
Sign up to save your podcasts
Or


Magnús og Kjartan fóru á Mamma Klikk í Gaflaraleikhúsinu og ræddu minningar um Gunna og Felix, að leggja upp á gangstétt og fordóma gagnvart fólki í hjólastól ásamt því að kynna nýjan dagskrálið til sögunnar: Kvörtunarhorn!
Í þætti vikunnar fóru Kjartan og Magnús á líklega umdeildustu sýningu leikársins, Rocky! í Tjarnarbíó. Þeir ræddu meðal annars um dauð dýr á sviði og hvernig tæknimaður gæti klúðrað heilli sýningu.
Í þetta skipti sáu Kjartan og Magnús Shakespeare verður ástfangin á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu og ræddu tilfinningar sem þeir höfðu aldrei upplifað áður, að hafa hund á sviði og hvenær Oliver Twist á að hafa gerst.
Kjartan og Magnús munu fara á allar sýningar leikársins 2019/2020 og spjalla um þær í vikulegum þáttum. Þeir koma úr ólíkum áttum en Kjartan fer lítið í leikhús á meðan Magnús er sviðslistanemi og starfar sem tæknimaður í leikhúsi. Í þessari viku fóru þeir á Sex í sveit í Borgarleikhúsinu.
Kjartan og Magnús fóru á Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) í Þjóðleikhúsinu og ræddu hvað Kjartan á erfitt með að mæta á réttum tíma í leikhús, hvað lokabreytingar rétt fyrir frumsýningu geta gert gott og hvar munurinn liggur á forsýningum í bíó og leikhúsi.
Kjartan og Magnús fóru á frumsýningu HÚH! Best í heimi í Borgarleikhúsinu og ræddu hvort það væri óviðeigandi að setja á sig headphone í miðri sýningu, hvað devised sýningar eiga sameiginlegt og hvers vegna víkingaklappið væri ekki tekið oftar í leikhúsi.
Kjartan og Magnús munu fara á allar sýningar á leikárinu 2019/2020 og spjalla um þær í vikulegum þáttum. Þeir koma úr ólíkum áttum en Kjartan fer lítið í leikhús á meðan Magnús er sviðslistanemi og starfar sem tæknimaður í leikhúsi.
Í þessari viku fóru þeir á sýninguna Independent Party People í Tjarnarbíó og ræddu þörfina fyrir að láta vita að maður sé ekki rasisti, hvað ljósin voru flott og af hverju það væru ekki komin leðursæti í leikhúsin.
From the publisher's feed