Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Í Lesgleraugunum verður varpað út upptökum af bókmenntaviðburðum safnsins, sem klipptar eru og skornar sérstaklega fyrir hlaðvarpið. Spennandi umræður um lestur, persónur, sjónarhorn, ævisögur, sa... more
FAQs about Lesgleraugun | Borgarbókasafnið:How many episodes does Lesgleraugun | Borgarbókasafnið have?The podcast currently has 50 episodes available.
April 27, 2019Bókmenntahátíð í ReykjavíkSunna Dís og Guðrún Baldvins rétt fara yfir dagskrá Bókmenntahátíðar í Reykjavík í einum lengsta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins!...more31minPlay
April 16, 2019Hefðalaust páskafríVið spurðum Fésbókarvini hver leiðarendinn væri ef þeim áskotnaðist flugmiði um páskana til bókarinnar sem þeir væru að lesa þessa stundina. Áfangastaðirnir voru af misjöfnum toga, sumir voru ansi heppnir en aðrir síður. Þau Sunna Dís, Guðrún Baldvins og Jóhannes á Borgarbókasafninu ræddu þessi ímynduðu ferðalög og svo að sjálfsögðu hvað yrði lesið og horft á í páskafríinu....more21minPlay
April 12, 2019Atvinnutækifæri í barnabókumFöstudagsstuðsumræðan að þessu sinni er afar barnabókavæn í tilefni af Barnamenningarhátíð. Fyrst var spurt hvaða barnabók væri í uppáhaldi hjá fylgjendum Borgarbókasafnsins á Facebook og því næst áttu svarendur að velja sér starfstitil í bókinni. Skemmtilegar umræður spunnust út frá stuðinu svo þær Guðrún Baldvins, Þorbjörg Karls og Esther Þorvalds ræddu og grínuðust hressilega í þessum dulitla hlaðvarpsþætti....more15minPlay
April 05, 2019Eftirminnilegasta setningin!Esther, Tobba og Droplaug ræða eftirminnilegar setningar úr íslenskum bókum og orðagrín á splunkunýjum pokum Borgarbókasafnsins í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins!...more13minPlay
March 28, 2019Bækur sem fá tárin til að rennaÍ nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins áttu Esther, Guðrún og Ingi saman sorgarstund í Kompunni þegar þau ræddu föstudagsfjörs spurninguna; Hvaða bækur fá tárin til að renna?...more20minPlay
March 22, 2019SmáskilaboðaforeldrahandbókinÍ nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins ræða Guðrún, Esther og Jóhannes svör við föstudagsfjörinu á facebook síðu safnsins þar sem spurt var; „Síðustu skilaboð sem þú sendir foreldri þínu eða barni eru titillinn á foreldrahandbókinni sem þú ert að skrifa. Hvað heitir hún?"....more16minPlay
March 08, 2019EyðieyjugögninAlræmda eyðieyjan var til umræðu á Facebook síðu borgarbókasafnsins um daginn þegar við spurðum fólk hinnar erfiðu spurningar; Ef þú mættir bara taka með þér eina bók, vínyl eða bíómynd á eyðieyju, hvað yrði fyrir valinu?Sérstakir eyðieyju sérfræðingar bókasafnsins, Guðrún, Jóhannes og Ingi ræddu þetta mál og svör fólks í þaula - ásamt því að velja sín persónulegu eyðieyjugögn - í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins!...more18minPlay
February 22, 2019BíómyndaþýðingarVeturinn er mikill hámhorfstími hjá Íslendingum. Við spurðum ykkur fyrir nokkru hvort þið væruð nokkuð orðin samgróin sjónvarpssófanum. Erlendar bíómyndir hafa margar fengið hreint dásamlega íslenska titla í þýðingu, og þeir eru ágætis skemmtun svona einir og sér. Fylgjendur Borgarbókasafnsins á Facebook höfðu margt til málanna að leggja og í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins ræða þau Esther, Ingi og Jóhannes um nokkrar skemmtilegar hugmyndir sem fæddust í spjallþræðinum!...more12minPlay
January 30, 2019Bókaspjall - JanúarbækurHafið þið ekki öll lesið einhverja bók sem þið lokið með bros á vör, sól í hjarta, syngjandi englakór og endurnýjaðri trú á mannkynið? Við teljum það siðferðislega skyldu okkar á þessum tíma ársins að létta borgarbúum lund – og fengum þar góða aðstoð fylgjenda okkar á Facebook! Hér setjast þau Ingi, Esther og Guðrún og spjalla um svörin sem bárust í föstudagsstuði Borgarbókasafnsins þann 4. janúar 2019. Spurt var: Hvaða bók myndir þú ávísa til þess að létta lund og bæta geð?...more19minPlay
December 24, 2018Jóladagatal 2018 - Sögur af Zetu: Ullarsokkar í jólasnjó - Allir þættirnirVelkomin í Jóladagatal Borgarbókasafnsins 2018!Á hverjum degi til jóla opnast nýr gluggi með spennandi kafla í jólasögu Evu Rúnar Þorgeirsdóttur um bókaveruna Zetu og vini hennar. Myndskreytt af Ninnu Þórarinsdóttur. Lesið hér: https://bit.ly/2Q8Yyhz Lestur: Eva Rún ÞorgeirsdóttirUpptaka: Ingi Þórisson...more1hPlay
FAQs about Lesgleraugun | Borgarbókasafnið:How many episodes does Lesgleraugun | Borgarbókasafnið have?The podcast currently has 50 episodes available.