Læknavarpið

Læknavarpið

By LæknablaðiðMedicineHealth & Fitness
Download on the App Store

Læknavarpið episodes

  • #3/2024 Ragna Kristín Guðbrandsdóttir að verða yngsti læknir landsins

    Ragna Kristín Guðbrandsdóttir er ung en þó komin á stað sem enginn annar Íslendingur hefur áður náð á hennar aldri. Hún er rétt við það að útskrifast sem læknir aðeins 23 ára gömul. Fædd aldamótaárið og með Íslandsmeistaratitil í klassískum kraftlyftingum. Veikindi föður hennar gáfu henni tilgang og kraft til að verða læknir. Hún fetar í fótspor móður sinnar sem er læknir og er ekki ein um það því yngri bróðir hennar stefnir sömu leið. 

    Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva

    19 min
  • #02/2024 Engilbert, Magnús og Tómas um geðskoðun

    Við mat á geðrænum veikindum er lykilatriði að gera vandaða geðskoðun. Horfa þarf í útlit, hegðun og hugsun einstaklingsins. Engilbert Sigurðsson, prófessor í geðlæknisfræði og yfirlæknir á Landspítala, Tómas Hrafn Ágústsson, sérnámslæknir í geðlækningum og Magnús Haraldsson, geðlæknir á geðsviði Landspítala, fara klínískt og yfir aðferðafræði við geðskoðun í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins.


    Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva

    1 hr 28 min
  • #02/2024 Michael Clausen um ofnæmi í vestrænum heimi

    „Aftur til náttúrunnar,“ segir Michael Clausen, barna- og ofnæmislæknir á Landspítala, að sé meginþema í lækningum nútímans. „Lífsstíllinn er lykilatriðið þegar kemur að heilsu,“ segir hann og hvetur fólk til að lifa nær náttúrunni og forðast efni sem trufla líkamsstarfsemina. Ofnæmi fari vaxandi í vestrænum heimi. Michael er gestur Læknavarpsins að þessu sinni.

    Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva

    38 min
  • #01/2024 Hildur Guðjónsdóttir og endómetríósa

    Styrkja þarf utanumhald með konum sem þjást af endómetríósu hér á landi. Þetta segir Hildur Guðjónsdóttir kvensjúkdómalæknir nýkomin frá Svíþjóð þar sem hún vann með öflugu teymi að endómetríósu. Hildur er gestur Læknavarpsins, hlaðvarps Læknablaðsins og fer hún yfir einkenni og meðferð við þessum sjúkdómi sem hrjáir um tíundu hverja konu.


    Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva

    42 min
  • #12/2023 Tómas Guðbjartsson og ferðin til Nepal

    „Já, þetta er svolítið ég. Ég er svo fljótur að ákveða mig,“ segir Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir og lýsir því hvernig hann stökk til Nepal þegar sænskur skurðlæknir leysti hann af á skurðdeildinni. Hann kleif Island Peak, eða Imja Tse-fjallið, 6165 metra hátt, í fjallasal Nepal og nýtti ferðina til góðs. 400 börn hafa nú fengið hlý föt frá Íslandi.


    Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva

    1 hr 9 min
  • #11/2023 Ágústa Waage

    Ágústa Waage svæfingalæknir hefur nú gengið Kambaslóðina á enda frá Mexíkó til Kanada, 4265 kílómetra. Hún flosnaði upp úr framhaldsskóla á Íslandi, ók trukk fyrir Sameinuðu þjóðirnar í Bosníustríðinu, en lauk svo við lækna- og sérnám í Svíþjóð. Þar starfar hún og sér ekki fram á að koma heim. Ágústa segir söguna í Læknavarpinu.


    Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva.

    50 min
  • #11/2023 Sigríður Dóra Magnúsdóttir

    „Stolt,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir spurð hvað hún ætli að taka út úr starfi sínu sem forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. „Ég veit þetta verður ekki aðeins dans á rósum, en þetta er gríðarlegt tækifæri,“ segir hún í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins, við þessi tímamót.

    Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva.

    37 min
  • #10/2023 Sigurdís Haraldsdóttir

    Sigurdís Haraldsdóttir krabbameinslæknir segir okkur frá eftirliti sem hefur verið komið upp á Landspítala með einstaklingum í mikilli hættu á að fá briskrabbamein, því nýjasta í krabbameinslækningum og lífi sínu í Bandaríkjunum í nýjum þætti Læknavarpsins, hlaðvarpi Læknablaðsins.

    Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva.


    44 min
  • #10/2023 Sigurður, Helgi og Hlynur

    „Ég gerði mér grein fyrir því að þetta væri allt annað starf en það sem ég er að koma úr,“ segir Helgi Hafsteinn Helgason krabbameinslæknir kominn til starfa á Selfossi eftir um 23 ár í Hollandi.

    Þrír krabbameinslæknar eru á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Ásamt Helga þeir Hlynur Níels Grímsson og Sigurður Böðvarsson. Gunnhildur Arna ræðir við þá um vöxt stofnunarinnar, áskoranir og tækifæri.

    Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva.

    40 min
  • #09/2023 Sigurður Guðmundsson

    „Ég þarf ekki að bæta við CV-ið. Það er algjör óþarfi. Það les það enginn lengur,“ segir Sigurður Guðmundsson, smitsjúkdómalæknir og fyrrum landlæknir, í einlægu viðtali við Gunnhildi Örnu í Læknavarpinu – hlaðvarpi Læknablaðsins. Sigurður er á krossgötum, er að ljúka störfum, og gerir upp ferilinn í þessum þætti.


    Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva.

    57 min

About Læknavarpið

From the publisher's feed

Læknavarpið er hlaðvarp Læknablaðsins þar sem rætt er við lækna á faglegum og persónulegum nótum. Nýr þáttur með hverju nýju Læknablaði.