tengsl næringar og líkamsþyngdar við forstig mergæxlis og þróun þess yfir í mergæxli.
Það er óhætt að segja að Margrét Aðalsteinsdóttir sé flestum læknum kunnug, því hún hefur starfað á skrifstofu Læknafélags Íslands í meira en þrjá áratugi.
Nú stendur Magga Aðal, eins og hún er kölluð af samstarfsfólki sínu, á tímamótum, því um mánaðamótin febrúar/mars hættir hún formlega störfum og fer á eftirlaun.
Halldór Bjarki Einarsson er heila- og taugaskurðlæknir sem starfar við háskólasjúkrahúsið í Álaborg, en hefur frá því í júní tekið að sér afleysingar á Landspítalanum. Nýverið flutti hann erindi um uppgötvun sína á nýju afbrigði heilaæxlis en það var á fundi Félags um innkirtlafræði um sjúkdóma í heiladingli og nýrnahettum, sem haldinn var í sjötta sinn hér á landi í október síðastliðnum.
„Ég vil vera til gagns,“ segir Ásgeir Haraldsson, barna- og ónæmislæknir, og fer yfir ferilinn og stöðu vísinda í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins. Síðasti vetur var Barnaspítalanum erfiður vegna streptókokkasýkinga. Hann segir mikilvægt að hafa varann á fyrir veturinn.
Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Stef: Doctor Victor
„Það stríðir gegn öllum mínum prinsippum fyrir íslenskt þjóðfélag að fólk þurfi að borga fyrir bakaðgerðirnar hjá okkur úr eigin vasa,“ segir Hulda Brá Magnadóttir, sem ásamt Guðrúnu Guðmundsdóttur, býður fyrstu skurðaðgerðir við brjósklosi utan Landspítala. Hulda Brá er fyrsta íslenska konan til að útskrifast sem heila- og taugaskurðlæknir. Hún segir frá ferli sínum í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins.
„Við megum ekki gleyma að vísindi eru mjög góð fjárfesting,“ segir Sæmundur Rögnvaldsson Ungur vísindamaður Landspítala 2024. Jón Gunnlaugur Jónasson Heiðursvísindamaður Landspítala segir vísindastarf orðið flóknara með árunum. Þeir fara yfir þróunina, bakgrunn sinn, vísindin og markmið í Læknablaðinu, hlaðvarpi Læknablaðsins.
Stef: Doctor Victor
„Ég myndi vilja að við gerðum allar nýrnaígræðslur sem sjúklingar okkar þurfa hér á Íslandi,“ segir Jóhann Jónsson læknir í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins. Jóhann hefur unnið bróðurpart starfsævinnar í Bandaríkjunum. Hann sleppti aldrei hendinni af Íslandi og vann að því í fríum sínum að koma líffæraígræðslum upp á Landspítala. Rúm 20 ár eru frá fyrstu aðgerðinni þar — sem hann einmitt gerði.
Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Stef: Doctor Victor
From the publisher's feed