
Sign up to save your podcasts
Or


Mæðgurnar spá í spilin um allt annað en kosningarnar, til dæmis um mæðradaginn, konudaginn, trúlofanir og Helga lætur Ebbu heyra það.
Mæðgurnar snúa aftur með fréttir af Ebbu frá Ítalíu. Þær færa fréttir af heilsu Helgu og loks leggur Ebba fyrir Helgu hina klassísku spurningu: Hvort myndirðu frekar.
Í fyrsta þætti nýs árs eru mæðgurnar á einlægu nótunum. Ebba opnar sig um andlega líðan síðan undanfarnar vikur og fær góð ráð frá mömmu sinni. Síðan taka þær upp léttara hjal, til dæmis um fasista.
Handritshöfundurinn og leik-, útvarps- og grínkonan Júlíana Sara heimsækir mæðgurnar og fer beinustu leið á dýptina!
Ebba er í vondu skapi, en það finnur enginn fyrir því. Helga er í geggjuðu stuði og spáir fyrir Ebbu!
Mæðgurnar snúa aftur! Þær tala um túrmerik, slangur, afmælisveislur og fleira!
Mæðgurnar fá til sín leikkonuna, BYKO-konuna og þúsundþjalasmiðinn Önnu Margréti Káradóttur. Þær tala um móðurmissi, minningar og símtöl sem mættu vera fleiri og lengri.
Mæðgurnar eru komnar aftur eftir Tene og allskonar.
Ebba og Helga fá mæðgurnar Guðbjörgu Thoroddsen, leikara, og Ásdísi Þulu Þorláksdóttur, gallerista, í heimsókn og ræða samband þeirra, fjölskyldufundi, listina og margt margt fleira.
From the publisher's feed